Fálkinn - 06.03.1953, Page 5
FÁLKINN
5
Cana Zurncr
— eilíf leit að ást —
fjölskrúðugu tómstundalífi og liefir
engan áhuga á listum og íþróttum.
Vinnutími hans og svefntími eru hins
vegar regiu'bundnir, og hann er mjög
reglusamur við stjórn fyrirtækis síns.
Hann styðst ekki við nefndir i þeirri
stjórn, því að hann segir, að niður-
staða nefnda verði jafnan einhver
millivegur eða málamiðlun, en mála-
miðlun sé sjaldnast lausn, heldur sam-
sull. Þess vegna tekur Vance sjálfur
allar ákvarðanir, sem skipta máli,
innan fyrirtækisins. Hann ber alla
ábyrgðina, og þar með hreppir hann
lieiðurinn eða skömmina. Hann hneig-
ist þess vegna að nokkurs konar ein-
ræðisstjórn innan fyrirtækisins, þó
að hann hins vegar leyfi hverjum
starfsmanni fyrirtækisins að hringja
beint til sin og bera fram tillögur
sínar eða umkvartanir. Starfsfólkið
er 25 þús. manns, og ölhrni er heim-
ilt að hringja beint i innanfyrirtæki's-
númerið 496, þar sem Vance svarar
rólega og kurteislega: „Já, herra, ])að
er Mr. Vance, sem talar.“
Stofnendur fyrirtækisins eru bræð-
urnir Clement og Henry Studebaker,
sem hófu vagnasmíða fyrir 100 árum i
South Bend, en sú borg hefir síðan
átt vöxt inn og viðgang að mestu leyti
fyrirtæki þessu að þakka. Þrír bræður
þeirra gengu síðar í félagsskapinn,
og í höndum hræðranna fimm óx
fyrirtækið til vegs og virðingar. Síð-
u'.stu tvo áratugina iiefir fyrirtækið
mjög verið tengt tveim nöfnum, sem
áður hafa verið nefnd, nafni Harolds
Vance og Pauls Hoffman. Hoffman
hvarf frá aðalforstjórastarfinu nokkru
eftir stríð til þess að stjórna efna-
bagssamvinnustofnun Bandaríkjanna,
en þá tók Vance við stjórnartaum-
unum eftir að hafa verið næstæðsti
maður fyrirtækisins um alllangt skeið.
Paul Hoffman hefir nú hins vegar
tekið við forstöðu Ford-stofnunar-
innar.
Hinn 8. febrúar s. 1. varð Lana
Turner 32 ára, og 16 áru eru liðin
siðan hún lék fyrsta hlutverk sitt
i kvikmynd (hiutverk Mary Clay í
myndinni „Þeir-munu ekki gleyma“.).
Lana hefir nú um áratugaskeið verið
ein þeirra leikkvenna, sem mest um-
tal hafa vakið — ekki aðeins vegna
leikhæfileika '.sinna, heldur einnig
vegna ástriðna hennar í karlmenn,
föt, skartgripi, frægð, skemmtanir og
ást. Fullnægju liefir hún samt litla
fengið, þótt hún Hafi lifað kæruleysis-
lega og verið laus í rásinni. Henni
hefir ekki tekist að binda sig við
neinn karlmann, þótt hún liafi verið
gift þremur og trúlofuð — eða svo
gott sem trúlofuð — fjölda mörguni,
------ LITLA SAGAN --------
Ofurlítil
viðkynning
ALDREI er of varlega farið! Sérstak-
lega þegar maður er í siglingu. Það
fékk vinur vor, Jóhann Pétur að reyna,
þegar hann ávarpaði ungu dömuna
á Langasandi, rétt fyrir ncðan bað-
gistihúsið, og sagði við hana, frakk-
ur og djarfur eins og ungum manni
sæmir:
— Hvenær má ég hitta yður, ung-
frú?
Og unga daman hiásti höfuðið. En
svo sagði hún, alls ekki óvinsamlega:
— Eg er engin froken
— Það var leiðinlegt.
— Getur vel verið.
— Þér eruð gift?
— Já.
— Og maðurinn yðar?
— Hann er heima. Eg bý ein Iiérna
í gistihúsinu.
Jóhann Pétur sá sér leik á borði:
Kannske maður mætti ....?
Nú kom alvörusvipur á dömuna. —
Nei, maður getur það ekki. í fyrsta
lagi geri ég aldrei ‘svoleiðis, í öðru
lagi vita allir gestirnir að ég er gift
og að ég er mannlaus hérna. Hvað
haldið þér að fólk segði ef ég sæist
hér á gangi með yður?
