Fálkinn


Fálkinn - 13.08.1954, Síða 4

Fálkinn - 13.08.1954, Síða 4
4 FÁLKINN MILLI HAFSBOTNS OG HIMINS. 5. GREIN. Kalskipið „Trieste“ Þó að fyrsta köfunartilraun Aug. Piccard tækist illa, reyndi hann aftur og nú var undirbúningurinn miklu vandaðri en í fyrra skiptið. Þeir eru furðanlega líks eðlis sumir mestu örðugleikarnir sem við er að stríða þegar farið er upp í háloftin og niður í hafdjúpin. Maðurinn er skapaður til að halda sig næst yfir- borði jarðar, þar sem nægt súrefni er í loftinu og lítil kolsýra. Og ioft- þrýstingurinn liæfilega mikill. Það er auðvelt að fara svo sem 5000 metra upp í loftið í opnum „gondol" eða loftbelgskörfu. En sé farið hærra verður nauðsynlegt að hafa með sér súrefni. Og þegar kemur upp í „stratosferuna“ eða yfir 12.000 metra verður líka að sjá fyrir aukn- um loftþrýstingi til þess að manni sé líft. Þess vegna varð Piccard að vera í loftþéttri kúlu í háloftsferðinni og þess vegna eru notaðir loftþéttir far- klefar í hinum nýju Háloftsflugvélum. Loftþrýstingurinn ofansjávar er mestur næst jörðu og minnkar eftir því sem ofar dregur. Ef kafað er í sjó vex vatnsþrýstingur fljótt með dýpinu. Maðurinn getur þolað sæmi- lega fimmfaldan þann þrýsting sem loftið gefur, en ekki meira, án þess að vera i stinnum búningi, sem veitir þrýstingnum viðnám. Á 40 metra dýpi er þrýstingur vatnsins álíka og fimm- faldur loftþrýstingur, og svo djúpt geta viðvaningar kafað. Vanir menn kafa niður á 00 metra dýpi, en á 80 metra er lifshætta að kafa. Það er undantekning að maður hafi kafað yfir 100 metra. Þess vegna verður að nota hylki sem þola vatnsþrýstinginn ef kafa skal djúpt. Þessi hylki verða að vera afarsterk, margfalt þykkari en kúlan sem Piccard notaði í há- loftsfluginu. Ameríkumaðurinn Beebe hafði kaf- að 900 metra og Barton félagi hans komst seinna niður á 1800 metra dýpi. Þeir voru í stálkúlu, sem dregin var upp og niður með stálvír. „TRIESTE" SMÍÐAÐ! Árið 1951 liöfðu ítalir afráðið að smíða köfunarskip, eða „bathys- caphe“. August Piccard gekk inn í fyrirtækið og hafði sjáifur eftirlit með smíðinni, ásamt Jacques syni sínum. Skipið er eins og vindill í laginu, með vatnsþéttum skilrúmum og hefir rúm fyrir 100.000 litra af léttu bensini, sem á að tempra þyngd skipsins þannig að það sigi og hækki á vixl, á sama hátt sem gas og sandpokar eru not- aðir til að ráða uppsvifi og lækkun loftbelgja. Köfunarskipið ei1 með öðr- um orðum ekki hækkað og lækkað með áföstum streng eins og loftkúla Beebes. Farþegaklefinn er neðan á skipinu, tveir metrar i þvermál, og úr 9 sentimetra þyldcu stáli, og glugg- arnir úr 15 sm. þykku gleri. Kjöl- festan er járnsvarf, sem tollir á sín- um stað fyrir áhrif rafsegulmagns. En ef rafstraumurinn er rofinn rennur hún út sjálfkrafa, t. d. ef skipið þykir sökkva hratt, eða þegar það á að stiga aftur, að lokinni köfunarferð. Hitt köfunarskipið sem smíðað var handa Piccard var kallað FNRS 2 — skammstöfun á nafni vísindasjóðsins belgiska, sem kostaði það: „Fond National de Recherclie Scientifique". Tilraunir með þetta köfunarskip fóru fram í Dakar og tókust vel og slcipið kafaði á 1380 metra dýpi. Það var tal- ið svo sterkt að það ætti að geta þolað þrýsting á 4000 metra dýpi. En þó var „Trieste" talið sterkara. Franski sjóherinn fékk síðan þetta köfunar- skip og hefir gert það út í margar köfunarferðir í námunda við Toulon. Ný köfunarskip eru jafnan reynd á Feðgarnir Auguste og Jacques Piccard í klefanum í „Trieste". Köfunarskipið „Trieste“. litlu dýpi fyrst, til að ganga úr skugga um að allur útbúnaður sé í lagi. „Trieste“ byrjaði með 8 metrum, 18— 25 og 40 metrum. En aðferðin er sú sama hvort sem kafað er grunnt eða djúpt. FYRSTA KÖFUNJN. Fyrst köfuðum við skannnt frá hafn- arbænum Castellamare við Napoli, segir Piccard. Átta metra dýpi. „Tri- este“ var enn bundið við flekana. Sjór- inn var ókyrr og ekki hægt að gera neinar athuganir. En tilgangurinn var að reyna útbúnaðinn, og hann reynd- ist vel. Það var mest spennandi þegar við ákváðum að lyfta okkur aftur. Við snerum rafleiðslusnerli og sáum kjölfestuna, járnsvarfið, renna út. Og svo heyrðist í símanum: „Þið eruð komnir upp í sjávarborðið.