Fálkinn - 24.04.1953, Síða 5
FÁLKINN
5
★ ★ * ★
Zsa 'Zsa Qabor -
»AmerískÍr karlmenn
eru sirákaklánar.«
HIÐ undarlega nafn, Zsa Zsa Gabor,
liefir átt miklum vinsældum að fagna
að undanförnu í kvikmyndaheimin-
um. Zsa Zsa er ungversk að uppruna
og hefir ekki verið við eina fjölina
felld í ástamálum. Hún var eitt sinn
fegurðardrottning Ungverjalands og
hefir verið gift þremur mönnum. Hinn
kunni leikari Georg Sanders er nú-
verandi eiginmaður hennar.
í grein, sem birtist nýlega i See,
segir Zsa Zsa að amerískir karlmenn
séu strákakjánar. Fara hér á eftir hrot
af umm'ælum hennar í þessari grein:
— Eg hefi verið sökuð um það, að
ég væri meira fyrir karlmenn en góðu
liófi gegndi. Eg reiðist slikum uni-
mælum. Það er gefið í skyn, að ég
láti gamminn geisa í „kokkteil-boð-
um“, fari á fjörurnar við gifta menn
o. fl. Það er sagt að ég beiti lokkandi
brosi, láti vasaklúta detta og depli
augunum á ótviræðan bátt. Þessi og
önnur dauðurseinkenni eru mér eign-
uð. Eg reiðist slíkum ásökunum, enda
þótt ég telji, að allar konur þurfi að
vera dálítið daðrandi í framkomu.
En ég er kona, ekki að ytri ein-
kennum og hvötum einum saman,
heldur að stöðu eða atvinnu, ef þið
viljið orða það svo. Þess vegna eru
karlmenn tömstundagaman mift. Eg
kæri mig ekki um þá alla, en minn
skerf. Sumir krækja sér í fiðrildi,
liafa þau heim með sér og kynna sér
þau. Eg kynni mér karlmenn.
Eg á heima í Ameríku, og mér fell-
ur dvölin þar vel. En Ameríku
vantar tilfinnanlega nokkuð, sem kon-
ur ein og ég þrá — fullþroskaða karl-
menn.
Það er allt annað en ánægjulegt
að grandskoða venjulegan amerískan
karlmann. Hann er meðalmaður á
bæð, andlitið dálítið hörkulegt,
skrokkurinn mikill og fæturnir eins
og stoðir. Hendurnar eru grófar og
úfið hárið tekið að þynnast í kollinn
og grána í vöngum, þegar hann er
25 ára gamall. Þær stundir sem hann
er ekki að gorta af sjálfum sér og
blóta, þá tottar hann vindling eða
tyggur vindil. Fötin eru ýmist aðskor-
in eða hólkvíð.
Og kvenfólk kann hann ekki að um-
gangast. Það gildir jafnt um gifta sem
ógifta. Hugsið ykkur bara, hvernig
bann nær fundum kvenna. Hann
gengur þær uppi, flautar á þær, ef
liann er í bil, stelur símanúmeri þeirra
frá kunningja sínum eða króar þær
af í kokkteil-boðum og hellir í þær
viskýi.
í samkvæmislifinu er venjulegur
ameriskur karlmaður hálfgerður mis-
gjörðamaður. Hann kærir sig ekki um
aðrar veislur eða skemmtanir en þær,
þar sem nóg er af víni og stelpum.
Matarveislur, þar sem kveikt er á
kertaljósum til hátiðabrigða, falla
honum ekki í geð. Sígílda tónlist
skilur liann ekki, en honum lætur vel
hávaðakenndur jazz á skemmtunum,
þar sem annar livor maður stendur
á hausnum.
Ameríkumaður tjáir stúlku ást sína
með því að halda í hönd hennar í
kvikmyndahúsi eða á fjölbragðaglímu-
sýningu. Hann er alltaf tilbúinn til að
forfæra hvaða stúlku sem er. En verði
hann ástfanginn, þá situr hann að-
gerðarlaus og eins og í dáleiðslu. Þá
her hann svo mikla „virðingu“ fyrir
henni, að hann snertir hana ekki.
Þegar hann kemur út úr barna-
skóla eða framhaldsskólum, þá hrakar
lestrarlöngun hans og bókmenntagildi
lestrarefnisins. Hann les smásögur í
reyfaraútgáfum, íþróttasíður blað-
anna, leynilögreglusögur og Kinsey
skýrsluna. Amerikumönnum hryllir
við Kinsey skýrslunni.
Zsa Zsa Gabor beldur þessum lýs-
ingum áfram og tekur fyrir ýmsar
sérstakar manngerðir meðal Banda-
ríkjamanna. Er því að mestu sleppt
hér, en síðan haldið áfram með annað:
— Vinsælustu karlmennirnir eru
auðvitað kvikmyndaleikararnir og þá
um leið svipaðar manngerðir. Margir
leikaranna eru mjög skemmtilegir og
athyglisverðir, en flestir eru skegg-
lausir hvolpar með stór, sljó augu og
sítt hár. Slík fyrirbæri eru hvergi
hátt skráð nema í Ameríku. Heldur
kysi ég að vera ein með strokufanga.
Kvennamenn? Uss og svei. Þeir eru
börn i þeim efnum.
Ameríska kvenfólkið ber ábyrgð á
þessum afsprengjum. í Evrópu gift-
ist það ungt, oft aðeins 16 eða 17 ára.
í Ameriku eru ]iær á skólabekkjunum
fram yfir tvítugt og flestar reynslu-
lausar í kynferðismálum. Þær eru
hvorki stelpur né konur, en þó hvort
tveggja, stelpur að reynslu, en konur
að aldri. Svo giftast jia'r sömu óskapn-
aðsómyndunum úr hópi karlmann-
anna.
