Fálkinn - 29.10.1954, Page 9
FÁLKINN
9
Sammy væri dauður, en þó gat
hugsast að hann hefði átt að hitta
einhvern í kvöld. Sammy átti
heima í umdæmi Watsons fulltrúa
og Watson mundi skrifa Johnny
fremstan á skrána yfir þá sem
hann yfirheyrði.
Hann hresstist ofurlítið er hann
hafði stungið lyklinum í skráar-
gatið heima hjá sér og fór inn.
En hvað var þetta? Hann fékk of-
birtu í augun af öllum ljósunum.
Hann þóttist viss um að hann
hefði slökkt áður en hann fór.
Hann flýtti sér inn í dagstofuna.
Maður í regnkápu og með linan
hatt sneri sér í stólnum og horfði
á hann með opinn munninn.
Johnny saup hveljur. Svo að
Watson hafði þá leyft sér að gera
húsrannsókn hjá honum án þess
að gera honum aðvart á undan!
Það skyldi hann svei mér fá
borgað seinna. Hann hikaði sem
snöggvast — svo mundi hann eft-
ir tvífaranum á veitingaskálanum.
Hann mundi vera farinn núna.
— Hvað á þetta að þýða, Wat-
son? spurði hann kuldalega.
Lögreglumaðurinn hnyklaði
brúnirnar og strauk hökuna með
loðnu handarbakinu. — Ætli það
standi þér ekki nær að gefa skýr-
ingu, Johnny, sagði hann.
— Þú sálaðist á Casanova Rest-
aurant í kvöld, og ég fór hingað
til að virða dánarbúið þitt. Getur
þú gefið mér nokkra skýringu á
hvers vegna dauði maðurinn var
í fötum af þér og með vegabréfið
þitt og vasabókina þína? Og hann
var nauðalíkur þér í þokkabót. Þú
munt ekki hafa þurft á tvífara að
halda í kvöld? Kannske það sé
skýringin?
Johnny mundi allt í einu eftir
föla andlitinu á tvífaranum sínum
og það fór hrollur um hann. Svo
að hann var þá ekki lengra frá
dauðanum en þetta. Hann studdi
sig við borðið og Watson kom til
hans þegar hann sá hræðsluna
sem skein út úr andlitinu. Hann
tók í handlegginn á Johnny og
hjálpaði honum í næsta stól.
— Það blæðir úr handleggnum
á þér, sagði hann stutt. — Hvers
vegna?
Nú var leikurinn tapaður og
Johnny vissi það. Sljóvum augum
horfði hann á ísbláu augu and-
stæðings síns og horfði á hann
meðan hann var að velja númer
á símaskífunni. Watson var stutt-
ur í spuna og hafði ekki augun af
manninum í stólnum.
— Watson hérna, sagði hann,
— getið þið sagt mér hvort nokk-
uð hefir komið fyrir Sammy Cas-
ino í kvöld. Jæja, þið athugið það
og náið svo í mig. Ef eitthvað hef-
ir komið fyrir Sammy, þá er hérna
maður, sem vafalaust getur gefið
skýringu á því. Já, við bíðum
hérna — er það ekki, Johnny? #
Jane Rnssell
hefir skap sem segir „sex“. — En „hjartað, þar er gull“, eins og í Sveinu dúfu.
ONGINN getur neitað því að Jane
C Russell sé skapstór. Hún getur
orðið svo tryllt af vonsku aS fólk verS-
ur lafhrætt viS hana, en allt í einu
verSur hún að einu hrosi og þá skín
í mjallhvítar tennurnar og jafnvel
verstu hatursmenn hennar falla i
stafi. Hún getur gert afgreiðslustúlku
í tískubúð hálfbrjálaða og hún getur
hálfdrepið tískuteiknarana. En þeir
sem þekkja hana vel og oft liafa orSið
fyrir æðisköstunum í henni segja, að
í rauninni sé hjartað gull í „gömlu
Jane“, en svo er hún kölluð aS jafnaði.
Það er undraverður munur á þeirri
Jane Russel, sem sýnir „sex appeal“
og glens á kvikmyndatjaldinu og liinni
sönnu Jane. í einkalífinu er lítið um
léttúð hjá henni, hún er mikil trúkona
og hefir eldheitan áhuga á félags-
málum og liknarstarfsemi. En liún hef
ir þann galla að fresta mörgu til sið-
ustu stundar, og þess vegna er oft
fum á henni.
Hún gleymir til dæmis oftast að
hafa með sér peninga og er þess vegna
oft auralaus þegar verst gegnir, eins
og t. d. þegar henni datt í liug aS fara
til London. Hún hafði afráðið þetta i
flýti og bað vini sína að koma út á
flugvöll til að kveðja sig. Þegar hún
var að ganga inn í flugvélina upp-
götvaði hún að hún hafði ekki nema
einn dollar á sér. „Hvers vegna minn-
ið þig mig ekki á að hafa með mér
peninga?“ öskraSi hún til kunningj-
anna. Stundum þegar hún er að fara
út úr bílnum sínum tekur hún eftir
hrúgu af bögglum í aftursætinu og
hrópar: „Æ, þessa böggla ætlaði ég að
senda fyrir viku!“
Ungt fólk sem á við einhverja erfið-
leika að striða, flykkist að Jane, því
aS það er alkunna, að liún er hollráð-
ust allra í Hollywood. Hún er eins og
móðir villuráfandi unglinga, huggar
þá eftir bestu getu — eða fer með þá
í kirkju. Og á kvikmyndastöðinni ey
klefinn hennar alltaf troðfullur af
alls konar fólki, enda hefir hún gaman
af að tala við fólk — þangað til allt í
einu að hún rekur alla út og vill vera
ein, til að hugsa sig uin, áður en hún
fer að leika. Þá rekur hún upp væl,
eíns og kálfur sem hefir meiðst, og
allir hypja sig hurt. En þeir sem
þekkja hana best fara ekki langt, því
að þeir vita að eftir dálitla stund rek-
ur Jane hausinn út í gættina og kallar:
„Hvað er orðið af ykkur? Hérna er
hljótt eins og í gröf!“
Öllum kemur saman um að skemmti-
legri manneskja sé ekki til en Jane —
þegar lnin er i góðu skapi. Og það
besta við hana er að hún er ein af
þeim fáu kvikmyndastjörnum sem
getur öskrað af vonsku en verður ekki
reið þó að aðrir öskri á móti.
