Fálkinn - 19.09.1952, Síða 8
8
FÁLKINN
heimtar innblástnr!
Mr. Beverly Oarlton, forseti Bever-
ley Carlton Famous Players Film
Corporation, Hollywood, California,
U. S. A., sat djúpt niðurbældur i hin-
öm feiknarlega volduga skrifborðsstól
fyrir framan hið álíka volduga skrif-
borð, sem á sinn hátt minnti á hreint
ekki svo lítinn íþróttavöll, og þetta
hvort tveggja var staðsett i einni þesls-
ari voldugu skrifstofu, 'sem maður að-
cnis sér á kvikmyndatjaldinu.
Mr. Carlton klóraði sér í sköllóttum
‘hnakkanum, tuggði sinn geysistóra
vindil og stundi og andvarpaði með
stuttu millibili. Því næst þrýsti hann
á einn hinna fimmtíu hjölluhnappa,
sem voru virntra megin við skrifborð-
ið.
Miss Denton kom samstundis inn um
hinar viðfeðmu dyr, leit á Mr. Carl-
ton með sínum fjólubláu augum, livíldi
sig ofurlítið ó að jórtra tyggigúmmið
sitt og sagði:
„Forstjórinn hringdil“
Angela
„Já, ég liringdi,“ sagði Mr. Carlton.
„Eg vil tala við Mr. Bradley. Fljótt,
skiljið þér! Undir eins!“
„Undir eins, Mr. Carlton,“ sagði Miss
Denton og gekk út aftur jafn hratt og
lnin liafði komið.
Því næst var aftur dálítil þögn. Mr.
Carlton tuggði vindilinn sin, klóraði
sér i hnakkanum og stundi.
Stundarfjórðungi síðar gekk sér-
deilis glæsibúinn maður inn í skrif-
stofuna.
„Þér viljið tala við mig, Mr. Carl-
ton,“ sagði þessi ungi maður og sökk
niður í annan liægindastólinn.
„Ah, Bradley — loksins! Það hefir
skeð nokkuð hræðilegt! Nokkuð af-
skaplegt!“
„Hm,“ sagði Mr. Bradley. „Mrs. Carl-
ton er vonandi ekki orðin veik?“
„Mrs. Carlton? Bah — Mrs. Carl-
ton verður aldrei veik! Nei, ungi mað-
ur, iþér hafði skrifað kvikmyndahand-
rit. Reglulegt skínandi handrit, Mr.
Bradley! Handrit, sem er eins og snið-
ið fyrir kvenmann eins og Angelu
Raya.“
Mr. Bradley brosti hreykinn yfir
lofinu.
„Það gleður mig Mr. Carlton, að
handrit mitt fellur yður i geð,“ sagði
hann rétt á eftir.
„Angela Raya er eins og sköpuð fyr-
ir aðalhlutverkið,“ hélt Mr. Carlton
áfram, án þes að taka eftir innískoti
Mr. Bradleys. „Eins og sköpuð, skiljið
þér! Þessi dásamlegi kvenmaður, feg-
urri en allar aðrar, hin fræga „oomp-
girl“ Ameríku, þekkt út um allan heim
sem „hið rauðhærða eldfjall“.
„Hún er dásamleg!" sagði Mr. Brad-
ley.
„Þér vitið, að Mr. Williams, mill-
jónamæringurinn, horgaði þúsund
dollara bara fyrir að kyssa á hönd
hennar, Mr. Bradley!“,
„Eg veit einnig, að Mr. Bullerslide
hauð henni helming allra eigna sinna
bara fyrir að fá að kyssa varir henn-
ar, Mr. Carlton.“
„Rithönd hennar stendur þegar í
hundruðum dollara á rithandarkaup-
höllinnil“
„Menn segja, að furstar hafi beðið
hennar,“ bætti Mr. Bradley við.
Carlton blés mæðinni.
„Þessi kvenmaður — þetta furðu-
verk — þessi köttur kattarættarinnar
— vill ekki leika aðalhlutverkið i
kvikmyndinni yðar!“
„Hvað?“ sagði Bradley og missti
vindilinn út úr sér.
