Fálkinn - 05.12.1953, Síða 10
10
F Á L K I N N
Með hatt og í kápu úr reyrrauðu flaueli talar Margaret Itose við tískukóng-
inn mikla, Christian Dior.
MARGARET ROSE
VI. GREIN.
í PARÍS.
EN París beið eftir henni og um
kvöldið fór Margaret Rose með næt-
uriestinni til Paris.
Þegar hún kom þangað hyilti fjöldi
Parísarbúa hana, er þeir mættu vagni
hennar á leiðinni frá járnbrautar-
stöðinni til enska sendi’herrabústa'ð-
arins í Rue de Fauborg Sl. Honoré.
Og þar biðu hennar ýms opinber
störf.
Klukkutima eftir að hún kom þang-
að var hún tilbúin lil að taka á móti
blaðaljósmyndurum í garði sendi-
herrabústaðarins — og síðan að byrja
á dagsverkinu.
Eftir hádegisver^inn hjá Auriol
forseta og frú hans, í Elysée-höllinni,
varð hún að drekka te í hallargarð-
inum og láta Ijósmynda sig á meðan.
Og síðan hafði hún fataskipti undir
dansleik, sem átti að halda fyrir 150
gesti um kvöldið -— flest ungt fólk.
Klukkan var yfir 3 er hún komst
í bólið fyrstu nóttina, og eftir fárra
tíma svefn varð hún að byrja nýjan,
langan dag, sem hófst með guðsþjón-
ustu í ensku kirkjunni. Síðan fór hún
i skemmtiferð út i Fontainebleauskóg-
inn, til Barbizon, en ])angað hafa
margir frægir málarar sótt sér fyrir-
myndir.
Er hún sat og horðaði hádcgisverð
i litlu veitingahúsi i Charmett —
komú nokkrir skógarvinnumenn inn
og þekktu þeir hana og heilsuðu henni
með hrifningu. — Frá Fontaineblenu
fór hún beina leið til París aftur —
inn i siálft hjarta borgarinnar og skoð-
aði Notre Dame-kirkjuna og Ile de
la Cité, sem verið hefir miðdepill
borgarinnar öldum saman. Hún ók
iafhægt um elstu þröngu göturnar i
sögulegustu hverfunum í París og fékk
að sjá hina dásamlegu Sainte Chapelle
með hinum fíngerðu oddmynduðu
turnum og Conciergérie-fangelsið
með öllum hryggðarendurminningun-
um frá stjórnmálabyltingunni miklu.
Daginn eftir fór hún til Versailles og
skoðaði allar frægu hallirnar og garð-
ana fögru. Og hún fékk líka að sjá
gosbrunnana gjósa vatni, en það fær
skemmtiferðafólk venjulega ekki nema
á helgum og tyllidögum.
Það sem henni þótti mest til koma
i Versailles var Petit Trianon, húsið
sem Lúðvík 15. byggði handa madame
du Barry. Henni þótti hins vegar
skítur tjl koma að sjá stóru hallirnar
og hina furðulegu gosbrunna. Hún
hefir alltaf verið hrifnust af litlum
húsum. Þegar hún var barn hafði hún
ekki meira gaman af neinu en brúðu-
húsum og hún var ákaflega natin við
að prýða leikstofuna sína.
Margaret var hrifin af svefnher-
bergi dróttningarinnar, vinnustofu
hennar og öllum smástofunum. Aug-
un tindruðu er hún kom út í garðinn
og sá alla litlu skálana, sem Marie
Antoinctte og hirðmcyjar hennar
höfðu notað ])egar þær voru að leika
hjarðmeyjar og fjósakonur.
Um kvöldið snæddi húri miðdegis-
verð í París, á hinum gamla veitinga-
stað Lapérouse, sem er frægur fyrir
alla frönsku þjóðréttina sina, en
minni og ekki eins liávaðasamur og
flestir hinir yngri gildaskálar í
heimsborginni. Á eftir gekk hún
brekkuna upp að Sacré Coeur-kirkj-
unni, sem blasir við uppi á hæð,
mjallhvít. Þaðan sér yfir alla Parísar-
borg. Um sama leyti og hún kom
þangað fóru Ijósa-auglýsingarnar að
birtast frá öllum litlu kaffihúsunum
og „kabarettunum" á Moritmartre. En
það var komið að miðnætti þegar
prinsessunni gafst tóm til að komast
á „kabarett“ í stórborginni.
