Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1957, Side 5

Fálkinn - 31.05.1957, Side 5
FÁLKINN 5 Toscanini stjórnaði fjölda hljómsveita sem gestur. Hér sést hann stjórna Philadelphia-hljómsveitinni frægu, sem fólk heyrir oft í útvarpinu. Þrjár kynslóðir höfðu hlustað á tónlist hans í hljómieikahöllum stórborganna og þeim smærri borgum, sem hljómsveit hans hafði gist. Hljómplötur hans skip- uðu jafnan öndvegissess í klass- iskri tónlist og í eigu milljóna af heimilum. Bandaríkjamenn meta líka mikils skapríka menn og þeir dáðust að manninum, sem neytti allra bragða til þess að fá hljóðfæraleikara sína til að gera sitt ítrasta. Og þá dáðu Banda- rikjamenn ekki síður, hve kröfu- harður hann var í stjórnmálum. Hann neitaði að ganga í þjónustu fasistmans ítalska og ekki tók hann í mál að stjórna hljómsveit í Þýskalandi Hitlers. En þó að margar sögur kæmu á kreik um andspyrnu Toscaninis gegn ein- ræðinu, þá var það samt mála sannast að hann var óframfærinn maður og honum var lítið um að vekja umtal. Blöðin sögðu oft sögur af skapríki hans þegar hann var að æfa hljómsveitirnar, en undirrót þess, sem gerðist í skiptum hans við hljóðfæraleik- arana var jafnan listræn en ekki persónuleg. Það gengur kraftaverki næst hve mikið starf Toscanini tókst að inna af hendi, sem tónlistar- stjóra. Hann hafði gegnt því starfi í 68 ár. Fyrstu hljómleik- unum stjórnaði hann í Buenos Aires nítján ára gamall, er hann var beðinn um að hlaupa í skarð- ið fyrir hljómsveitarstjóra, sem ekki mætti á réttum tíma. En hann var 87 ára er hann lagði niður taktstokkinn eftir kveðju- hljómleika sína í Nevv York. Á þeim árum, sem liðu á milli var hann dáður og frægur hljóm- sveitarstjóri í þremur heimsálf- um og stjórnaði mörgum fræg- ustu hljómsveitunum, sem til eru í heiminum. Árum saman átti hann heima í Bandaríkjunum og starfaði þar aðallega með þrem- ur hljómsveitum. Fyrst stjórnaði hann hljómsveit Metropolitan- óperunnar árin 1908—T5. Næst gerði hann New York Philhar- monic að frægri hljómsveit á ár- unum 1926—’36, og loks tók Stjörnulestur eftir Jón Arnason prentara. Nýtt tungl 29. maí 1957. Alþjóðayfi rtl.it. Breytilegu merkin eru yfirgnæf- andi í áhrifnin. Breytin'gar gætu ]ivi átt sér stað í ýmsum greiiium alþjóSa- viðfangsefna. Ymsar tillögur koma til lagfæringa, en hætt er við að veru- legur hluti þeirra komi ekki til fram- kvæmda, því þær verða fyrir gagn- hann við stjórn National Broad- casting Symphony Orchestra, sem síðar tók sér nafnið ,,The Symp- hony of the Airy, og var þessi hljómsveit aðallega stofnuð um hann. Þar stjórnaði hann árin 1937—’54 Það var sem stjórnándi þessarar hljómsveitar, sem Tosc- anini flutti tónlistina inn á ótelj- andi heimili og varð kærkominn heimilisvinur milljóna manna. Nú er Maestro — meistarinn — horfinn og með honum likur tímabili í tónlistinni, því að hann brúaði bilið milli rómantískrar tónlistar nítjándu aldarinnar og nútímatónlistarinnar. rýni -og töfum í nieðferðinni. Slæm- iir fjárhagur kemur til greina og yfir- ráðalöngun stendur í vegi eins og áð- nr hefir komið i ljós. — Tölur dags- ins eru 2 + 9 + 5 + 5 + 7 = 