„Það er bláber sannleikurinn!“ hélt
Carlton áfram,“ só einfaldi og nakti
sannleikur! Hún hefir einmitt nýskeð
tilkynnt mér það.“
„En hvers vegna?“
„Hvers vegna? Bah, Mr. Bradley,
spyrjið kvenmanninn hvers vegna!
Hvaðan fá konur tiktúrurnar í sig,
Mr. Bradley? Angela Raya hefir lesið
handrit yðar, lnin er hrifin af þvi,
stórhrifin, en hún vill kynnast höf-
undinum eignast hlutdeild í innblæstri
hans, eins og hún orðar það — með
öðrum orðum, Mr. Bradley, þér getið
orðið heimsins hamingjusamasti mað-
ur, eða á hinn bóginn sá óhamingju-
samasti."
„Eg botna hvorki upp né niður í
þessu,“ sagði Mr. Brandley.
„Ha!“ sagði Mr. Carlton.
„Það skýrir ekki nokkurn skapaðan
hlut.“
„Nei, en þér þekkið ef til vill unga
manninn, sem skrifaði 'siðasta kvik-
myndahandritið hennar, Mr. Bradley?
Hann hét Jefferson. Það gerði lukku
— og það var ekki kvikmyndastjóran-
um að þakka, lieldur ekki ungfrú
Angelu Raya — það var eingöngu Mr.
Jefferson að þakka.“
„Hm,“ sagði Bradley.
„Og hvað gerði Mr. Jefferson, Mr.
Carlfon, ef mér leyfist að spyrja,“
liélt Bradley áfram.
Mr. Carlton fékk sér nýjan vindil og
byrjaði að tyggja hann.
„Mr. Jeflerson fór heim til Angelu
Raya þriðjudagskvöld nokkurt.“
„Afar einfalt," ansaði Bradley.
„Og kvaddi hana á miðvikudags-
morguninn.“
Mr. Bradley beit sig i vörina.
„Þér meinið.......?“
„Eg meina ekki neitt,“ sagði Carl-
ton, „ég skýri bara frá staðreyndum.
Mr. Jefferson lét Angelu þann innblá'st-
ur í té, sem hún þurfti með til þess að
geta leikið hlutverk sitt svona fram-
úrskarandi vel, eins og raun bar vitni
um i „Leiftrandi hjörtum".
Það varð löng þögn. Báðir herrarn-
ir reyktu.
„Þér vitið það, Mr. Carlton,“ sagði
Bradley, „að ég er trúlofaður Mary
Hopple?"
„Eg veit það.“
„Og að ég ætla að gifta mig í næstu
viku?“
„Eg veit það lika.“
„Þetta myndi líta heldur einkenni-
lega út.“
„Hm!“ sagði Mr. Carlton.
Aftur varð löng þögn. Svo stóð Brad-
ley upp og leit á húsbónda sinn.
„Hvers óskið þér þá, að ég geri?“
Carlton yppti öxlum.
„Það verðið þér sjálfur að ákveða.
Heimilisfang Angelu Raya er Holly-
wood Boulevard 456.“
Hin geysimikla liurð 'skall að stöf-
um á eftir Mr. Bradley. Miss Denton
leit á eftir honum með sínum fjólu-
bláu augum, flutti tyggigúmmíið hinum
megin í munninn með tungunni og
tuggði áfram.
Stundarfjórðungi yfir klukkan 9
þetta sama kvöld, gekk Mr. Ricliard
Bradley, liöfundur kvikmyndasögunn-
ar „Hjörtu i uppnámi," inn i við-
hafnarsal leikkonunnar Angelu Raya
i skrauthýsi hennar við Hollywood
Boulevard 456. í liendinni hélt hann
á lítilli, fyrsta flokks ferðatösku úr
svinaskinni. Miss Raya lá endilöng á
hinum burðarmikla, bláa tveggja
manna legubekk, sem stóð meðfram
einum veggnum. Hún var töfrandi fög-
ur ásýndum og klædd ljómandi smekk-
legum morgunklæðnaði úr kinversku
silki og prýddum knipplingadúllum.
