Fálkinn


Fálkinn - 13.08.1954, Síða 10

Fálkinn - 13.08.1954, Síða 10
10 FÁLKINN Vitið þér...? að af öllum æðri dýrum þola gæsir og endur mestan kulda? Við tilraunir á rannsóknastofum hefir það komið á daginn að flest dýr geta lifað i allt að 45 stiga kulda, — isbirnir og rostungar meira að segja i allt að 85 stiga kulda. En endur og gæsir þola 115 stiga kulda án þess að frjósa í hel. að í gamla daga gátu læknar stundum tryggt sig gegn afleið- ingum læknisaðgerða sinna á sjúklingum? Þegar konungar eða aðrir höfðingj- ar áttu hlut að máli fékk læknirinn hátíðlega yfirlýsingu um að þeir skyldu ekki sæta ábyrgð þó að sjúkl- ingurinn yrði ekki albata, eða jafnvel dæi. að í Japan eru gerðar „ekta“ perlur með mannlegri tækni? Eins og allir vita myndast perlurnar innan i ostrum, á þann hátt að ef ör- lítið sandkorn kemst inn í ostruna hleðst glerkennt efni utan um það og myndar p'4'luna. Japani einn, sem nú er orðinn^gamall og heitir Kokichi Mikimoto, lét sér þetta að kenningu verða — bókstaflega. Hann efndi til ostruræktar, og smokraði ofurlitlu kalkkorni inn á milli skeljanna á ungu ostrunum og lét þær síðan á þeirra rétta samastað, á 8—15 metra dýpi. Þar lifa svo ostrurnar áfram og stækka, en um leið hleðst utan á korn- ið og perlurnar stækka með ostrunni. Þegar talið er að þær séu orðnar nægi- lega stórar, eru ungar stelpur látnar kafa eftir þeim og sækja þær. Mikimoto hefir nú fjölda manns i vinnu og „bú- garður" hans er orðinn stór, enda framleiðir hann kringum tíu milljón perlur á ári og er orðinn margfaldur milljónamæringur. KAFSKIPIÐ „TRIESTE". Framhald af bls. 4. fyrir Ijósin sáum við ekki neitt. Við sáum nú að dráttarkaðlarnir eru ó- missandi. Ef við hefðum haft þá mundu þeir hafa botnað fyrst og létt á skipinu, svo að það hefði ekki snert botninn, og þá hefði sjórinn ekki gruggast. Við höfðum nóg að gera samt, að líta eftir að öll samskeyti væru þétt. Þau voru það. Bæði ventlarnir, raf- leiðslurörin og samskeytin á kúlunni sem við vorum í, en þau voru 6,28 metrar. Hvergi lak dropi. Við afréðum að fara upp á yfir- borðið og lileyptum út kjölfestu. Við höfðum haft meira en nóg af henni og klefinn sat fastur i leðjunni. Við lét- um járnsallann renna út i margar minútur! En klefaglugginn var á kafi i leðjunni. Sátum við fastir? f næsta blaði: Síðasta grein. Hug- leiðingar Piccards um ævistarf hans og — dýpri kafanir. ALVEG HISSA. Fullorðinn meðalmaður andar að sér kringum 6000 lítrum af lofti á sólarliring. Úr öllu þessu lofti fær hann ekki nema 850 grömm af súrefni. í Caciquiare-skurðinum í Suður- Ameríku rennur vatnið ýmist austur eða vestur. Það er undir veðráttunni komið í hvora átlina það fer. Á flestu fólki er liægri handleggur- inn ofurlítið lengri en sá vinstri. Eskimóarnir eignast aldrei tvíbura. Lögreglan í Malmö kyrrsetti útlend- ing, sem hvorki liafði vegabréf né dvalarleyfi. „Vegabréfið“ sem hann hafði komist um alla Evrópu á, reynd- ist vera matseðill frá tyrknesku veit- ingahúsi og liafði maðurinn límt mynd af sér á hann og sett á hann ýmsa stimpla. Maður í Kaliforníu fékk leyfi yfir- valdanna til þess að láta gera læknis- aðgerð á syni sínum til þess að forða lionum frá að verða lengri en hann var orðinn. Drengurinn var ekki nema fjórtán ára en var orðinn nærri því tveir metrar. Eftir að Ungverjar unnu glæsilegan lcnattspyrnusigur á Englendingum i fyrra gáfu þeir út sérstök frímerki, yfirstimpluð með markatölunni — 6:3. — Jæja, við skulum reyna að ljúka við þetta. Eg þarf að senda nokkur jólakort. — Það var ekki ég, pabbi, það var ekki ég......... — Viljið þér lofa mér að líta í lækn- ingabókina líka ....... •— En hvað þetta var skrítið. Ég hélt endilega að einhver væri að berja á dyrnar! PÍNA, PUSI OG SIGGI SVARTI 1. mynd: Allt í einu hrökk liringur Lóru fram af höfði Sigga svarta. — Það var gott, að við náðuin lionum loksins af, segir Pusi. — 2. mynd: — Vcslings Siggi svarti, segir Pína, — er þér illt i höfðinu? En Siggi svarti getur ekki svarað. Hann er vankaður. -— 3. mynd: — Sjáið þið, kallar Pína. — Þarna kemur Maren gamla. Hún liefir farið út að kaupa mat lianda Lóru. — 4. mynd: Pína fær að setja korn i skál Lóru. — En hve maturinn liennar er skrýtinn, segir Siggi svarti. — 5. mynd: — Má ég bragða á korninu? spyr hann. — Það máttu gjarnan, segir Lóra, en það þarf að brjóta það fyrst. — 6. mynd: — En ég hefi ckkert nef til að brjóta það með, segir Siggi svarti. — Ég sest bara á það. Nei, það vill ekki i sundur. — 7. mynd: — Það er betra að reyna í hurðarfalsinu, hugsar hann. Þegar liurðinni er lokað, brotnar kornið. — 8. mynd: — Æ, æ! lirópar Siggi svarti. — Ég varð á milli með höndina. Pína, komdu og hjálpaðu mér.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.