Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1957, Blaðsíða 9

Fálkinn - 31.05.1957, Blaðsíða 9
FÁLKINN 9 Olíukóngurinn Ibn Saud á 100 Cadillac-bíla augu mœndu á borðið þeirra og borfðu á 'hvernig Matthew starSi á stúlkuna — og þaS sem verra var — brosti til hennar. Ef til vill vorkenndi fólkið Joyce, að hún skyldi vera með Matthew. Kannske sagði það „aum- in.gja stúlkan!“ um hana. Eða: „ég mundi ekki taka þessu þegjandi ef ég væri í hennar sporum." Stúlkan i baðfötunum leið áfram fram aðalganginn, en Matthew elti hana með augunum og hló og klapp- aði. — í hverju skyldi hún verða næst, sagði hann þegar hún var liorfin. — Það verður gaman að sjá það. Þessi stúlka sómir sér vel i hverju sem hún er. Joyce starði hugsandi niður á disk- inn. — Ég vil lielst fara, sagði hún. Hann varð hissa. — Fara? Gengur eitthvað að þér? Ég hélt einmitt aS kvenfóik hefSi svo gaman af svona sýningum. — Nei, þaS gengur ekkert aS mér. En ég vil helst fara. Hann baS um reikninginn. — Eig- um viS ekki aS bíða og sjá hana einu sinni enn? Mér finnst gaman aS þvi ... Hann sagSi ekki meira. Hann sá að Joyce vildi helst ekki vera þarna lengur. Hann gekk við hliðina á henni fram ganginn til dyranna, sem sýni- stúlkurnar voru vanar að koma út um. Þau urðu að bíða eftir lyftunni rétt við þessar dyr og bæði stóðu og liorfðu á þær. Joyce var að hugsa um hvað Matthew mundi gera ef sýni- stúlkan kæmi í þessu. Mundi hann tcla við liana? Lyftan kom og flutti þau niður. Þeg- ar lyftudrengurinn sneri sér frá greip Matthew í höndina á Joyce og þrýsti hana. Hún fékk tár í augun. Hann gerði þetta vafalaust af því að hann vorkenndi henni. Þau voru ekki sönn, öll fallegu orðin, sem höfðu staðið í bréfunum hans. Honum þótti ckki vænt um liana. Honum leist vel á ögrandi ungar stúlkur, með gervi- augnahár. Stúlkur sem dufluðu við unga menn, sem voru úti með unn- ustunni sinni. ÞEGAR þau fóru út úr vöruhúsinu var hún að velta fvrir sér hvað mundi koma næst. Allt hafði ger- beryst á þessum hálftíma. Ef til vill mundi Matthew fylgja 'henni heim svo að hann gæti farið aftur á veit- ingastaðinn og ... Þau gengu saman fram götuna. Nú sló klukkan hálfsex. Matthew greip í handlegginn á henni og sagði: „Er hún orðin svona margt? Þá er best að ég fyigi þér heim.“ Joyce varð ekkert hissa á því. Ef til vill var tesalnum lokað klukkan sex, og hann mundi ætla að hiða fyr- ir utan þangað til sýnistúlkan kæmi út, hugsaði Joyce beisk með sér. Hún hlýddi 'honum og fór inn i bílinn, sem hann liafði stöðvað. Og aftur dró hann liana að sér og kyssti hárið á henni. Sem betur fór gat hún ekki séð framan i 'hann. Aug- un voru full af tárum og varirnar titruðu. Honum þótti ekki vænt um hana framar. Allt sem liann hafði skrifað var eintóm lygi. Hann hafði meira að segja gert teikningu af hús- inu, sem hann ætlaði að byggja. — Það var mjallhvítt hús með grænum hlerum fyrir gluggunum. — Hvernig mundi liann kveðja hana? Mundi liann segja: — Mér þyk- ir þetta leitt, en það var eintómur misskilningur. Eða mundi hann bara segja: — Sé þig bráðum aftur. Og 'hún? Hún varð að gæta þess að snúa að honum bakinu meðan hún væri að opna dyrnar í matsölunni — og fara inn til alls ókunnuga fólksins, sem hún átti ekkert sameiginlegt með. Hún gat ekki einu sinni grátið í friði inni í herberginu sinu, því að hún bjó með annarri stúlku. Matthew borgaði bilstjóranum með- an hún gekk upp breiðu þrepin og