28-10=1. Sól- in er í mjög þróttmiklum áhrifum og nuin injög ýta undir áhrif þau, sem lýst er 'hér að framan Tímabil þetla mun því nokkuð atluigavert í ýms- um greinum og ef til vill örðugt að átta sig á því hvað verða mun. Lundúnir. — Nýja tunglið er í 10. húsi, ásamt Vcnusi. Er jielta frekar góð afstaða stjórnarinnar, jafnvet þó að Satúrn sé í andstöðu frá 4. húsi. Fjárhagsaðstaðan ætti að vera góð. Þó gætu tafir nokkrar komið lil greina frá andstæðingum. Júpíter i 1. húsi. Friðsæl áhrif á almenniug og lieil- hrigði ætti að vera með betra móti. — Neptún í 3. húsi. Fjárhagsaðstaða gæti verið aliiugaverð og undangröft- ur komið til greina í rekstri sam- gangna og járnbrauta og frétta. — Satúrn i 4. húsi. Slæm aðstaða bænda og landeigenda. — Merkúr i 9. húsi. Siglingar og utanrikisverslun undir góðum áhrifum. — Mars í 11. húsi. Kraftur nokkur mun koma í ljós í löggjöfinni og í þinginu. Sprenging og eldur gæti koniið upp i opinberri byggingu. Berlín. — Nýja tunglið og Merkúr í 9. húsi. Utanlandssiglingum og verslun veitt mjög mikil athygli og mun ganga vel og umræður verða um þær. — Júpiter í 1. húsi. Afstaða al- mennings góð og friðsæl og heilbrigði með betra móti. — Neptún í 2. húsi. Bankarekstur og peninga og verð- bréfaverslun undir athugaverðum á- hrifum. Svik gætu komið í ljós í þess- um greinum. — Satúrn i 4. húsi. At- hugaverð afstaða bænda og tafir koma i ljós í rekstri þeirra. Stjórn- in verður fyrir andstöðu og gagnrýni. — Venus og Mars í 10. húsi. Afstaða stjórnarinnar ætti að vera sæmileg, jafnvel þó að afstaða Venusar séu siæmar. — Úran í 11. húsi. Sprenging gæti orðið í opinberri byggingu. Moskóva. — Nýja tunglið í 9. húsi ásamt Venusi. Siglingar og viðskipti við útlönd undir athugaverðum á- hrifum og umræður nokkrar. — Mars i 10. húsi ásamt Úran. Hætta á að hernaðarandinn fái aukin tök meðal ráðendanna. En hættan verður þvi samfara. — Neptún i 2. húsi. Slæm afstaða. Örðugleikar og svik koma í ljós frá utanlandssiglingum og verslun. Fjárdráttur á sér stað. — Satúrn í 3. húsi. Tafir og Iruflanir i rekstri flutningatækja og frétta- fiutnings, útgáfu blaða og bóka. — Júpíter í 12. húsi. Stjórnin inun gera eitthvað i þá átt að bæta fangabúðir og vinnuhæli. Tokyó. — Nýja tunglið i (i. luisi. Verkamenn og afstaða þeirra mun mjög á dagskrá og veitt ahnenn at- hygli. Sjúkramál gætu einning komið lil greina. — Merkúr í 5. lnisi. Leik- húsastörf og rekstur þeirra nnin mjög á dagskrá og umræður nokkrar um þau. — Mars og Úran í 8. lnisi. Kunn- ur verkfræðingur i skipaiðnaði gæti látist. — Júpiter i 9. húsi ásaml Plútö. Utanlandssiglingar ættu að ganga vel og gefa arð og skipabyggingar aukast. — Ncptún í 11. húsi. Löggjöf undir töfum og koma þau áhrif að nokkru frá utanaðkomandi áhrifum. — Utan- ríkismálin örðug viðfangs og afstaða almennings athugaverð. Washington. — Nýja tunglið og Venus i 12. húsi. Betrunarhús, vinnu- Framhald á bls. 14. Fólki gafst kostur á að sjá lík Toscaninis í tvo daga, áður en útförin fór fram. Um 5.000 manns gengu framhjá kistunni og sumir krupu á kné og gerðu bæn sína.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.