“ Næst köfuðum við á 18 metra dýpi, heldur Piccard áfram. Og alit reyndist í lagi. Síðar létum við draga oklcur út á 40 metra dýpi. Ég á skemmtilega endurminningu úr þeirri ferð. Við höfum aðeins litla kjölfestu um- fram það nauðsynlegasta. Skipið sekkur, birtan að utan verður daufari og skipið nemur staðar. Þá komum við auga á lcafarann de „Sanctis" niðri í sjónum. Hann sagði okkur að við hefðum stansað á 25 metra dýpi, en ekki 40. Hvað hafði skeð? Líklega var vatnið þarna kaldara og saltara en við yfirborðið og þess vegna þyngra, svo að köfunarskipið gat ekki sokkið dýpra. Nú var um tvennt að velja: annað hvort að bíða þangað til bensinið kólnaði og drægist saman, eða láta bensín renna út. Eða þá að létta kjölfestuna og stíga upp á yfir- borðið aftur. Við tókum þann kostinn. í simanum heyrðum við: „Þið hækk- ið!“ Við komum upp og fengum 300 kíló af járnsvarfi í kjölfestu og köf- uðum svo aftur og fórum nú á 40 m. dýpi. Þar var sæmileg dagsbirta og vatnið tært. En þarna var sjávarbotn- inn fremur fáskrúðugur. Þá sáum við stóran krossfisk með útglennta angana vera að bíða eftir bráð. En þegar klefinn okkar snerti botn varð sjór- inn þykkur af leðju, svo að ekkert sást. Fyrsta djúpa köfunin — við Capri. Piccard heldur áfram frásögninni: „Eftir þessar byrjunartiiraunir töld- um við okkur fært að leggja í „lang- ferðir" niður í djúpið. Við urðum að fara til Capri til að finna nægilegt dýpi. Þar sýna sjókortin 100—1000 m. dýpi. En við Ponza er meira dýpi. ítalski flotinn var okkur hjálplegur við þetta. Dráttarbáturinn „Tanace“ dró okkur og korvettan „Fenice" hélt vörð um okkur og bandaði forvitnum gestum frá. Morguninn 26. ágúst 1935 komum við á staðinn, fyrir sunnan Capri. Þar beið „Fenice". Við byrjuðum undir- búninginn í dögun. „Fenice“ lóðaði og fann 1050 metra dýpi. Nú var allt tilbúið í fyrstu djúpköf- unina. Eitt óhapp verð ég að minnast á. Ekki alvarlegt, en það breytti skil- yrðunum fyrir lendingunni á hafs- botni. Við misstum dráttarkaðlana, sem eiga að vera eins konar akkeri skipsins þegar það er á hafsbotni, og urðum þvi að kafa án þeirra. Svo fer skipið að sökkva og við les- um af mælunum góða ferð niður, hálf- an annan metra á sekúndu. Við liöf- um haft mikla kjölfestu til að eiga ekk: á hættu að stansa þegar við kæmum í lcaldari sjó. Við léttum á kjölfestunni til að draga úr hraðanum. Aðeins fjórir menn hafa komið lif- andi úr því dýpi sem við erum á núna. Prófessor Beebe og Barton verkfræðingur í kafarakúlu sinni, og Houot flotaforingi og Willm verk- fræðingur í köfunarskipinu FNRS 3. Við þykjumst vissir um að allt sé í lagi og við séum ekki i neinni hættu. Enginn er hræddur við að fara i lyftu og við treystum náttúrulögmál- inu. Við sökkvum áfram. Loftþyngdar- línuritið sýnir reglulega skálínu. Við hellum út meiri kjölfestu, alveg eins og maður gerir í loftbelg er maður nálgast jörðina. Við verðum að fara varlegar en ella því að dráttarkaðlana vantar. Nú kveikjum við á kastljósunum. Vatnið er svo tært að ljósgeislinn sést varla. En allar smáagnirnar glitra eins og þær væru lýstar í ultra-smásjá. Skilyrðin fyrir hafrannsóknarmann eða Ijósmyndara geta ekki verið betri. Á HAFSBOTNI. Mælirinn sýnir okkur að þrýsting- ur vatnsins á skipið sé kringum 100- faldur á við venjulegan loftþrýsting, þ. e. a. s. 100 kíló á hvern fersenti- metra. Yfirborð klefans okkar er um 150.000 fersentimetrar. Við erum að nálgast botninn og kastljósin loga. Jacques sonur minn gerir athuganir. Allt í einu sér hann botninn! Ef mér skjátlast ekki þá er það í fyrsta skipti sem mannlegt auga sér botn á svona miklu dýpi. „Við snertum botninn,- haltu þér!“ og við snertum hann en enginn árekstur varð. Þarna var leðja, meira en metri á þykkt. Þrátt Framhald á bls. 10.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.