Fálkinn


Fálkinn - 13.08.1954, Page 8

Fálkinn - 13.08.1954, Page 8
8 FÁLKINN Svo leið vika .... Og þá kom hann. Það var rétt fyrir lokunartíma . .. . I D A V A L O : REFSINORNIN KKI var hægt að kalla hana unga lengur. Litlu hrukk- urnar kringum augun sýndu það þótt þær væru fíngerð- ar, og líka gráu_hárin, sem voru farin að láta til sín taka í jarpa hárinu. En þó sögðu raunalegu drættirnir kringum munninn meira. Þeir töluðu máli sorgar og uppgjafar fyrri vona. Hún sat við gluggann, í felum við gluggatjaldið. Hún sat þarna kvöld eftir kvöld. Hún vissi svona hér um bil hvenær hann kom, en samt sat hún þarna, í skjóli gluggatjaldsins, löngu áður en hún átti von á honum. Hún varð að vita vissu sína. Hvert einasta kvöld. Kannske hefði það verið henni hollara að hún hefði hrist þetta af sér og kosið að lifa í óvissunni. Það hefði kannske ver- ið betra. En hún gat það ekki. Hún var þannig gerð. Hún varð alltaf og rannsaka allt til hlítar, berjast til úrslita, hversu sárt sem það var. Hún varð að rekja hvert hugsanasamband á enda. Það friðaði hana betur en að vísa þvi á bug þrátt fyrir allt. Hún var aðeins tuttugu ára þegar það gerðist. Sveinn hafði boðið henni með sér í leikhús. Þau höfðu ekki efni á að skemmta sér nema sjaldan, því að Sveinn varð að sjá veikum föður sínum farborða, og sjálf var hún í byrj- endastöðu í verslun. Þess vegna var leikhúskvöld hátíð hjá þeim báðum. 1 þetta sinn hafði hún verið í grænum flauelskjól, sem hún erfði eftir frænku sína. Hann fór henni Ijómandi vel, mjórri og grannri, og liturinn var í góðu samræmi við eir-jarpt hárið á henni. Það var notalegt að taka eftir augnaráði ýmissa karlmann- anna, er þeir litu til hennar, og njóta þess að vera ung og dáð. Við fatageymsluna í leikhúsinu hitti hún hann. Það var Sveinn sem þekkti hann, og Sveinn var hreykinn af að kynna hana vinum sínum. Það vildi svo til að hann sat á sömu bekkjaröð sem hún og Sveinn voru í, og þegar sæti varð laust við hliðina á henni, eftir annan þátt, var hann ekki lengi að flytja sig þangað. Það var líkast og þetta hefði allt verið ráðið fyrirfram. Sveinn varð að flýta sér í vinnu, beint úr leik- húsinu, því að hann átti að gegna næturvörslu, og ókunni maður- inn, sem hét Steinn, bauðst til að fylgja henni heim. Veðrið var fagurt. Þetta var snemma vors .... Þau fóru heim. Það var drjúgur spölur, en þeirra vegna hefði hann mátt vera helm- ingi lengri. Þegar þau komu að dyrunum hennar, stóðu þau kyrr og fóru að tala um hitt og þetta. Þau áttu bágt með að skilja. Þau fundu að gagnkvæmt aðdráttar- afl var milli þeirra, og að þau urðu að sjást aftur. Loksins skar hún úr og rétti honum höndina: „Þökk fyrir samveruna!" sagði hún. Steinn sleppti ekki hendinni, en stóð kyrr og hélt fast um hana. „Við sjáumst aftur!“ Það var líkari fullyrðingu en spurningu, en hún brosti aðeins og sagði: „Hver veit?“ Svo liðu tveir dagar þangað til hún heyrði Svein eða sá. Hann kom inn í búðina eftir nónið. Hann var ekki einn. „Ég hitti hann Stein á leiðinni. Ja, þú hlýtur að muna eftir honum?“ sagði Sveinn við hana brosandi, um leið og hann tók ofan hattinn og henti honum á búðarborðið. „Hann Stein lang- ar til að sjá hvað þú hefir á boð- stólum. Nú verðurðu að láta hend- ur standa fram úr ermum og nota tækifærið til að gera verslun.“ Hún mundi vel hvað hún hafði farið hjá sér þarna, sem hún stóð með leikföng allt í kringum sig. Og Steinn keypti bolta og brúðu, hest og bíl....Hann fór á und- an Sveini, en sendi henni sérstakt augngot um leið og hann fór út úr dyrunum. Nú vissi hún að hún mundi sjá hann aftur. Það var komið að lokunartíma, og Sveinn settist og beið meðan hún var að ganga frá öllu í búðinni. Hann var alltaf að tala um Stein. „Þeim er vorkunn, bæði honum og kon- unni,“ sagði hann. — „Konunni?" hún hrökk við. „En hann var ekki með hring?