Fálkinn


Fálkinn - 19.09.1952, Síða 7

Fálkinn - 19.09.1952, Síða 7
FÁLKINN 7 — Og svo er líka afmælisdagurinn hans, bætti majórinn við. — ÞaS er auðséð að hann langar til að vera lengur. Fjórtán ára drengur gæti ekki setið kyrr svona lengi nema hann liefði áhuga á því, sem verið er að tala um. Má hann ekki vera hérna áfram, Feversham? Aldrei þessu vant slakaði hers- höfðinginn ofurlítið á þeim járnharða aga, sem drengurinn lifði við dags daglega. — Jæja, látum það gott heita, sagði hann. — Harry skal fá klukkutima framlongingu. Það gerir varla til. Harry leit til föður síns og augna- ráðið var svo annarlegt, að Sutch gat ekki túlkað það öðruvísi en svo: — Ertu alveg blindur? En Feversham hershöfðingi var farinn að tala við þá, sem næstir sátu, og Harry settist aftur og lilustaði af öllum hug. Það var líkast og hann væri dáleiddur. Andlitið var óhugn- anlega fölt og augun óvenjulega stór. Kertaljósin blöktu á borðinu í blárri tóbaksreykjarþoku, og vínið lækkaði sífellt í flöskunum. Svo leið hálftimi. Þá heyrði Fevers- liam hershöfðingi allt í einu nafn nefnt og hrópaði: — Wilmington lá- viarður, já. Göfgara nafn er vart til í Englandi. Hafið þið séð heimilið hans í Warwickshire? Maður skyldi halda að hver þumlungur af landinu hans ætli að örva liann til þess að láta hendur standa fram úr ermum, þótt ekki væri til annars en að sýna for- feðrum sínum virðingu. í fyrstu fannst manni þetta ótrúlegt og taldi það hviksögu. Það var hvíslað um það við Alma, talað hátt um ])að við Balaclava. Við Sebaslopol gerðist skelfingin. Wilmington átti að vera hoðberi hershöfðingjans. Eg held persónulega, að hershöfðinginn hafi valið hann úr, til þeSs að gefa hon- um færi á að komast á réttan kjöl aftur. Boðin áttu að berast yfir þrjú hundruð metra breiða akurrein, þar sem kúlurnar hvinu i sífellu. Ef Wilmington hefði hnigið af hestinum á ieiðinni mundu hviksögurnar hafa þagnað fyrir fullt og allt. Ef hann hefði komist lifandi yfir akurinn mundi hann hafa fengið heiðurspen- ing fyrir hreysti. En hann þorði ekki að gera það, sem honum var sagt, hann neitaði! Getið þið hugsað ykkur annað eins? Hann sat skjálfandi á hestinum og hristi höfuðið. Þið hefð- uð átt að sjá hersliöfðingjann! And- litið á honum var á litinn ein's og burgundarvínið þarna. — l>ér hafið sjálfsagt afráðið þetta áður, sagði liann hógvær — aðeins það og ekki eitt einasta hnjóðsyrði. Eg gat varla á mér setið að skellihlæja, en þetta var leiðindamál fyrir Wilmington. Nú voru honum öll sund lokuð og hann var sendur til London sem ómerking- ur. Og þar voru allar dyr lokaðar fyrir honum og ef hann ávarpaði dömu á götunni þá sneri hún sér frá honum með fyrirlitningarsvip. Það endaði með þvi að hann skaut sig. Merkilegt, ha? Ilann hafði ekki þor til að riða út í kúlnaregnið þegar lieiður hans var í veði, en liann hafði kjark til að skjóta sig á eftir. — Eg 'skal segja ykkur annað enn- þá merkilegra, Iiélt hann áfram. — Þar átti hlut að máli hjúkrunarmaður eins og sjálfur ég. Hann hafði aldrei verið í eldlínunni en hann var van- ur að fást við fólk' sem barðist við dauðann. Og ekki var hann í neinni stórhættu heldur. Þetta var í orrustu á landamærum Indlands. Við höfðum tjaldað i áfangastað niðri í dal, og slæðingur af paþönum lögðu það i vana sinn að liggja uppi i ásnum og skjóta á tjöldin okkar á nóttunni. Kúla reif sjúkratjaldið — ])að var allt og sumt. Hjúkrunarmaðurinn skreið burt og inn í sitt eigið tjald, þar fann félagi hans hann steindauð- an í blóðpolli liálftíma síðar. — Hafði kúlan hitt liann? spurði majórinn. — Nei, það var nú eitthvað annað. Hann hafði opnað áhaldakassann sinn í myrkrinu, náð í hníf og skorið á slagæðina. Blátt áfram i æði, sem hafði gripið hann við að heyra kúlu- hvin i loftinu. Þessi einfalda saga hafði áhrif, jafnvel á harðjaxlana i samkvæminu. Sumir létust ekki trúa henni, en öðr- um varð óglatt af tilhugsuninni um að nokkur maður skyldi geta lagst svona lágt. Einn liðsforinginn hressti sig á vinglasi, annar yppti öxlum til að hrista þetta af sér. Aðeins