Fálkinn


Fálkinn - 13.08.1954, Blaðsíða 3

Fálkinn - 13.08.1954, Blaðsíða 3
FÁLKINN 3 Um miðjan júlí urðu mikil flóð víða um Mið-Evrópu og ollu þau geysilegu tjóni. Mest urðu flóðin í Dóná, og gerðu þau fyrst mikinn usla í Þýska- landi og Austurríki, en síðar í Ung- verjalandi, Júgóslavíu og víðar. Hundruð þúsunda fólks missti heimili sín og margir týndu lífi. Hóp- ar manna fóru rænandi og ruplandi um hinar yfirgefnu íbúðir og í kjöifar þeirra komu rotturnar og bjuggu um sig í þeim blutum húsanna, sem upp úr vatninu stóðu. I þýsku borginni Passau, sem er rétt við landamæri Austurríkis, jjar sem áin Inn fellur í Dóná, urðu gífur- legar skemmdir. Borgarstjórinn sendi út neyðarkall, þar sem hann sagði borgina vera að sökkva. Svo er mál með vexti, að undirstaða borgarinnar er ótraust, því að jarðvegurinn er laus, og þoldi þvi illa vatnselginn. Um 80 kílómetra fyrir suðaustan Passau er austurríska borgin Linz með um 200 þúsund íbúa. Þar var á- standið óskaplegt, og lögregluþjónar höfðu fyrirmæli um að skjóta hiklaust á þá, sem staðnir voru að ránum úr hinum mannlausu húsum. Þá voru horfurnar á tíma ískyggilega i Vínar- borg og nágrenni og í Bratislava í Tékkóslóvakiu. Vatnsborð Dónár liækkaði þarna um 8 metra frá því, sem venjulegt er. Þegar flóðin bárust suður á ung- versku sléttuna og til Júgóslavíu, fóru blómlegustu akrar þessara landbún- aðarþjóða undir vatn og mikið af upp- skerunni eyðilagðist, þótt nokkru væri reynt að bjarga með því að skera liveitið hálfvaxið. Fólk var flutt burt univörpum af þeim svæðum, sem búist var við flóðum á og búpeningi bjargað undan valnselgnum. Flóðin í Dóná Á landamærum Austurríkis og Þýskalands gerðu flóðin í Dóná mikinn usla, einkum í borginni Passau og í ná- grenni hennar. í bænum Ncuhaus, sem er rétt við þýsk-austurrísku landamærin varð klaustur nokkurt hart úti. Myndin hér að ofan er tekin af klaustrinu, er vatnsborð árinnar fer ört hækkandi. f vor var nýfæddur íslenskur ríkisborgari skírður suður í Vín. Hann heitir Sigurjón og er sonur Högna Sigurjónssonar frá Vestmannaeyjum og Hrannar konu hans, en þau stunda nám í Vínarborg. Dr. Paul Szenkovits, aðalræðis- maður fslands í Vín, gerðist guðfaðir drengsins, og amma hans, frú Þórunn Stefánsdóttir, móðir frú Hrannar, ferðaðist alla leið til Vínar til þess að vera viðstödd skírnina. Þar var einnig viðstödd Ásta barónsfrú Jaden, elsti fslend- ingur í Vínarborg. Á myndinni sjást: frú Ásta Jaden, Högni Sigurjónsson, frú Hrönn (með Sigurjón litla í fanginu), frú Þórunn móðir hennar og dr. Szenkovitz aðalræðismaður. Austurríska borgin Linz, sem hefir rúmlega þrisvar sinnum fleiri íbúa en Reykjavík, varð mjög hart úti í flóðunum. Meiri hluti ibúanna var fluttur burtu og lögregluþjónar urðu að beita skotvopnum til að hefta skálmöld í borginni, því að uppivöðslulýður fór rænandi og ruplandi um hin mannlausu hús. Mikil hætta er ennþá á, að drepsóttir gjósi upp, því að rottur hafa óhreinkað allt drykkjarvatn og hreiðrað um sig í hýbýlunum.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.