Þegar hún kom inn í salinn lék
’liljómsveitin „Mean to Me“, og prins-
essan þekkti undir eins lagið. Hún
sneri sér hlæjandi að samferðafólk-
inu og sagði: — Þetta lag langar mig
til að tileinka öllum blaðaljósmynd-
urum!“
Þannig lauk öðrum degi hennar í
Paris. Sá þriðji var jafn annríkur.
Við hádegisverð sem sir Oliver
Harvey sendiherra hélt henni til
beiðurs, veitti hún móttöku Jjessum
stórmennum: Ernest Bevin utanríkis-
ráðherra Breta, Schuman utanríkis-
ráðherra Frakka, borgarstjóra París-
ar, Pierre de Gaulle og frúm þeirra.
þJm kvöldið sat hún miðdegisverð sem
Hood lávarður hélt fyrir hana, en
hann er samverkamaður breska sendi-
ráðsins. En á „milli mála“ gafst henni
þó timi til að sjá dálítið, sem hana
langaði mikið til að sjá. En það var
tískusýning hjá Christian Dior.
Síðasta, fjórða daginn, sem hún v.ar
í Paris, fór hún í verslanir. Hún kom
í margar tískuverslanir, en líka kom
hún í leikfanga verslanir, og þar keypti
hún meðal annars „teddy-bangsa“
handa Charles systursyni sínum. Og
svo flaug hún til London.
ÞEGAR prinsessan var í fyrsta skipti
í París heyrðjst hún segja, hvað eftir
annað: — Eg verð að koma hingað
aftur. Og svo kom hún aftur, aðeins
hálfu þriðja ári seinna. Og þá var
hertogafrúin af Kent, liin fagra gríska
prinsessa Marína, með henni.
Þegar Margaret sleig út úr flug-
vélinni var hún ldædd nærskorinni
„dragt“ nteð ’bryddingum úr gráum
feldi. Og Margaret sagði, að nú ætl-
aði hún að sjá alla þá hluti Parísar,
sem hún hafði farið á mis við í fyrra
skiptið.
Morguninn eftir sagði hún: — Nú
langar mig að sjá Paris efst ofan itr
Eiffelturninum!
Þetta var seint í nóvember og alls
ekki hentugur tími til að njóta útsýnis
úr Eiffelturninum. En sem betur fór
var heiðskírt veður þann daginn.
Meðan þau voru á uppleiðinni í lyft-
unni, breiddist heiðríkjan og fegurð-
in yfir Parísarborg í allri sinni dýrð.
Útsýnið úr turninum var guðdómlegt.
Daginn eftir fór Margaret í tísku-
sali Jean Desse’s. Varð hertogafrúin
af Kent henni samferða og svstir
hennar, Olga erkihertogafrú af Grikk-
landi. Þeim voru sýndar meira en
sextiu og finun nýjustu gerðir kjóla
frá þessari tískuverslun. Margaret
horfði mest á brúðarkjól úr ljósbláu
silki.
Eitt af því hátíðlegásta, sem skeði
í þessari Parísarferð var dansleikur
cinn mikill, sem var haldinn til ágóða
fyrir Hertfordspitalann enska. Þetta
FÆR EKKI AÐ FARA í SKÓLANN. — Eva Spiers, 13 ára telpa, var í vetur rekin úr enskum skóla fyrir að
mæta þar í skíðabuxum. Faðir hennar vildi ekki una þessu og skaut inálinu til dómstólanna. Dómurinn gckk
honum í vil, en skólastjórinn, sem er kvenmaður neitaði að hlýða úrskurðinum. Og svo skeður það skrítna,
að faðirinn er dæmdur 10 shillinga dagsektir fyrir að telpan kemur ekki skólann, en faðirinn vill ekki gefa
skólastýrunni eftir að láta telpuna fara í skólann í kjól. — Hér sést Eva horfa á eftir skólasystkinuin sínum.