Fálkinn


Fálkinn - 07.03.1952, Blaðsíða 5

Fálkinn - 07.03.1952, Blaðsíða 5
FÁLKINN 5 Ingrid fíergman og Charles fíoyer i „Gasljós“, sem var valin besta, mynd ársins“ á sinum tíma og Ingrid „besta leikkona ársins“. Ingrid Bergman — Roberto Rossellini. ^Astarsaga Framhaldsgrein 3. kom með lnigmynd var hinn reiðu- búinn til að athuga hana. Þeir rif- ust aldrei. Þeir voru allir í starf- inu, reyktu hvorki né drukku — og giftust aldrei. En sunnudaginn liéldu þeir heilagan — þeir flugu aldrei á sunnudegi. Þegar nýja svifflugan hafði reynst að óskum var flugvélin eiginlega fundin, þar vantaði aðeins hreyfil- inn og skrúfuna. Þeir smíðuðu hvort tveggja sjálfir. í desember 1903 komu þeir i fjórða sinn til Kitty Hawk og höfðu nú með sér allt sem til þurfti. Og 17. des. voru þeir albúnir, — 9 dögum eftir ófarir Langleys i Wash- ington, sem fæddu af sér fjölda greina um að ómögulegt væri að fljúga! Eigi að siður flugu þeir háðir 17. des. en það voru ekki nema fáir sem vildu trúa því. ;— ■— ■— Orville Wright var fyrsti maðurinn, er flaug í vél sem var þyngri en loftið. Hann dó 1948, 77 ára gamall, en bróðir hans dó 45 ára gamall úr taugaveiki, árið 1912. Flugferðin stóð ekki nema nema 12 sekúndur og leiðin var um 30 metrar. Svo reyndi Wilburn og svo Oliver aftur. Þá flugu þeir um 50 metra. í fjórðu tilraun flaug Wilburn 255 metra á 59 sekúndum og lenti vel og var mikill mótvindur. En eftir lendinguna feykti vindurinn vélinni og mölbraut hana. Bræðurnir tóku sér það ekki nærri. Þeir liöfðu sann- að að þeir gátu flogið og fóru nú hcim til Dayton. Daginn eftir jjetta flug stóð löng grein um það í Virginian Pilot og var útdráttur úr henni simaður til stórblaðanna í New York og víðar. Sum blöðin birtu fregnina en höfðu lítið við hana. önnur töldu hana lygasögu. í Dayton vor atburðinum lítill gaumur gefinn og bræðurnir minnt- ust ekki á uppgötvun sína við nokk- urn mann. Nú varð hlé á tilraunum bræðr- anna til 1908. Þá höfðu stjórnin Frakklands og Bandarikjanna sann- færst um að uppgötvunin væri meira en lygasaga. Sýndi Orville þá flug fulltrúum stjórnarinnar, við Fort Meyer. Flaug margsinnis dagana 4. —17. sept. Þann 12. flaug liann 1 tíma og 14 mínútur í 75 metra hæð og stundum með farþega. En 17. sept. brotnaði skrúfan og vélin hrap- aði. Undirliðsforingi, sem var i vél- inni dó, en Orville lá i sárum í 7 vikur. Fjórum dögum efir slysið fréttti hann að Wilburn bróðir hans hefði flogið meira en hálfan annan tíma í Frakklandi. Nú fór að skjóta upp ýmsum, sem reyndu að stela uppgötvuninni, bæði í U.S.A. og Frakklandi. Þeir áttu í mesta basli að verja einkaleyfi sín, sem þeir sóttu um 1903 og fengu árið 1906. Wilburn lét eftir sig um 200,000 dollara þegar hann dó 1912. Nokkru síðar seldi Orville öll einkaleyfi þeirra. „Kitty öawk“ fyrsta véí þeirra bræðra, stóð í tuttugu ár fyrir utan eðlisfræðisafnið i South Kensington í London, en eftir að Orville dó var hún send vestur og stendur nú fyrir utan Smithsonian Institute í Wash- ington. Rossellini kemur til HoIIywood. Hún skrifaði honum og sagði, að enginn í Hollywood legði út í að gera mynd eftif svona lausum þræði. Að lokum gafst hún upp á því að staglast á þessu við hann. Það væri tilgangslaust að kalla meira eftir söguhandritinu. Eina vonin, fannst henni, var sú, að hann kæmi sjálf- ur til Ilollywood. Lopert lagði einn- ig mikla áherslu á það, að Rossellini kæmi til Ameríku. En Ingrid hélt þó enn áfram að biðja hann um söguhandritið eftir að hún vissi, að hann ætlaði að þiggja boð hennar og koma til Bandaríkj- anna. Hér fer á eftir bréf, sem hún skrifaði 4. desember 1948: „Kæri Rossellini. Héðan i frá er best fyrir yður að hætta að spyrja baldursbrána. Nú er röðin komin að mér með að segja: Góð saga, slæm saga, góð saga ...... Eg er mjög ánægð. Ingrid Bergman." Á jólunum fékk Ingrid blóm frá Rossellini. Það voru rauðar rósir. Sjálfur segist Rossellini