Fálkinn


Fálkinn - 29.10.1954, Side 4

Fálkinn - 29.10.1954, Side 4
4 FÁLKINN llii jrðtmlírinn" í Jerðsalei sjást nú engir Gyðingar, segir blaðamaðurinn Sivert Langholm í grein þeirri, sem fer hér á eftir. 4»*yYRIR nálægt 3000 árum hélt Davíð konungur inn í ^ Jerúsalem. Síðan hefir sí- felldur ófriður og deilur verið út af borginni. Og í dag skiptir breitt belti hruninna húsa borginni í tvennt, og beggja megin rústa- beltisins standa verðir með hlaðn- ar hríðskotabyssur í handarkrik- anum. — Og þó er Jerúsalem i vexti. Hún á að verða nýtísku stórborg og iðnaðarborg: höfuð- staður Israelsríkis. Milli sandpokanna sem hlaSið er fyrir búðargluggana i miðbænum í Jerúsalem vaxa fögur blóm. Þau hafa liaft næði til að festa rætur, þvi að fimm ár eru síðan sandpokunum var hlaðið fyrir gluggana. Göturnar eru ennþá eins og þær voru eftir skothrið Araba á þennan borgarhluta. í dag virðist kyrrð í borginni. Umferðin eðlileg, verslunarlífið gengur sinn gang, en allt er í óvissu. Aðeins liundr- að metra undan sjást varðmennirnir frá Jordan. Styrjaldarástand er enn, Jerúsalem er eitt af þrætueplunum og stendur á miðjum vígvellinum. Vissast að láta sandpokana vera kyrra, ef eitthvað kynni að ske. Og enn eru skriðdrekaþröskuldarnir á aðaigötunum. Við öll gatnamót eru „spánskir riddarar" og gamlar bensín- tunnur fylltar steinsteypu, svo að hægt er að loka götunum á svipstundu ef þörf gerist. Og um miðja Jerúsalem liggur breið geil rústa. Þar er markalínan. Eins konar járntjald, sem lokar umferðinni milli ísrael og arabisku grannaríkj- anna. Rústageilin er „no mans land“. Þar mega engir fara um. Þar má enginn byggja. Geilin á að haldast eins og hún var þegar UNO fyrirskipaði vopnahlé árið 1948. Og enginn veit hve lengi hún verður svona. Enginn stjórnmálaflokkur hefir liugmynd um hvenær friður verður saminn, hvort skipting verður til frambúðar eða j hvort borgin verður sett undir al- þjóðaeftirlit. Vopnahlésnefnd UNO heldur til hinumegin við geilina, í arabiska borgarhlutanum. Það er langt síðan merkisfréttir hafa komið frá lienni. En nefndin er alls ekki atvinnulaus. Stundum heyrast skothvellir i mið- bænum — ofstækisfullir hatursmenn eru á báðar hliðar — og þá verður vopnahlésnefndin, sem nú hefir dansk- an formann, að taka í taumana. Þetta gerist sérstaklega oft þegar ferða- mannastraumurinn er sem mestur. En nefndin er löngu hætt að senda út hátíðlega tilkynningar. Þess á milli ríkir vopnaður friður. Og beggja megin geilarinnar sjást varðmennirnir bera við blátt loftið. Þar sem hermenn Heródesar héldu vörð forðum í kyrtlum og með spjót að vopni, eru nú jórdanskir og júðskir unglingar með „sten“-byssu undir handleggnum. Fjarlægðin milli þeirra er ekki meiri en svo að þeir gætu talað saman með því að brýna rödd- ina. En þeir gera það ekki. Það heitir svo sem báðir aðilar leggi stund á varkárni. Því að ef ástríðunum hætt- ir nokkurs staðar við að blossa þá er það hér. ísrael hefir fyrir löngu slegið þvi föstu að Jerúsalem sé höfuðborg rik- isins. Knesset — þ. e. þlngið — hefir verið haldið hér síðan lýst var yfir sjálfstæði ísraels og stjórnarráðin voru nýlega flutt liingað frá Tel Aviv. En Arabar gera jafn eindregna kröfu til þess að Jerúsalem sé viðurkennd ein af hinum helgu borgum þeirra. Nú er komið á sjötta ár síðan borg- inni var skipt í tvennt. Sex ár liðin síðan Gyðingur stóð síðast við grát- múrinn. s'taðurinn sem öl],um öðrum frémur hefir verið helgidómur þeirra, og sem þeir hafa beðist fyrir á siðan á dögum Heródesar, er nú lokaður þeim.