“ — Ætli það skipti nokkru máli,“ sagði Sveinn og leit upp. „Hringurinn er tákn og ekk- ert annað. Þegar tvær manneskj- ur hafa heitið hvort öðru ein- hverju, kemur það engum öðrum við. Þær eiga að vera trúar. Þó að þær beri ekki utan á sér nein sýnileg merki um að þau séu hvort öðru bundin.“ Sveini fannst allt þetta svo sjálfsagt. Frá hans sjónarmiði var lífið og mannkyn- ið svo ofur einfalt mál, því að sjálfur var hann svo refjalaus og saklaus. „Hann á líka tvö ljómandi fal- leg börn,“ bætti hann við. „Pilt og stúlku. Hann er fjögurra ára og telpan tveggja. En það er kon- „Hvað er um konuna?“ Hún lagði frá sér leikföngin og starði á Svein, sem var ofurlítið íboginn. „Hún er máttlaus í báðum fót- um.“ Þegar Sveinn hafði sagt þetta var líkast og drægi úr henni allan mátt og hún gat ekkert sagt í nokkrar mínútur. En svo kom það: „En hvað þetta er hræðilegt! Hvernig atvikaðist það?“ „Það gerðist vist þegar hún gekk með yngra barnið. Ef ég man rétt þá varð hún fyrir bíl. Það var guðs mildi að það skyldi ekki fara verr. Barnið var jafn- gott. En þú skilur að þetta var hræðilegt áfall, bæði fyrir Stein og konuna hans. Þau höfðu bæði haft svo gaman af að dansa og iðka íþróttir, svo að það hlýtur að vera tómleg ævi hjá þeim núna. Ef hann langar til að fara eitthvað út þá verður hún að sitja ein heima, en það er ekki skemmtilegt eða hollt fyrir ung- an mann heldur, að þurfa að sitja heima sí og æ. Hann hefir mikinn áhuga á listum og vill helst fylgj- ast með öllu milli himins og jarð- ar. Og svo þarfnast hann hreyf- ingar og útilofts, eins og aðrir ungir menn, og þess vegna fer hann á skíði á hverjum sunnu- degi þegar snjór er, held ég. Að minnsta kosti hefi ég hitt hann hvað eftir annað. En sem betur fer er hann svo vel settur, að hann getur leigt sér húshjálp. En samt verður því ekki neitað að þau eiga ekkert ánægjulíf, hjón- in. Steinn er orðinn breyttur frá því sem hann var, og frúin er dauf og ekki beiskjulaus. En nú skul- um við fara,“ sagði Sveinn og spratt upp af stólnum. „Ég er hérna með tvo bíómiða ........“ Og svo fóru þau og sáu kvik- mynd og töluðu ekki meira um Stein. En hún hugsaði, Allt kvöld- ið var hún að hugsa um Stein og sá í anda andlitið á honum og raunalegu augun, sem þó höfðu brosað til hennar......og lofað henni einhverju um framtíðina, fannst henni. Svo leið vika .... Og þá kom hann. Það var rétt fyrir lokunar- tíma. Hún var ein í búðinni, og hann settist á stólinn, sem stóð við búðarborðið, og spurði hvort hann mætti bíða þangað til hún færi. Hann hafði hugsað sér að fara í kvikmyndahús. Hann vissi um ágæta mynd, sem hann vildi endilega sjá, og ef hún sleppti engu við það, þá fengist hún kannske til að koma líka? Það var ekkert gaman að vera alltaf einn. Hún svaraði honum engu, fyrst í stað. Fyrir hugarsjónum hennar birtist mynd af konu, sem var hlekkjuð við stól. En þegar hún leit í augu hans, sem voru biðjandi og döpur um leið, vísaði hún öllum vafa á bug. Hvað var við þetta að athuga? Þau þekkt- ust, og væri honum ánægja af að hafa hana með sér, og hún gat sjálf haft gaman af kvikmyndinni — hvers vegna skyldi hún þá segja nei? Þetta hefði allt verið í fullum sóma, ef ekki hefði komið mqjra á eftir. Hún hefði vel getað talað við hann og komið með honum í kvikmyndahús eða leikhús öðru

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.