Terry Moore
kann að veiða karlmennina.
CF þú, ungfrú góð, ert i vafa um
hvernig þú eigir að ánetja piltinn,
sem þér líst vel á, skaltu lesa það sem
Terry Moore, hin upprennandi kvik-
myndadís, segir um þetta mál. Það
getur verið að þú hafir gagn af ráð-
leggingum hennar. Svo mikið er vist,
að allir piltar með fullu viti eru vit-
lausir eftir henni.
Þetta eru einföld ráð, en koma að
haldi á livaða áfanga sem er, allt frá
því að pilturinn og stúlkan hittast
fyrst, og þangað til þau standa á
hnjánum fyrir altarinu og prestinum.
Terry segir: Það er alltaf verið að
kenna fólki hvað það eigi að gera og
ekki gera eftir að það er gifl, en það
mikilsverðasta er vanrækt: að kenna
stúlkum að liaga sér þannig að piltar
hjóði þeim út með sér. Fyrsta ráðið
mitt er: Látlu taka eftir þér!
Taktu eftir smástrákunum i húðun-
um: þeir horfa mest á leikföng og um-
búðir, sem eru með fallegum litum.
það, gera stóru piltarnir líka. Þeir
vilja að stúlkurnar séu áberandi i
klæSahurði. Svo að ef þið vandið til
falanna þá er tekið eftir ykkur.
Að halda í hann. Þegar hann er far-
inn að hjóða ykkur út með sér er
næsta viðfangsefniS að missa ekki af
honum. Þá reynir á ykkur að vera
ekki innantómar og sýna að þið kunn-
ið skil á mörgu og getið lagt orð i
belg, svo að hann segi: „Hún er ekki
bara lagleg, hún er bráðgreind líka!“
En varið ykkur á að vera of spekings-
legar! Mér liefir reynst best að vita
dálítið um sem flest, og að vita nóg
til þess að heimska sig ekki. Og fjas-
mikill á maður ekki að vera. Vissast
að vera sem oftast sammála honum.
Þegar konur eru afbrýðisamar.
Það kemur stundum fyrir að konur
taka að sér framkvæmdavaldið ef
þær uppgötva að maðurinn þeirra hafi
verið þeim ótrúr. í Frakklandi er þess
háttar algengt, og þau eru ekki fá
morðin, sem þar eru drýgð í afbrýði.
í Nantes gerðist öðruvísi saga. VíS-
sýnn eiginmaður trúði konunni sinni
fyrir þvi að hann ætti vingott við
frmmistöðustúlku á veitingahúsi i
bænum.
— En hvað það var gaman. Hún
yngir þig upp. Blessaður bjóddu henni
heim. Við skulum gera okkur daga-
mun og gera vel við liana.
Og svo kom frammistöðustúlkan,
dálitið subbuleg en fallega vaxin og
ljóshærð. — Viljið þér gera svo vel
og koma upp á loft og fara úr kápunni
þar, sagði frúin. Þær fóru upp i svefn-
herbergið en þegar þær voru komnar
inn úr dyrunum sló frúin hana i rot
með sandpoka. Hún lét manninn sinn
sækja lækni, en á meSan klippti hún
hárið af stúlkunni, sápaði svo hausinn
á henni og nauðrakaði stúlkuna. Þeg-
ar maðurinn hennar kom aftur ráð-
lagði hún honum að þegja yfir þvi
framvegis, ef hann lenti á villigötum.
Hún hefði átt að spyrja manninn sinn!
Á pressuballinu i Bonn var liapp-
drætti. En það varð klúður út af aðal-
vinnungunum. Annan þeirra, Merce-
des-Benz bifreið, vann lögregluþjónn,
sem þarna var staddur sem lífvörður
lýðveldisforseta og mátti ekki kaupa
miða. Hinn vinningurinn var skemmti-
ferð fyrir tvo til Miðjarðarhafslanda.
Hans var heldur ekki vitjaS. Frúin,
sem hafði fengið þennan vinning,
hafði farið á dansleikinn án vitundar
mannsins síns, og þorði ekki að segja
honum frá því!
„Ég skaut ekki vegna stelpunnar
heldur vegna ölsins,“ sagði þýsk frú
fyrir rétti nýlega. „Læknirinn hafði
bannað manninum minum að drekka
öl.“ — Hún liafði séð manninn sinn
inn um glugga á ölknæpu, með stelpu
i fanginu og gerði sér litið fyrir og
skaut á liann inn um gluggann. Hún
hitti hvorki hann né stelpuna, en allt
komst í uppnám og konan varð að
borga sekt og rúðu.