— Það væri hægt að segja fólkinu
.... að ég væri maðurinn yðar og
hefði skroppið hingað til að heim-
sækja yður?
Unga daman stóð kyrr. — Jæja,
þér cruð þó að minnsta kosti alvcg
óvitlaus, ungi maður!
— Við erum þá sammála?
Hún hló og hristi höfuðið. —
Ómögulegt! Alveg ómögulegt!
En samt var það nú mögulegt.
Þegar Jóhann Pétur kom á gisti-
húsið með töskurnar sínar þremur
línium ’seinna — Irene hafði búið
þar í þrjár vikur — spurði hann:
— Hefir konan mín pantað her-
bergi handa mér hérna? Eg heiti
— Já. A þriðju hæð.
— Þakka yður fyrir.
Glaður og reifur fór Jóhann Pétur
upp á þriðju hæð, fór úr ferðafötun-
um og i betri fötin, og eftir nokkra
stund kom hann vonglaður og rogginn
— karlmenn eru alltaf svo gleiðgosa-
legir þegar þeir hafa heillað saklaust
kvenfólk — niður i borðsalinn. Einn
þjónninn kom til hans hvatur í spori.
— Eg vil helst borða með konunni
minni úti á svölunum, sagði Jóhann
Pétur. — Er það hægt?
— Það er því miður ekki hægl.
— Eru engin borð laus þar?
— Jú, það er vafalaust hægt að
finna borð þar. En konan yðar fór
fyrir einu lcortéri.
— Fór?
Nú fór Jóliann Pétur að gruna
margt.
— Fór? sagði hann aftur.
— Já.
— Oghað hún ekki fyrir nein skila-
boð til mín?
Þjónninn kinkaði kolli:
— Jú. GiStihúsreikninginn sinn fyr-
ir þrjár vikur. Hún sagði við mig:
Viljið þér gera svo vel að afhenda
manninum mínum þennan reikning.
Hann er nýkominn og hefir fengið
herbergi á þriðju hæð.
Dátinn: — Kapteinninn sagðist
skyldi skera af mér hausinn og fleygja
lionum i baunapottinn. Er það leyfi-
legt, korpóráll?
Korp.: — Hvað liausinn snertir, þá
er hann i sínuni fulla rétti, en hann
hefir ekki leyfi til að skemma baun-
irnar.
— Hve gamall ert ])ú, drengur
min n?
— Eg er á erfiðleikaárunum.
— Ilvað áttu við með því?
— Eg er of gamall til að gráta og
of ungur til að bölva.
enda virðast margir hafa lagt lag sitt
við hana í öðru skyni en því að bind-
ast henni til frambúðar.
Meðal þeirra karlmanna sem leikið
hafa stærstu hlutverkin í lífi hennar,
eru þessir: Greg Bautzer (hann slapp
frá henni), Artie Shaw (honum giftist
hún og varð að bursta skóna hans),
Steve Crane (giftist honum 1942 og
ól honum dóttur, sem Oheryl.heitir),
Turhan Bey (móðir hans vildi ekki,
að hann tæki slíka drós að sér),
Tyrone Power (hann flýði i faðm
Lindu Christian), Bob Topping (auð-
kýfingur, sem giftist henni óðfús, en
varð ennþá fegnari að sleppa), Petér
Lawford, Frank Sinatra (hann var
giftur og margra barna faðir), Howard
Hughes, Robert Hutton, Victor Mature
og nú síðast Argentínumaðurinn þern-
ando Lamas, sem nú siær mikið um
sig í Hollywood. En þeirra ástir virð-
ast ætla að verða skammvinnar líka.
Lamas er farinn að vera mcð Arlene
Dahl, sem er nýskilin frá Lex Barker.
Það yrði langt mál að telja upp allar
þær myndir, sem Lana hefir leikið
í við góða aðsókn i íslenskum kvik-
myndahúsum. Flestir munu þó minn-
ast mynda ein'.s og „Pósturinn hringir
alltaf tvisvar" (lék móti John hcitn-
um Garfield), „Honlcy Tonk“ (móti
Clark Gable), Johnny Eager (irióti
Bobert Taylor) og „Cass Timberlane".
Eva Baríok
Ungverska leikkonan Eva Bartok er
meðal þeirra Ieikkvenna, sem karl-
mennirnir í Hollywood hafa snúist
mest i kringum síðustu mánuðína, og
ætli þessi mynd, sem hér birtist af
lienni, að vera nægileg skýring á því.