Fálkinn - 08.10.1954, Qupperneq 10
10
FÁLKINN
St rítlur
Eðlilegt málverk.
Heimsmeistarinn í svigi þarf að
ná í járnbrautarlestina.
— Þetta er eitthvað sem hann hefir
séð í kvikmynd!
— Viljið þér gera svo vel að
slökkva á öllum hinum lömpunum svo
að ég sjái hvernig birtan er af þessum!
ÉG GAT EKKI FLÚIÐ. Frh. af bls. 9.
hann tók þetta örþrifaráð, liefir hann
líklega gert sér ljóst að honum væri
engin bjargar von.
— Og þú ert viss um að liann fékk
ekki bréfiS mitt ......?
— Já, það er hérna. Ég tók þaS
með mér þegar ég fór þaðan. Þú Iiefir
ekki gerl neitt rangt, Gertrud, þú
þarft einskis að iðrast. Þvert á móti
— þú snerir meira að segja aftur ....
Þessi orð hughreysta mig núna. Ég
er stödd hjá systur Magnúsar og verð
hér fyrst um sinn. Mér liður svo vel
og ég er svo róleg núna. Björt fram-
tíð blasir við......
í Bruxelles er farið að framleiða
varalit með áfengisbragði. Það eru
curacao- og koniakslitirnir, sem ganga
best út.
Á drykkjustofu einni í New York er
auglýsing um að mönnum sé bannað
að tala um stjórnmál eftir að þeir
hafa drukkið fjögur kokkteil-glös.
Wayne Hutton í Kansas, sem vinn-
ur næturvinnu, fékk skilnað frá kon-
unni sinni vegna þess að hún heimt-
aði að hafa 36 kanarífugla og tvo
hunda í svefnherberginu.
Það mundi taka 50 milljón ána-
maðka fimmtíu ár að bylta jafn mik-
illi mold og bóndi getur bylt með plóg
á einum degi.
Á siðustu tuttugu árum hefir sólar-
hitinn aukist um einn fjögurhundrað-
asta part.
I Stóra-Bretla'ndi eru búnir til ná-
lægt 300.000.000 blýantar á ári.
I nýfæddu barni eru 1.000.000.000
frumur.
Ástæðan til þess að þunga vatnið svo-
nefnda er svo dýrt er sú, að þrjú tonn
af venjulegu vatni þarf tit að fram-
leiða 30 gr. af þungu vatni.
Á tveimur stöðum i heiminum er
til hjartartegurid, sem hefir vígtennur.
Þessir tveir staðir eru í Kóreu og
Kina.
Merkúr er minnsta reikistjarnan í
sólkerfinu. Hún er aðeins 15.000 km.
ummáls, eða litlu stærri en tungliö.
Frelsisstyttan fyrir utan New York
er stærri en menn gera sér i hugar-
lund. Til dæmis er þumalfingurinn á
henni meiri en einn metri ummáls.
í Mexico er bannað að hafa útvarps-
tæki i Icigubifreiðum.
Hagskýrslurnar sýna að slys eru
algengari hjá karlmönnum en konum.
Á aldrinum 20—38 deyja fleiri menn
af slysförum en af sjúkdónmm.
Orgelið er það hljóðfæri, sem getur
framleitt flest afbrigði af yfirtónum.
PÍNA, PUSI OG SIGGI SVARTI
1. mynd: Nilli sækir Trillu, hvolpinn sinn. Þau ætla i sirkus. — 2. mynd:
— Sjáðu hvað Trilla er dugleg. Hún getur staðið á afturfótunum. — 3. mynd:
— Við förum til Marenar og Lóru. Kannske koma þær í sirkus líka. — 4. mynd:
Maren segist vera of gömul, en Kisa vill koma. — 5. mynd: — Nú ætla ég að
telja hve mörg við erurn: 1-2-3-4-5. Svona mörg! — 6. mynd: — Hérna er vatn,
hrópar N'illi. — Langar þig til að baða þig, Trilla. — 7. mynd: — Sæktu þá
þessa spýtu, ég hendi henni langt út í vatnið. — 8. mynd: En hvaða skepna er
þetta? Trilla hefir aldrei séð hana fyrr.
Vitið þér...?
að hægt er að draga úr reykjar-
svælunni frá stórum eimreiðum?
Þetta skiptir mjög miklu máli í stór-
borgunum, þar sem eimreiðafjöldinn
veldur mikilli reykjarsvælu kringum
járnbrautarstöðvarnar — i ofanálag á
allan reykinn frá kolakyntum húsum.
Aðferðin til að draga úr eimreiða-
reyknum er tiltölulega ný. Er hún í
því fólgin að eldstæðið í eimreiðunum
er gert miklu lengra en áður var og
með því fæst, að kolin brenna nær al-
veg til ösku, því að með þessu móti
kemst það, sem brennanlegt er, síðar
út í reykháfinn en áður. En það er
einmitt óbrunnið koladust sem mynd-
ar mestan reykinn.
að almanökin voru í fyrstu
stjórnarspártöflur?
Þessar dagatöflur voru i gamla daga
skráðar af hirð-stjörnuspámönnum
þjóðhöfðingjanna og færðar þeim um
hver áramót. Af spám þeim sem ráðn-
ar voru af innbyrðis sambandi stjarn-
anna átti svo þjóðhöfðinginn að geta
ráðið hvernig árið yrði, hvort heppi-
legt væri að hefja stríð, leggja á
skatta eða byrja einhverjar nýjuiigar.
að meðalþungur karlmannsheili
vegur 1350 gr. en kvenmannsheil-
inn 1235 gr.?
Munurinn er minni en á meðal-
þyngd karls og lconu, svo að ef heila-
stærðin ræður nokkru um gáfnafar,
ætti kvenfólk að vera greindara en
karlmenn — eftir líkamsþyngdinni.