ekki liafa kveðið svo á i skeytinu til blómasal- ans i Los Angeles, að það ættu að vera rauðar rósir. í janúar 1949 kom Rossellini til New York með flugvél. Þetta var i fyrsta skipti sem hann kom til Bandaríkjanna. Honum var haldin veisla í 21 Club, en síðan voru hon- um afhent verðlaun kvikmyndagagn- rýnenda New York borgar fyrir Paisan, sem hafði verið valin bcsta erlenda kvikmynd ársins. Næsta dag tók hann sér far með lest vestur um þvera Ameríku. Ingrid minntist þess, er hún sat heima í Beverly Hills kvöld eitt, með an Rossellini var á leiðinni vestur. Hún var að prjóna og hlustaði á út- varpið um leið. Allt í einu heyrði hún að Walter Winchell sagði gegn- um útvarpið: Hinn eini og sanni elskhugi Ingrid Bergman er á leið til Hollywood að hitta hana.“ Þetta verkaði á Ingrid eins og lileypt væri af byssu. Prjónarnir stöðvuðust í höndum hennar. „Hvað get ég gert til þess að kveða niður þetta slúð- ur?“ hugsaði luin með sér. Meðan hún beið fyrstu heimsókn- ar Rossellinis, var hún óstjórnlega taugaóstyrk. Hún reyndi að sýnast róleg, er hann birtist í dyrunum, en hún gat ekki komið upp orði. Iiún reyndi að kveikja sér í vindl- ingi, en hún skalf svo mikið, að henni tókst það ekki, áður en slokkn aði á eldspýtunni. Hún var skelf- ingu lostin, en tók þó eftir þvi, að maður liennar horfði á hana og fylgd ist með liinni árangurslausu baráttu við að kveikja í vindlingnum. Var hún þá þegar ástfangin af Roberto? Ef til vill liafði eiginmað- ur hennar einhvern grun, en hún telur líklegt, að hann hafði vikið þeirri hugmynd frá sér, ef lnin var einhver. Hann liafði á sinum tima Ingrid Dergman og Ga,rry gefið samþykki sitt til þess, að hún byði Rossellini að koma til Holly- wood og vissi auk þess, að Ingrid átti vanda til þess að vera óstyrk á taugum, þegar nýjar kvikmyndir voru í uppsiglingu. Sjálf reyndi hún ekki að gera sér neina grein fyrir tilfinningum sín- um á þessu stigi málsins. Það, sem var þó efst í huga hennar, er varð- aði Rossellini, var að vernda hann frá allri Hollywoodflækjunni. í fyrstu var tekið á móti Roberto sem þýðingarmikilli persónu. Það var Lopert, sem kom honum á fram- færi, enda var það hann sem hafði „skrifað upp á vixilinn“ fyrir Am- erikuferðina. Billy Wilder, rithöf- undur og leikstjóri, hélt samkvæmi Rossellini til heiðurs, og þangað komu flestar þýðingarmiklar per- sónur“ í Hollywood. Ingrid hafði gát á Rossellini i samkvæmi þessu, og henni var það strax Ijóst, að óveður væri í aðsigi. Hann virtist alls ekki geta skilið þær matsreglur, sem lagðar eru á mál og málefni i Hollywood. Ilann gaf sér ekki tíma til að ræða við þá aðila, sem mestu máli skiptu. Bæði þá og siðar sagði liann og gerði ýmislegt, sem ekki var rétt. Ingrid hélt einnig samkvæmi fyr- ir Roberto með samþykki manns síns. Þegar hún spurði Roberto, hverja hann vildi helst hitta, nefndi hann Charlie Chaplin fyrstan. En ekki var liægt að koma því í kring, að þeir hittust i þetta skiptið. Þá voru j)að j)rjú önnur nöfn, sem skiptu hann mestu máli: 1. Clark Gable, af þvi að hann langaði til að kynnast af eigin raun dæmigerðri, ameriskri stjörnu f gamla skólanum. (Þeir hittust því miður aldrei). 2. Bette Davis, af j)vi að liann taldi hana góða leikkonu. 3. King Vidor, af því að hann var sá leikstjóri, cr hann dáði mest. Kvikmynd Vidors, „Hallelujah“, sem var gerð löngu áður, hafði kennt Rossellini meira en nokkur önnur amerísk mynd. En um þessar mund- ir var stjarna Vidors alls ekki hátt á lofti í Hollywood. Aðra bar miklu hærra. Þeim gramdist þetta, en King Vidor var mjög lirærður. Samningaumleitanir tókust brátt við Goldwyn, En Rossellini var fá- máll eins og i Paris. Hinn 5. febrú- ar kvaddi Goldwyn blaðamenn á fund sinn og sagði þeim frá sam- bandi sinu við Ingrid Bergman, Rossellini og Lopert. Hann mundi Framhald á bls. 14. Grant i ,,Vmtölnö kona".

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.