Viðbrögð Amerikumanna gagnvart
kvenlegri fegurð eru hláleg og barna-
leg. Uppáhaldsaðferðin til að tjá
hrifninguna eru barnaleg hróp: Wow!
Margir þeirra, sem ganga best frám
i ])vi að eyðileggja veggfóður með
])vi að líma upp myndir af léttklæddu
kvenfólki og eru iðnastir við að elta
stúlkur, sem vagga i mjöðmunum,
eru kjarklausir með öllu, ])egar á
hólminn kemur og kunna ekki að
svara fyrir sig, ef kvenmaður yrðir á
þá. Þeir eru blessuð börn.
Mér fyrir mitt leyti finnst karl-
menn fyrst verða eftirsókriarverðir,
þegar þeir cru um fertugt. Maðurinn
minn er fertugur, þrekmikill og sterk-
ur en ])ó nærgætinn og ástúðlegur.
Það eru fáar óskir, sem liann lætur
ófullnægt.
Ef ég væri spurð, hverjir mér fynd-
isl athyglisverðustu mennirnir, sem
nú eru uppi — fyrir utan manninn
mann — þá yrði svarið: Winston
Ghurchill, Ernest Hemingway, Ridge-
way hershöfðingi, Conrad Hilton og
Douglas MacArthur.
En Ameríkumaðurinn, sem er 21
árs eða litið eitt ehlri, þarf að fá
lexiu. Hann þarf að komast aftur á
kné móður sinnar og verða flengdur
og fá nokkra móðurkossa.
Hann kann ekki að lifa með konum.
Ef hann hittir einhverja, sem honum
líst á, þá vill hann, að hún verði móð-
ir hans en ekki konan hans.
En ég held, að uppvaxandi kynslóð
verði betri og hugsa því, að allt standi
til bóta. Að minnsta kosti leist mér
herskólanemendurnir í Annapolis og
West Point girnilegir, þegar ég var
þar á ferð nýlega.
Handa konum Ibn Saud.
I bifreiðasmiðju i Cincinnati er
verið að smíða 20 bifreiðar með alveg
sérstakri gerð. Það er arabisk-ame-
riska olíufélagið Aramco sem hefir
pantað bifreiðarnar og ætlar að gefa
þær Ibn Saud konungi, til að nota
banda þokkameyjunum í kvennabúri
sínu, til þess að flytja þær á milli höf-
uðstaða sinna tveggja, Riyadh og
Mecca. Ibn Saud er 72 ára og sam-
kvæmt lögum má liann eiga fjórar
eiginkonur, en enginn veit bve marg-
ar dönmr hánn hefir í kvennabúrinu.
Bifreiðarnar eru með sex dyrum og
allar rúður d þeim — nema framrúðan
— eru úr sérstakri tegund af svörtu
spegilgleri, sem er þannig að sá sem
í bifreiðinni situr getur séð út, en
hins vegar sést ekki inn i bílinn utan
frá. Sams konar gler er fyrir aftan
bílstjórasætið. Bifreiðarnar kosta um
hálfa milljón dollara.
*
Hin fagra kvikmyndaleikkona Evelen
Keyes, sem lék í myndinni „Because
you are mine“, gekk fyrir Elisabetu
Englandsdrottningu, þegar sérstök
sýning var haldin fyrir „Hennar Há-
tign“ í vetur. Sést Evelen hérna á
myndinni eins og hún leit út, er hún
gekk fyrir drottninguna.
VERÐLAUNAÞRAUT:
»Kínvershd dsoradvölin«
VerSlaun lcr. 500.00
og kr. 200.00
Hér eru 2 myndir (nr. 7 og 8) i
Kínversku dægradvölinni sem skýrð
var í 13. tbl. Fálkans.
7. 8.
Fáið ykkur kassa af myndskreyttu
aluminiumplötunum, sem fást i mörg-
um verslunum og glimið við verð
launaþrautirnar með því að gera úr
þeim myndir þær, sem Fálkinn birtir.
Verslunum og öðrmn úti á landi,
er bent á að hægt er að panta Kín-
versku dægradvölina hjá Leikfanga-
gerðinni Langholtsvegi 104 og Heildv.
Vilhelms Jónssonar, Miðtúni 50 simi
82170. Sent verður i póstkröfu út á
land ef óskað er.
Takið þátt í keppninni. Látið ekki
ráðningu á neinni mynd falla niður.
Maurice Chevalier, hinn vinsæli
söngvari, kom fram á Hippodrome í
London í vetur, og um það leyti var
þar á döfinni „mæðrasýning", sem
Chevalier var fenginn til þess að
opna. — Hér sést hann vera að þvo
ungbarni og sýna með því hæfileika
sína til barnagæslu.
Chcvalier í klaustur?
Frá París kemur sú furðufregn að
Maurice Chevalier, leikarinn og
gamanvísnasöngvarinn, sé að liugsa
um að gerast munkur. Hann kvað
hafa fengið sig fullsaddan á glysi og
á síðkastið
gjálifi veraldarinnar og sést upp á
síðkastið oft með kaþólskujn prest-
um. í vetur var hann gesturhjá munk-
unum i klaustrinu í Cannes og las
fyrir þá alvarleg ljóð. — Eg er máske
ekki nógu þroskaður lil að vinriá
klausturheitið ennþá, segir Cheva-
lier„ — en mér finnst orðið miklu
skemmtilegra að vera með menntuð-
um munkum en á leiksviðinu.