- Og kristnu pílagrímarnir sem sækja borgina helgu heim, verða að leggja leið sina um Beirut, Damaskus og Amman. Aðeins um páskana eru hliðin í Mandelbaum Street opnuð gestum, sem vilja sjá hina gömlu Jerúsalem. Því að hin gamla Jerúsalem er aðeins lítið hverfi i nýju Jerúsalem, sem er orðin ein af stór- borgum Austurlanda. Gamla borgin, upp- spretta þrenns konar trúarbragða, er litið annað en minnis- merki. En aðdráttar- afl borgarinnar er enn óskert, bæði á Gyðinga, múhameðssinna og kristna menn. Friðaðir staðir. Zíonshæðin, ein af fjórum viggirð- ingum liinnar gömlu borgar, er eins og mauraþúfa. Þar eru eintómir Gyð- ingar og þaðan er gott útsýni yfir gömlu borgina. Það er miklu meira en borgarmúr í venjulegum skilningi, sem liggur uppeftir Zionshæð. Þarna er aragrúi af byggingum, sem reistar liafa verið yfir helga dóma kristinna manna eða Gyðinga. Hinu megin við hæðina, aðeins tvö liundruð metra undan, er Olíviðarfjallið. Skammt þar frá gnæfir Hadassah-háskólinn, stolt Palestínugyðinga, sem fá nú ekki að koma nærri. Rétt fyrir neðan er Getsemanegarðurinn. í þessum litla gamla bæ verður ekki þverfótað fýrir trúarsögustöðum. Þar er grátmúrinn og hjá honum Omar-musterið, einn mesti helgidómur Araba. Við dyr þess var Abdullah konungur i Jordan, hinn eini sanni vinur vesturlanda meðal Arabaþjóða, skotinn til bana af sinurn eigin þegnum fyrir nokkrum árum. Og liér er gröfin helga, sem alltof stór kirkja hefir verið byggð yfir. Það var þessi borg, sem Davíð kon- ungur seltist að í forðum og sem Salómon sonur hans stækkaði og fegraði. Þegar Davið hélt innreið sina fyrir 3000 árum var Jerúsalem gömul borg. Og siðan hefir lnin verið ævarandi þrætuepli. Rústir eii\ar eru nú eftir frá veldistímum Rómverja þar. Og yfirráð Tyrkja í Jerúsalem heyra sög- unni til. En borgin fékk aldrei að vera i friði. Það er líkast og hin gamla borg segi þjáningarsögu Gyðinga. Mandelbaum Street — eina leiðin, sem hægt er að fara milli Gyðingahlutans og Arabahlutans í Jerúsalem. Neðst á myndinni sjást tunnur, fylltar af steinsteypu, til að setja út á götuna er teppa þarf umferðina. Zíonshæðin er nú hernaðarsvæði. í stríðinu voru háðir blóðugir bardagar í sundunum þar. Enn eru gaddavírs- flækjurnar þar, tilbúnar að tefja fyrir óvinum, sem að garði kynni að bera. Hér lauk bardögunum þegar vopna- hléð var sett og hér var griðalínan dregin. Og hér eru margir helgir stað- ir. Hér cr Caiaphas, þar sem fyrstu kristnu mennirnir voru yfirheyrðir og dæmdir til dauða, hér heyrði Pétur hanann gala og hér er Coenaculum, sem sagan segir að hafi verið fundar- staður fyrstu kristinna manna, og hér er húsið, sem sagt er að stofnun heil- agrar kvöldmáltíðar hafi farið fram i. Og samkvæmt munnmælum múh.am- eðssinna var það héðan af hæðinni, sem Múhameð þeysti til himna á eld- hesti sínum. Tvær grafir Davíðs. Hér er lika gröf Davíðs, sá staður sem flestir vilja sjá á Zíonshæð. Hann er mestur allra i sögu Gyðinga, og liann er líka einn af spámönnum múhameðssinna. Nú er ekki framar deilt um gröf lians. í þeirri deilu varð sætt, á þann liátt að gerð voru tvö minnismerki eða grafreitir. Graf- hvelfing Gyðinga er á II. hæð en Múhameðstrúarmanna á hæðinni fyrir ofan. Mikill gestagangur er á báðum stöð- unum og trúræknin er jafn einlæg við báðar grafirnar. Á annarri hæð leiðir gömul landnemakona af Gyð- ingaætt 12 ára son sinn að gröf Davíðs. Bæði eru þau gagntekin. Eftir 60 kyn- slóðir í útlegð, standa þau í mesta helgidómi Gyðinga. Á III. hæð eru fimm Arabar á linjánum, snúa andlit- inu til Mekka og þylja bænir. Það er hátíðleg prúðmennska yfir þvi bæna- haldi. jl Zíonshæðin með einum af fjórum borgarmúrunum, sem voru kringum gömlu Jerúsalem. í húsinu til hægri eru ýmsar fornar menjar og minningastaðir. Kristnir menn sem koma á Zíons- hæð leila fyrst uppi gröf Maríu meyj- ar. Ilún er i undurfagurri kaþólskri kirkju, sem er prýdd fágætum gjöfum úr öllum kaþólskum heimi. Um sjö læstar dyr verður að fara áður en komið er niður í grafhýsið, djúpt niðri í kjallaranum. Um að gera að lileypa engum aðskotadýrum inn, einkum Gyðingum. í þessum gömlu húsum eru einnig mannaverk frá 20. öld. Eitt herbergi er helgað þeim sex milljón Gyðingum, sem voru teknir af lífi í þýskum fanga- búðum. Hér er aska frá Auschwitch og Maidaneck, hér er safn af kirkju- munum, sem notaðir voru á laun í fangabúðunum. Þrenn lieimstrúarbrögð eiga minjar hér á sama stað, og það verður elcki annað séð en þau uni sér vel í sambýl- in. Þó að þau halda því fast fram hvert

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.