Fálkinn - 24.04.1953, Page 3
FÁLKINN
3
»Væringjar« 40 ára
Væringjar 1913.
Á morgun, sumardaginn fyrsta, cru
rétt 40 ár síðan séra Friðrik Friðriks-
son forstjóri K.F.U.M. í Reykjavik
stofnaði „Væringjafélagið", en það
var stofnað á sumardaginn fyrsta
1913, sem þá einnig bar upp á 23.
apríl.
Til aðstoðar sér tók séra Friðrik
meðlimi úr aðaldeild (A-D) K.F.U.M.,
þá Ársæl heitinn Gunnarsson, Pál V.
Kolka lækni, Jóhannes Sigurðsson
Séra Friðrik Friðriksson.
prenlara, Ilall horleifcson söngstj.,
Jón Guðmundsson deildarstj., Pál
Sigurðsson prentara, Pétur heitinn
Helgason, Stefán Runólfsson og Filip-
pus Guðmundsson, sem hann skipaði
alla undirforingja sína. Aðrir mcðlim-
ir Væringja voru drengir úr K.F.U.M.
á'aldrinum 9—15 ára. Þegar Væringj-
ar höfðu starfað um nokkurn tíma
tókst séra Friðrik á liendur ferð lil
Ameríku, en vegna stríðsins 1914—18
varð dvöl lians lengri en liann bafði
gert ráð fyrir í upphafi, en Axel V.
Tulinius síðar skátahöfðingi tók við
stjórn Væringja þegar séra Friðrik
fór vestur um haf. Klæðnaður Vær-
ingja voru kirtlar og skikkjur, klæðn
aður þessi var að sið Væringja i
Miklagarði.
Fyrst framan af var starf Væringja
falið í kristilegum samkomum og söng
i leikfimissal barnaskólans (Miðbæj-
arbarnaskólans), og alls konar leikj-
um úti við þegar veður leyfði. Allir
Væringjar, sem starfað höfðu í félag-
Axel V. Tulinius fyrsti skátahöfðingi
íslands.
inu í eitt ár og sýrit áhuga i
starfinu, fengu lítinn silfurhnapp
með stöfunum P.X., sem borið
var á vinstri uppliandlegg. Árið 1915
v’ar stofnaður foringjaskóli innan
Væringja, voru þeir Ársæll, Hallur,
Jóhannes og Páll (Kolka) gerðir að
bálfdeildarforingjum og aðstoðuðu
Tulinius við kennsluna. Að lokinni
æfingu i Örfirisey 28. mars 1915 voru
eftirtaldir drengir útnefndir undir-
foringjar: Axel Gunnarsson, Björn
Steffensen, Helgi Briem, Haraldur Á.
Sigurðsson, Sigurður Gunnarsson,
Carl I). Tulinius, Geir S. Ilaukdal,
Sigurður S. Ilaukdal, Þorbergur Er-
lendsson, Guðmundur Guðmundsson,
Ingi Þorsteinsson og Osvald Knud-
sen. Þá voru einnig útnefndir sem
Frai-ihald á hls. 14.
Páll Ivolka læknir, Ársæll heitinn
Gunnarsson og Jóhannes Sigurðsson
prentari.
Stjórn Félags íslenskra bifreiðaeige nda og ritstjóri blaðs þeirra, Ökuþórs.
Talið frá vinstri: V.iggó Jónsson ritstjóri Ökuþórs, Aron Guðbrandsson,
Magnús H. Valdimarsson, Sveinn T orfi Sveinsson formaður, Axel Sveins-
son, Sigurður Jónasson og Oddgeir Bárðarson. Sigurð Helgason vantar
á myndina.
Klti isMn Nfreiöieigenda 20 dra
Starfsemi Félags íslenskra bifreiða-
eigenda er nú mikil og vaxandi. Liðin
eru rúm tuttugu ár frá stofnun þess,
en starfsemin lá niðri á styrjaldar-
árunum. Aðalhvatamaðurinn að stofn-
un félagsins og fyrsti formaður þess
var dr. Helgi Tómasson, en á síðasta
aðalfundi var Sveinn Torfi Sveinsson
kjörinn formaður í stað Arons Guð-
brandssonar, sem verið hefir aðal-
driffjöður félagsins um nokkurt skeið,
en baðst nú undan endurkosningu.
Félagið hyggst beita sér fyrir því
að fá afnotagjöld felld niður af út-
varpstækjum í bifreiðum félagsmanna,
enda greiði þeir afnotagjöld af út-
varpstækjum, sem þeir liafa lieima
hjá sér. Tryggingamálin eru ofarlega
á baugi hjá félaginu um þessar mund-
ir. M. a. taldi aðalfundurinn að af-
nema bæri afsláttarfyrirkonmlagið á
bifreiðatryggingunum, því að það
hefði áhrif i þá átt, að bifreiðarstjórar,
sem tjóni yllu, reyndu að aka burt.
Snar þáttur starfseminnar liefir verið
fyrirgreiðsla fyrir þá, sem fara utan
með bifreiðar sínar. Á síðasta ári fóru
08 félagsmenn utan með bifreiðar, en
107 árið áður. Þá er og skemmtiferð
með gamalt fólk orðin fastur liður á
starfsskrá félagsins og margt fleira
bæði í þágu bifreiðaeigenda sjálfra,
almenns umferðaöryggis o. fl.
í sambandi við 20 ára afmælið voru
þeir dr. med. Helgi Tómasson, Berg-
ur G. Gíslason forstjóri og Aron Guð-
brandsson forstjóri, kjörnir heiðurs-
félagar.
Stœrsti almenníngsvogn landsins
Bifreiðástöð Steindórs hefir látið
gera nýjan aimenningsvagn, sem tek-
ur 58 manns í sæti, og verður vagn
þessi hafður á leiðinni Keflavík—
Reykjavík. Þetta er stærsta langferða-
bifreiðin, sem hér hefir verið byggt
yfir. Vagninn er af Volvo-gerð, 12
metra langur, 2,55 m. á breidd og ber
13 tonn. Hann gengur fyrir diesel-
hráolíu.
Yfirbyggingin er gerð i Bilasmiðj-
unni h.f. og er hin vandaðasta. Far-
angursgeymsla er undir gólfum og
póstkassa hefir verið komið fyrir á
annarri hliðinni. Ýmsar fleiri nýj-
ungar eru einnig í útbúnaði þessa
skemmtilega vagns. Ætlunin er að
smíða annan sams konar.