Fálkinn


Fálkinn - 08.10.1954, Qupperneq 14

Fálkinn - 08.10.1954, Qupperneq 14
14 FÁLKINN Simone Silva sigraði G. I. Lárétt skýring: 1. fugl, 5. rúmlega, 10. framleiða orku, 11. hæðni, 13. sama, 14. eyði- mörk, 16. dýr, 17. samliggjandi, 19. kyn, 21. mánuður, 22. flokkur, 23. gnauða, 26. tímabil, 27. mál, 28. helgi- staður, 30. hvildist, 31. útrýmt, 32. rannsaka, 33. sa'mhljóðar, 34. tveir eins, 36. afrennsli, 38. Austurlanda- húi, 41. þrír eins, 43. slátur, 45. þrír eins, 47. þóknun, 48. gera ríkan, 49. litla, 50. leðja, 53. elskar, 54. samliggj- andi, 55. innyfli, 57. trufla, 60. ein- kennisst., 61. steinn, 63. óvcðrið, 65. þýða, 66. ertir. Lóðrétt skýring: 1. helgistaður, 2. fæða, 3. þóknun, 4. grjót, 6. tré, 7. örvasa, 8. ílát, 9. upp- hafsst., 10. vitna, 12. gefa eftir, 13. stundi, 15. uppsátur, 16. dáð, 18. líkamshluti, 20. tala, 21. drykkur, 23. kunningja, 24. samhljóðar, 25. mergð, 28. mikilsverðri, 29. ending, 35. veiðir, 36. i hálsi, 37. pretta, 38. sorg, 39. anga, 40. gljái, 42. ópera, 44. forsetning, 46. happið, 51. missa, 52. klettarifa, 55. þrir eins, 56. sjaldgæfur, 58. öskur, SKÁKMÓTIÐ. Framhald af bls. 3. í islensku skáksveitinni voru þeir Friðrik Ólafsson, sem gerði nii jafn- tefli við marga stórmeistara og vann ýmsa þekkta skákmenn, Guðmundur S. Guðmundsson, Guðmundur Ágústs- son, Ingi R. Jóhannsson, Guðmundur Pálmason og Guðmundur Arnlaugs- son, sem jafnframt var fararstjóri. Friðrik Ólafsson vann 50% skáka þeirra, sem hann tefldi á 1. horði i aðalkeppninni. Er það frábær árang- ur, þar sem eingöngu var við stór- meistara og þekkta alþjóðlega skák- meistara að etja. Langt nef. Bræður tveir í Birmingham, sem búa til reykjarpipur, eru orðnir ríkir á verslun við Ameríkumenn. Þeir hafa sem sé komist að þeirri niðurstöðu að amerísk nef séu að meðaltali liálfum þumlungi lengri en ensk, og þess vegna gera þeir munnstykkin hálfum þumlungi lengri, til þess að menn svíði sig ekki á nefinu. 59. keyra, 62. einkennisst., 64. íþrótta- félag. LAUSN Á SÍÐUSTU KROSSGÁTU. Lárétt ráðning: 1. hákarl, 6. liafþök, 12. armæða, 13. kýrnyt, 15. fa, 16. Nasli, 18. Selá, 19. nú, 20. sum, 22. nirfill, 24. kom, 25. Akab, 27. njóta, 28. taka, 29. garri, 31. átt, 32. óasar, 33. kíló, 35. iðka, 36. Amsterdam, 38. hrat, 39. Ólaf, 42. skrin, 44. tif, 46. Arnór, 48. Glói, 49. ærleg, 51. kæfa, 52. eik, 53. áfellan, 55. sek, 56. I. P., 57. árið, 58. Aron, 60. la, 61. útávið, 65. náungi, 66. snarka. Lóðrétt ráðning: 1. hrauka, 2. Á. M., 3. kæn, 4. aðan, 5. Rasin, 7. Akela, 8. fýll, 9. þrá, 10. ön, 11. kynoka, 12. afsagt, 14. túmark, 17. hrjá, 18. sitt, 21. mark, 23. fót hemill, 24. kasa, 26. hríaríi, 28. tak- mark, 30. ilman, 32. óðala, 34. óst, 35. Idó, 37. Ásgeir, 38. hfrók, 40. fnæs, 41. hrakað, 43. klipin, 44. treð, 45. fela, 47. Ófelia, 49. æfing, 50. Garúri, 53. árin, 54. nota, 57. átu, 59. nár, 62. sá, 64. vk. Tveimur árum eftir að atómsprengj- unni var kastað yfir Nagasaki yar uppskcran á ökrunum þar frá 50 til 300% meiri, en verið liafði í gamla daga. Niagarafossarnir slíta árlega hamr- inum, sem þeir falla fram af, svo að fossarnir færast upp eftir ánni á hverju ári, þó að litlu muni. En samt verður þess langt að biða að fossarnir verði að engu. Jarðfræðingi einum telst svo til, að eftir 22 þúsund ár verði þeir ekki orðnir annað en strengur út úr Erievatni. Þegar Bandaríkin gerðu byltinguna og fengu sjálfstæði sitt var George Washington ríkasti maðurinn í land- inul Andrúmsloftið á