einn áheyrandinn sat kyrr og lirærði hvorki legg né lið. Það var Harry Feversham. Hann sat með kreppta hnefana á hnjánum og laut fram á borðið. And- htið var náfölt og augun eins og liann væri með sótthita. Hann var líkast- ur rándýri í gildru. Hver vöðvi var stæltur — Sutch óttaðist að strákur- inn mundi missa stjórnina á sér og gera eitthvað illt af 'sér. Hann lagði höndina á handlegginn á honum en í sama bih heyrðist þurr rödd hers- höfðingj'anna og drengurinn leit upp. — Það er óskiljanlegt að svona skuli geta komið fyrir. Maður getur ekki skýrt það. Það er ofar mannleg- um skilningi. Sutcli lagði höndina á öxl Harry. — Getur þú skilið það? spurði hann en iðraðist orðanna undir eins og hann hafði talað þau. Ungi piltur- inn sneri sér snöggt að honum og horfði rólega á hann. En Feversliam hershöfðingi varð fyrri til að svara spurningunni. — Hann Harry að skilja það? lirópaði hershöfðinginn gramur. — Hvernig ætti hann að gera það. Hann sem er fæddur Feversham! Aldrei hafði Sutch heyrt neitt ó- sannara. Honum var nóg að sjá föð- urinn og soninn. Harry Feversham bar nafn föður síns, en hann hafði ■hið dimma augnaráð móður sinnar, hið breiða enni móður sinnar, vanga- svip hennar og lifandi hugmynda- flug hennar. Ókunnugir áttu kannske auðveldar.a með að sjá þetta. Faðir hans var svo vanur að sjá drenginn, að hann gaf ekki svip hans gaum. — Klukkan, Harry! Klukkutíminn var liðinn. Harry 'stóð upp og dró andann djúpt. — Góða nótt! sagði hann og hneigði sig. Þegar Harry opnaði dyrnar gein biksvartur ársalurinn við honum. Drengurinn stóð eina eða tvær sek- únduf hikandi á þröskuldinum, eins og hann væri hræddur um að eitt- livað illt lægi í leyni í myrkrinu. En svo fór hann út og lokaði liurð- inn eftir sér. Vínflöskurnar voru látnar ganga á milli, og sódavatnið ólgaði i glösunum. Samtalið liélt á- fram, og allir höfðu þegar gleymt Ilarry, nema Sutch. Einn liðsforinginn var vingjarnlegur maður. Hann var í rauninni miklu meira góðmenni en hann var mannþekkjari. Auk þess hafði hann sérstaka ástæðu til að taka eftir Harry Fevensham. Hann stóð upp fyrirvaralaust, fór og opnaði hurðina svo að eklii heyrðist, fór út og lagði hurðina hægt aftur á eftir sér. Dýrastofninn í dýragarðinum í Berlín gekk mjög saman á stríðsárunum og eftir stríð, og meðal annars voru öil hreindýrin þar drepin og étin. En nú eru aftur komin hreindýr í dýragarð- inn í Berlín. Oslóborg sendi nýlega Reuter borgarstjóra tvö ljómandi fal- leg hreindýr að gjöf handa dýragarð- inum. — Hér sést borgarstjórinn taka á móti dýrunum. — Hans Eibl frá Wipperfiirth í West- phalen er handlaginn koparsmiður. Hérna sjást tveir eirkatlar, sem hann hefir smíðað — úr tveimur tví-pfennig peningum. Þeir hljóta að vera svo þunnir að það hefir áreiðanlega verið vandaverk að búa þá til úr ekki meira efni. Eða haldið þið það ekki? — JÁRNMARKAÐUR í PARÍS er gömul tilstofnun. Er hann haldinn á hverju ári og þar er selt allt hugs- anlegt úr gömlu járni. Hér sést t. d. stæðileg grís úr járni, ætlaður til þess að prýða einhvern skemmtigarðinn. I sumar sýna þýskar stúlkur sig í blússum af alveg nýrri gerð. Það eru sem sé prentaðar heilar fréttagreinar á þær. Með þessu móti getur það vel verið að stúlkur, sem annars ekki yrði tekið eftir, verði eftirsóttar sem ,.lif- andi“ fréttablöð, þar sem þær sýna sig á víðavangi, og ef til vill verður ein- hver til þess að ráða krossgátuna, sem stendur á herðablaðinu á þeim. — Parísarbúi, er heitir Fernand Fiando, er lagður af stað á mótorhjóli sínu í ferð, sem hann áætlar að verði að minnsta kosti 6000 kílómetra löng. Meðal annars ætlar hann að reyna að komast um fjöll og eyðimerkur Norð- ur-Afríku. — Hér sést hann vera að kveðja fjölskyldu sína og vini í París. Það síðasta af mörgu, sem farið er að gera úr plasti, eru segulstál. Það eru Þjóðverjar, sem búa þau til úr plast- efni, sem þeir kalla „ferroxdure" og inniheldur bæði járn og barium. — Tvö af þessum nýju segulstálum sjást hér á myndinni.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.