Þetta var morgunklæðnaður, sem und-
irstrikaði á áberandi hátt hverja ein-
ustu línu í hinum heimsfræga líkama
hennar. Hið koparglitrandi hár henn-
ar lék mjúkt og flögrandi um gyðju-
likt andlitið. Fýsnþyrstur munnurinn
var hálfopinn, varirnar ljómuðu, freist
andi og mjúlcar. Hin stóru, léyndar-
dómsfullu og gráu augu hennar hvíldu
á honum hulin löngunarfullum glampa.
Hann leit á hana. Hann naut þess,
því að sýnin var beillandi.
„Gott kvöld, Mr. Bradley!“ Hún
rétti honum hvíta, yndislega höndina,
sem prýdd var blóðrauðum nöglum,
sem líktust 'spjótsoddum. Hann tók i
hana og færði hana næstum því lotn-
ingarfyllst að vörum sér.
„Þér komuð!“ sagði hún.
„Já — höfðuð þér efast um að ég
myndi gera það?“
„Mr. Carlton var ekki alveg viss,
kæri vinur,“ sagði lnin brosandi.
Hann andaði anganinni af ilmvötn-
um liennar að sér og leit niður á hera
fætur hennar, en ristar þeirra minntu
á spennta banbusboga.
„Þér viljið jú fá innhlástur, Miss
Raya.“
„Og þér hafið bugsað yður að láta
mér hann í té?“
Hann kinkaði kolli.
„Rithöfundurinn vill gjarna stuðla
að því, að hugmyndir lians fái sem
eðlilegastan blæ í framkvæmdinni,
Miss Raya.“
Hún lagði annan handlegginn aftur
fyrir hnakkann. Hún var ákaflega
freistandi þar sem lnin lá þarna. Sér-
hvert smáatriði i fyrirkomulagi henn-
ar þarna á legubekknum var þaul-
hugsað og í gegnum hið þunna efni i
morgunklæðnaði hennar, gat hann
séð líkama bennar jafn greinilega og
hún lægi þarna allsber frammi fyrir
honum.
„Þér eruð trúlofaður, ekki rétt?“
spurði liún.
„Já,“ svaraði hann.
„Mary Hopple, — ekki rétt? Sæt
stúlka, Mr. Bradley, reglulega snotur."
„Þakka yður fyrir, Miss Raya.“
„Hún lék víst annars eitthvert lítið
aukahlutverk i kvikmynd, ‘sem ég lék
í fyrir nokkru,“ hélt liún áfram.
Hann beit sig í vörina, en sagði
ekkert. í stað þess gekk liann þangað,
sem taskan hans var og opnaði hana.
Upp úr henni tók liann náttföt, tann-
bursta, tannpasta, raklcúst og rak-
sápu, og lagði allt saman á borðið.
Hún leit á hann gráu augunum sinum,
en um varir hennar leið sigurbros.
„Innblástur," sagði hún.
„Náttúrulega, Miss Raya — innblást-
ur! Það er reyndar það, sem þér
viljið fá!“
Það brá fyrir leiftri í augum henn-
ar. Hættulegu leiftri, sem hann tók
ekki eftir. Hann liefir dásamlegan
linakka, hugsaði liún með sér, reglu-
lega dásamlegan linakka.
Hún lá kyrr og horfði á hann. Hann
lokaði töskunni eftir að hann hafði
tekið liafurtaksið sitt upp úr henni,
settist á stól og tók að færa sig úr
skónum. Hann leysti hálsbindið og
lagði það á 'borðið, hneppti skyrtunni
frá sér og 'smeygði henni fram yfir
höfuðið á sér. Þegar hann fór að losa
um beltið, þá stóð hún upp og gekk
yfir að speglinum, sem stóð við binn
vegginn.
„Þér eruð afar raunsær, Mr. Brad-
ley“, sagði hún.
Hann leit til hennar.
„Þér lieimtuðuð jú innblástur, Miss
Raya!“
Hún svaraði lionum ekki. í stað þess
sneri hún baki við honum og kveikti
sér i sígarettu. Þegar hann hafði klætt
'sig í náttfötin, fór hann í sloppinn
sinn sem hann einnig liafði komið
með, batt snúruna um mittið og
smeygði sér í inniskó.
„Eg er tilbúinn,“ sagði liann blátt
áfram.
'Hún sneri sér við. Gráu augun lienn-
ar virtu hann viðurkennandi fyrir sér.