Mars er ekki bland- að ncinum eitruðum lofttegundum. Að þessari niðurstöðu hafa menn komist nýlega óg er það huggun þeim, sem liafa liugsað sér að bregða sér til Mars. Á hinni árlegu kvikmyndahátíð í Gannes í vor sem leið var mikill fjöldi meira og minna frægs kvikmyndafólks samankominn. Því að þarna fara ekki aðeins fram sýningar til að kynna nýjar kvikmyndir heldur sækir fóik þangað líka til að sýna sig og kynna í von um að geta gert góðan ráðning- arsamning við kvikmyndajöfrana frá Hollywood. Þetta er því eins konar gripasýning eða hrossamarkaður og „gripirnir" neyta allra bragða til að láta taka eftir sér. Meðal þeirra sem vöktu athygli og gremju í Cannes í vor var leikkonan Simone Silva. Forðum reyndi kven- fólkið að vekja eftirtekt með fallegum og dýrum kjólum, en Simone fór i hina áttina og vakti athygli með því að vera sem minnst klædd. Á fundi með blaðamönnum tætti lnin af sér hverja spjör niður á mjaðmir og lét taka niyndir af sér. „Ef það er nekt og kynfýsn sem allt veltur á, skal ég ekki vera slakari en Marilyn Monroe“, sagði hún. Og til áréttingar lét hún leikarann Robert Mitchun vera með sér á myndunum, en hann er natinn auglýsingasnápur og sá til þess að myndirnar yrðu birtar. Talið er að sumir hafi lineykslast þegar Simone var að tæta af sér spjarirnar, en það fylgir sögunni að enginn hafi samt litið af henni á meðan. Og það hafði hún upp úr krafsinu að einn erindrek- inn frá Hollywood gerði við hana ráðningarsamning til sjö ára. — Svona getur það farið stundum — kvenfólkið krækir sér í samning með því að lóta ljósmynda sig í engu nema bjórnum á sér. KVIKMYND UM FARÚK. Farúk hinn afdankaði hefir löngum verið flestum ráðgáta. Hvernig entist hann til að svalla og eyða fé bláfátækr- ar þjóðar í ótrúlegasta glys og prjál? Hann átti fjölda af höllum, t. d. þrjár í Cairo, tíu í Alexandríu — og margar, margar fleiri. Nú er von á kvikmynd, sem lýsa Kay Kendall. Simone Silva. skal ævi þessa villidýrs sem sannast og réttast og verður ekki dregin fjöður yfir neitt. Egyptastjórn styður þetta fyrirtæki og segist vilja láta umheim- inn sjá og skilja hve gjörsamlega Farúk liafi verið óhæfur til að stjórna rikinu. Hún liefir lánað kvikmynda- félaginu fjórar af konungshöllunum og konungsskipið „Mahroussa“ til að nota við kvikmyndatökuna, og greiðir fyrir félaginu á ýmsan annan hátt. í maí var byrjað að taka kvikmynd- ina. Gregory Ratoff leikur konunginu, sem að vísu ekki er látinn heita Farúk heldur Abdullah konungur í kvik- myndinni, og Kay Kendall leikur tískusýningardömu, sem konungurinn verður ástfanginn af. En hún er ástfangin af egyptskum liðsforingja, sem Sidney Chaplin leik- ur. Ef til vill er Það Narriman Sadek, sem Kay ó að sýna, því að Farúk tók hana nauðuga frá unnusta liennar. Þetta er alþjóðleg mynd í mesta máta. Það er ítalskt félag sem tekur liana en Egypti einn, búsettur í ítaliu leggur. til pningana. Kunnir enskir, amerískir, ítalskir og eygptskir leik- arar koma fram í myndinni. Myndin verður tekin með bæði ítölsku og ensku tali og mun egyptsku stjórninni mikið i mun að liún fari sem víðast til þess að sanna heiminum hvílíkt ó- menni Farúk er. Heitir myndin „kon- ungsriki mitt fyrir konuna“ og kvað verða mjög íburðarmikil. Antarktis — suðurheimskautslandið — nær yfir 14 milljón ferkílómetra, og er þannig stærra en Ástralía. Sköflungurinn er sterkasta beinið í mannslikamanum. Hann getur horið uppi 1800 kíló.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.