Fálkinn - 19.10.1951, Qupperneq 4
4
FÁLKINN
CfiaíMot-hodín í Porís
Þar verður allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna haldið veturinn 1951-1952.
NN'AN SKAMMS niun Ohaillot-
höllin, eða Palais de Chaillot, kom-
ast í brennipunkt heimsfréttanna. —
Alislierjarþing Sameinuðu þjóðanna
verður lialdið þar i vetur öðru sinni.
Fyrir hið fjölmenna starfslið og að-
stoðarmenn fulltrúanna hafa bráða-
birgðahús verið reist á hinum hall-
andi flötum Trocadero. Er það gert
í ])eirri góðu trú, að fólkið muni ganga
vel um garðinn, sem þykir hin feg-
ursti, þó að hann sé ekki fjölsóttur
af gestum venjulega.
Þessi staður virðist vera kjörinn
fundarstaður stjórnmálamanna og
])jóðaleiðtoga. Það er ekki einungis
að hann liefir öðru sinni verið val-
inn sein fundarstaður Sameinuðu
þjóðanna (í fyrra skiptið 1948), lield-
ur var t. d. undirbúningsráðstefna
fyrir Pyreneasamningana 1659 hald-
in þar og staðnum gefið nafnið „Ráð-
stefnubærinn" af Loðvik XIV.
Þá var Chaillot smáþorp og hafði
lengi verið. Það hafði sennilega sprott-
ið upp í rjóðri í Rouvray-skógi, sem
nú er orðinn lítill, en hefir fríkkað að
sama skapi. Leifarnar eru liinn heims-
frægi Boulogne-skógur eða Bois de
Boologne.
í fyrstu var Cliaillot aðeins brot af
Nimio-hrepp, ef svo mætti segja, sem
náði þá einnig yfir Passy og Auteuil.
Nafnið Chaillot kemur fyrst fram í
latneskum búningi í páfabéfi Úrbans
II., en siðar í ýmsum frönskum bún-
ingi. Rótin er liin sama i öllum orð-
unum, hið gamla franska orð „chail“,
scm þýðir steinn. í lilíðum nágrennis-
ins óx vínviður, en á sléttlendinu
skiptust á akrar og beitilönd.
Mörgum finnst það ótrúlegt, að þessi
spilda, sem nú er eitt mesta nútíma-
hverfi Parísar, skildi hafa verið smá-
þorp í Ile de France fyrir tiltölulega
stuttum tima.
Árið 1702 var þar ein gata, áttung
úr mílu á lengd, og við hana stóðu
120 hús. Allt í kring voru akrar, engi,
vínekrur og reisulegir búgarðar á víð
og dreif.
Landið var lengst af eign nunnu-
klaustra og var að verulegu leyti nytj-
að af þeim. Óháðir bændur höfðu lítið
landrými svo að byggð gat ekki blómg-
ast þar lengi framan af. Eftir að sápu-
verksmiðja og teppagerð tóku til starfa
þar, fór þó heldur að blása byrlegar
fyrir þorpið.
Teppaverksmiðjan var mjög fræg.
Hún hét „Savonnerie" (sápuverksmiðj-
an), af því að hún var starfrækt í
liinum gömlu húsum sápuverksmiðj-
unnar. Síðar var Gobelins-teppagerðin
sameinuð „Savonnerie“-verksmiðj-
unni. Er það fyrirtæki ennþá starf-
rækt í húsinu, sem Colbert lét reisa
á 17. öld.
Það er ekki fyrr en 1860 að Chail-
lot var innlimuð i Parísarborg. Eftir
það breyttist svipur staðarins, því að
liann varð ásamt nokkrum fleiri fyrir
valinu, er prýða átti sérstaklega
nokkra borgarhluta. Chaillot-hæðin
var flött út efst og þar gert torg, en
út frá því í allar áttir fagrir „boule-
vardar," sem skipt hafa um nafn eftir
stjórnmálaviðhorfinu í heiminum.
Lengi var það ætlunin að reisa
þarna á hæðinni gríðarmikla liöll og
súlnaraðir, sem mundi taka fram öll-
um byggingum veraldarinnar. Jafnvel
St. Péturskirkjan í Róm átti að hverfa
í skugganum. — Aldrei varð þó úr
þessu.
Fyrir heimssýninguna 1878 var gerð
liöll í spansk-máriskum stíl uppi á
Chaillot-hæðinni og gefið nafnið
Trocadero-höllin og dró hæðin um
nokkurt skeið nafn af höllinni. Aldrei
þótti hún meistaraverk frekar en aðrar
byggingar, sem húsameistarar þess
tíma teiknuðu. Hún var þess vegna
ckki grátin af neinum fegurðarvini,
er hún var rifin fyrir lieimssýninguna
1937 og önnur reist af grunni henn-
ar, Chaillot-höllin nýja. Hin nýja höll
er glæsileg bygging með tveimur aðal-
álmum. Þar hafa verið alls konar
söfn, t. d. sjóminjasafn, safn um þró-
unarsögu mannsins, höggmyndasafn
o. fl.
í aðalsal Chaillot-hallarinnar, sem
er að nokkru leyti neðanjarðar,
á mótum liinna tveggja gríðarstóru
Champ de Mars, eða Marsvöllur, þar
er Eiffelturninn. Hann var byggður
fyrir heimssýninguna miklu 1889.
álma, munu fundir verða haldnir í
allsherjarþinginu. .Fulltrúar munu
ekki þurfa að lcvarta undan umhverf-
inú, hvorki innanhúss né utan. Allt
er þar jafn fagurt og stórkostlegt.
Garðurinn í kring er annálaður fyrir
fegurð. Signa rennur þarna rétt hjá,
og yfir húsaþökin í grenndinni gnæf-
ir Eiffelturninn til þess að minna
menn á heimssýninguna 1889, sem
hann var reistur fyrir.
Ilerskólinn, eða .Ecole de Guerre,
blasir við og lokar útsýninu í eina átt-
ina handan við Champ de Mars. Hin-
ar lireinu línur lians draga að.sér at-
hygli gestsaugans. Það var snillingur-
inn Gabriel, sem átti lieiðurinn af
þeirri byggingu eins og mörgum við
Place de la Concorde í hjarta Parísar-
borgar.
Og nú er það spurningin, sem mik-
ið veltur á, livort hið fagra umhverfi
geti nokkru þokað um í áttina til göf-
ugri hugsunarháttar og fegurri fram-
komu á þingi Sameinuðu þjóðanna en
liefir verið stundum áður?
Myndin er tekin við Sigurbogann í París, er Júlíana Hollandsdrottning og Bernhard prins voru þar í heimsókn
við gröf ókunna hermannsins. Til hægri við þau eru Koenig hershöfðingi og Henri Chouteau setuliðsstj. Parísar.