Fálkinn - 07.03.1952, Qupperneq 3
FÁLKINN
O
ö
FRAKKLAND OG TUNIS.
Undanfariö hafa verið óeirðir i Tunis. —
Sjálfstæðismenn þar heimta að Frákkar
verði á burt úr landinu og til þess að undir-
strika þá kröfu hafa þeir drepið franska
borgara og brennt hús sumra þeirra. Sá
heitir Habit Burgiba, sem stjórnar þessari
sókn uppreisnarmannanna. Hafa Frakkar
tekið hann fastan, og krafist þess að hinum
innlenda þjóðhöfðingja, Muhamed al Amin,
að hann sjái um að öllum spellvirkjum verði
hætt. Geri hann það kveðst franska stjórn-
in fús til að semja við Tunesinga um kröfur
þeirra. — Á minni myndmni sést Habin
Burgiba, en á hinni beyinn af Tunis á leið
til franska landstjórans, Hautecloqe.
1 Frákklandi hefir nú verið smíðuð þrýstíloftsflugvél, sem er frönsk
að öllu leyti, og nefnist „Leducu. Hún þarf 300 km. hraða til þess
að lyftast frá jörðu, og hefir því það ráð verið tekið að láta stóra
flugvél fljúga með hana „úr hlaði'c og sleppa henni þegar upp í
þennan hraða er komið, þvi að þetta sparar mikið eldsneyti. Venju-
leg þrýstiloftsflugvél þarf um 80 litra af eldsneyti til þess að losna
við jörðina. Undir eins og vélin er komin nægilega hátt á loft er
henni sleppt og getur hún þá náð nœgilegum hraða með því að fálla
um leið, svo framarlega sem hraðinn er ekki nægur þegar henni er
sleppt. — Leduc er 10 metrar milli vœngjabrodda og 10% m. löng og
getur flogið með 850 km. hraða. — Á efri myndinni sést vélin þeg-
ar verið er að lyfta henni upp í „móðurvélinau, en að neðan „móðir
og barnu álbúin til að leggja af stað upp í himinblámann.
KRINGUM HNÖTTINN.
Þrjár amerískar stúlkur, sem
starfa í sendiráði Bandaríkj-
anna í París, hafa afráðið að
ferðast kringum hnöttinn í bif-
reið. Hér sjást hinar þrjár þokka
ggðjur er þær leggja upp frá
París — vitanlega með hundinn
sinn í eftirdragi.
NÝ UPPGÖTVUN.
Meðal margra eftirtektarverða
áhalda, sem sjá má á hugvits-
mannasýningunni, sem stendur
yfir í París núna, er þetta tæki
sem líkist bæði skammbyssu og
saumavél. Það er notað til þess
að sauma fyrir fulla sekki.
106 beinbrot
Þcgar Barry Giles fæddist voru
nokkur rif i honum brotin og sömu-
leiðis annar handleggurinn. Þegar
hann var fjögurra mánaSa, fótbrotn-
aði hann, jtar sem hann lá í vöggu.
Einu sinni var læknir aS rannsaka
fóthrot á Barry litla. Þurfti hann aS
færa þann.fótinn, sem óbrotinn var,
eitthvaS til, en viS það brotnaði
hann.
Barry Giles er haldinn fragilitas
ossium (brotgirni beina). Sérstakt
mataræði með kalkauðugri fæðu
hefir engu getað áorkað til bóta.
Beinmyndunarfrumurnar framleiða
greinilega ekki nógan beinvef. Af-
leiðingin er sú, að hann er beina-
grannur og beinin eru mjög brot-
gjörn.
Barry getur ekki gengið. Hann
rennir sér áfram með þvi að sitja
á hjólaskauta. Hann gengur ekki í
skóla, en kennari heimsækir hann
tvær stundir á dag. Móðir hans, sem
er gift járnbrautarstarfsmanni, tek-
ur aldrei undir handlegginn á hon-
um, þegar hún lyftir honum, heldur
undir rassinn. Alls staðar er hætta
á ferðum fyrir hann. Ef hann dettur
eða rekst á eitthvað þá er hætt við
beinbroti. Ef einhver ókunnugur
snertir hann er sama hætta á ferð-
um. Þegar gestir eru, leitar hann
sér hælis undir borði.
Frú Giles lifir i stöðugum ótta út
af Barry litla, enda er varla von á
öðru, þvi að hann hefir að undan-
förnu legið rúmfastur vegna 106.
beinbrotsins, sem hann hefir hlotið
um ævina og er hann þó aðeins
7 ára gamall. En henni er það hugg-
un, að fjórir bræður Barrys skuli
vera hraustir og heilbrigðir, því að
brotgirni beina hefir verið talinn
arfgengur sjúlcdómur. Læknir Barrys
tclur meira að segja vonarneista
fyrir Barry sjálfan um að ná fullri
hreysti og heilbrigði, þegar stundir
liða fram. Slikt hafi átt sér stað.
Barry á heima i Willesborough,
um 50 milur frá London.
LÉTTKLÆDDUR
SLÖKKVILIÐSMAÐUR.
Tuttugu sekúndum eftir að bruna-
boðinn hringdi í Bristbane ók fyrsti
slökkvivagninn af stað. En allt i
cinu stansaði bann og sneri svo við.
Einn slökkviliðsmannanna liafði
gleymt að fara i buxurnar.