Fálkinn - 16.10.1953, Qupperneq 3
FÁLKINN
Kvöldskemmtun
3
Páll Isólísson sextugur
Dr. Páll ísólfsson.
Dr. Páll ísólfsson steig
yfir sex áratuga þrösk-
uldinn á mánudaginn
var og að verðleikum
var dagsins minnst
margvíslega, eigi aðeins
af þeim, sem áhuga hafa
á tónlistarlífi heldur og
fjötda annarra. Því að
víst er um það, að
ef skoðanakönnun færi
fram á þvi hver vin-
sælastur væri allra
núlifandi íslendinga,
mundi Páll ísólfsson
verða settur ofarlega, ef
ekki efstur.
Þegar litið er yfir
tónlistarlíf íslendinga
síðustu 30 árin gnæfir
nafn Páls þar yfir önn-
ur. Þegar hann kom heim frá námi i
Leipzig fyrir rúmum 30 árum var fiest
með öðrum svin en nú er orðið. Þá gat
ekki heitið að hljómsveit væri til í
Reykjavik, en söngfélögin og Lúðra-
sveitin voru ein um „músiklífið". Nú
hefir svo um skipast að hér mun áhugi
á tónlist vera engu minni en í miklu
eldri menningarborgum nágranna-
þjóðanna. Við eigum tónlistarskóla,
sem nýtur lilutfallslega miklu meiri
aðsóknar en tilsvarandi skólar á Norð-
urlöndum, við eigum góða hljómsveit
og söngfélög. Og við eigum orgelsnill-
ing, sem er hlutgengur hvar sem er í
veröldinni. Og alls staðar hefir Páll
ísólfsson verið að verki, beinlínis
eða óbeinlínis.
Hér eru engin tök á að lýsa ævi-
starfi dr. Páls, enda hafa dagblöðin
þegar gert það. En það er gleðilegt
að liafa séð þess vott að flestir kunna
að meta hið mikla starf hans og iiafa
viljað sýna honum sóma á þessu af-
mæli hans. Fjöldi gjafa bárust hon-
um og heillaóskaskeytum rigndi yfir
hann. Og Þjóðleikhúsið minntist hans
með veglegri samkomu á mánudags-
lcvöldið, þar sem farið var með ýms
verk eftir tónskáldið, en Davið Stef-
ánsson og Vilhjálmur Þ. Gislason
fiuttu ræður. Var öllu þessu útvarpað.
Fálkinn flytur dr. Páli innilegar
þakkir fyrir l)að sem liðið er og árn-
ar honum allra heilla í starfi ókom-
inna ára. *
Rússneskir listamenn
í Reykjavík
Vera Firsova.
Um þessar mundir eru hér á landi
rússneskir listamenn á vegum MÍR.
Síðastliðinn sunnudag liöfðu þeir
fyrstu tónleikana og sýndu listdans
í Þjóðleikhúsinu.
Mesta athygli vakti söngkonan
Vera Firsova, einsöngvari frá Stóra
leikhúsinu í Moskvu. Hún er mjög
þekkt söngkona og hefir sungið fjöl-
mörg óperuhlutverk. Þá var hinum
kornunga fiðluleilcara Rafael Sobol-
evski mjög vel fagnað, og listdönsur-
unum Inna Israeléva og Svjatoslav
Kutnetzov ásamt píanóleikaranum
Aleksander Jerokin.
Rafael Sobolevski fæddist 1930. 5
ára gamall fór hann að leggja stund
á fiðluleik hjá prófessor Tseitlin,
stofnanda fyrstu sinfóniuhljómsveit-
arinnar án stjórnanda. 1953 lók
hann þátt í alþjóðakeppni í fiðlu-
leik í París og fékk önnur verðlaun.
Sem stendur vinnur Rafael Sobolevski
að doktorsritgerð við konservatoriið
i Moskvu undir handleiðslu prófessors
Tsiganovs, fyrsta fiðluleikara Beet-
hovenskvartettsins í Moskvu.
Vera M. Firsova hóf tónlistarnám
við músíkskólann í Ivanovo árið 1939,
og við konservatoríið í sömu borg ár-
ið 1943. 1947 lauk hún námi við
konservatoríið og gerðist sama ár
söngkona við Stóra leikhúsið i
Moskvu.
Inna Israeléva fæddist 1923. 9 ára
gömul tók hún að leggja stund á
ballelt við ballettskólann í Moskvu.
Hún lauk námi þar árið 1941 og hefir
síðan starfað við Leningrad-ballett-
inn og óperuna. 1951 var hún sæmd
Stalínverðlaunum fyrir dans sinn í
ballettinum „Sjurale“.
Svjatoslav Kutnetzov fæddist 1930,
og lióf ballettnám 9 ára gamall. 1950
lauk hann námi við Balléttskólann í
Leníngrad. Sama ár var hann ráðinn
sem sólódansari við Leningrad-ball-
ettinn þar sem hann fer með aðallilut-
verkin. *
* * *
Hallbjörg Bjarnadóttir.
Fegrunaríélagsins
Fegrunarfélag Reykjavíkur hefir nú
tekið upp nýjan lið i starfsemi
sinni. Það eru kvöldskemmtanir með
kabarett-sniði, og liyggst félagið með
þvi afla sér fjár til þess að geta fært
út kvíarnar í þeirri viðleitni sinni að
prýða bæinn.
Fyrsta kvöldsýningin var i Sjálf-
stæðishúsinu á sunnudaginn. Hús-
l'yllir var og skemmti fólk sér liið
besta. Ilallbjörg Bjarnadóttir skemmti
m. a. með því að herma eftir fræg-
um söngvurum eins og Paul Robes-
son, A1 Jolson, Gigli, Stefáni íslandi
og fleirum. Enska fegurðardisin
Ilorothy Neal og félagi hennar af-
hjúpuðu líkamsfegurð sína svo sem
sæma j)ótti og skemmtu á ýmsan
hátt annan. Hraðteiknarinn Fini
teiknaði og sýndi einnig ágætar skop-
myndir við mikla hrifningu allra við-
staddra.
Dorothy Neal og félagi hennar.
Kabarettsýning Sjómannadagsráðs
Undanfarin ár hefir
Sjómannadagsráð efnt
til fjölbreyttra kabarett-
sýninga með erlendum
skemmtikröftum. Hafa
sýningar þessar hlotið
feiknamiklar vinsældir,
enda jafnan vel til
þeirra vandað. Allur á-
góði hefir runnið til
byggingar dvalarheim-
ilis aldraðra sjómanna.
Nú í vikunni hefjast
sýningar á nýjum kab-
aretti, og er talið, að
hann muni vera einn sá
besti, sem hér hefir
gefist kostur á að sjá.
Undirbúning sýning-
anna, þ. á. m. ráðn-
ingu skemmtikraftanna,
hefir Einar Jónsson
annast nú sem endra-
nær.
Skemmtikraftarnir, sem
nú koma fram á kabar-
etti Sjómannadagsráðs,
eru þessir: Sjö ára göm-
ul telpa, sem Gitte heit-
ir og leikur á xylophon.
Hún hefir náð feykileg- GUte leikur á xylophon.
um vinsældum viða um Norður- á hjólaskautum, og þýska dans-
Evrópu. Þrjár Dubowy’s (tvær þýsk- parið Collings sýnir skopstælingar á
ar og ein portúgölsk) sýna listir Framhald á bls. 14.