Fálkinn - 30.05.1952, Síða 1
Þrastarhreiður í birkitré
Um þetta leyti er mikið að gera hjá fuglunum. Þeir hafa verið önnum kafnir við hreiðurgerð og aðdrcetti ýmiss konar. Hjá sumum fugl-
um er varptíminn byrjaður, en hjá öðrum er hann framundan. Varptími fuglanna hefir ætið verið skemmtUegur timi fyrir börnin, eink-
um til sveita. Fátt þykir þeim meira gaman en að fylgjast með þvi sem gerist í fuglahreiðrunum og tilhlökkunin og eftirvœntingin vex,
eftir þvi sem nær dregur því, að ungar komi i hreiðrin. Flest börn eru þannig gerð, að þau forðast að válda of miklu ónæði, þegar fuglar
liggja á eggjum og undantekning ef nokkurt þeirra skemmir smáfuglahreiður af ásettu ráði, enda bæri slíkt vott um vont innræti.
Ljósm.: Þorsteinn Jósefsson.