var að leita að lyklinum í töskunni sinni. Svo kom hann 'hlaupandi á eft- ir henni. — Ætlarðu ekki að kyssa mig? spurði hann glaðlega. Varirnar titruðu. Skilnaðarkossinn. SkilnaSur við allt, sem hún liafði hlakkað til og hana hafði dreymt um allt það, sem borð handa tveimur átti til af gæfu! Hún beið. Hann faðmaði liana að sér og kyssti á henni hárið, ennið og votar augnabrúnirnar. — Hvað er þetta — þú ert að gráta, sagði hann forviða. — Eru það kannske gleðitár. Hann tók undir hök- una á henni og liorfði í augun á henni. — Þú verður að vera hætt að orga fyrir klukkan hálfátta. Þá kem ég og sæki þig. Og þú verður að vera í fallegasta kjólnum þínum. Við skulum borSa miðdegisverS saman á einhverjum litlum rólegum stað, og á eftir förum við og dönsum ein- hvers staðar þar sem hávaðinn er svo mikill, að þú getur ekki 'heyrt til sjálfrar þín. Og þá ætla ég að segja þér aftur og aftur hve vænt mér þyk- ir um að þú skulir ekki vera sýni- stúlka. — En ég liélt ... byrjaði hún og vissi ekki hvaðan á liana stóð veðrið. — HvaS liélstu? Hann kleip liana i kinnina. — Ég hugsa að ég viti hvað þú hélst. — Ég liefi gaman af falleg- um sýnistúlkum á alveg sama hátt og ég 'hefi gaman af þvi, sem setur titbreytingu á daglega lifið. En ég vil ekki hafa sýnistúlku sitjandi á móti mér við lítið borð 'handa tveimur. Þegar Joyce kom inn í lierbergiS sitt ’hrundu tárin niður kinnarnar á henni. Og liún lét þau renna — því að nú voru það gteðitár. HAFMÆR í FJÖRUNNI. — Það er engin furða þó að Hollendingurinn sem er við rækjuveiði reki upp stór augu er hann sér hina fögru haf- meyju í sjávarmálinu í Zandvoort. Hann vissi nefnilega ekki að sú hin sama aðstoðaði við opnun baðhátíð- arinnar þar á staðnum. —0— John gamli Rockefeller var stund- um kallaður „olíukóngurinn“. En kóngarnir í Ameríku eru alls ekki ekta. ÞaS er hins vegar Tbn Saud IT. Arabakonungur. Og hann er rétt- nefndur mesti olíukóngurinn, sem nokkurn tíma hefir verið uppi. Þessi einvaldi höfðingi, sem heitir fullu nafni Saud Ibn Abdul Aziz al Faisal al Saud, heimsótti Bandaríkja- forseta í vetur. Vegna olíunnar stend- ur Bandaríkjamönum ekki á sama hvoru megin hryggjar hann liggur, og þess vegna var tekið veglega á móti honum. Bandaríkjunum stendur á miklu að hafa hann góðan. Fyrir þúsund árum kvaS mikið að Aröbum í veröldinni. Þeir lögðu und- ir sig lönd og komust alla TeiS vestur á Spán og norður i Miklagarð til að brjóta undir sig lönd og boða skríln- um hina einu sönnu trú Allah. En eftir þetta tá Arabía siálf í dvala öld eftir öld, allt fram að fyrri heims- styriöldinni. Þá fóru Bretar að ffefa Aröbum undir fótinn, þeir þurftu á liðsinni þeirra að halda til þess að gefa Tyrkium rothöggið — banda- mönnum ÞjóSverja. En fyrir aðeins 20 árum var ekki ein einasta verksmiðia. vegarspotti eða símaáhald til í allri Saudi-Arabíu. Þá fannst olian þar og nú breytti skjótt um. Ýms stærstu olíufélögin stofnuðu félagið ,,ARAMCO“ (Arabian American Oil Company) og gerðu samning um oluvinnslu við gamla Ibn Saud, föður núverandi konungs. En svo kom stríðiS og litið varð úr framkvæmdum fyrr en 1945. SiS- an hefir olían runnið stanslaust upp úr borholunum i Arabíu. Og tekjurn- ar renna í vasa Ibn Sauds, því að hann er einvaldur, og ríkissjóðurinn er hans eigin vasi. Kóngurinn hefir varið miklu af olíupeningunum til að reisa sér hallir og kaupa Rolls Rovce- og Cadillac-bíla, en miklu fé ver liann iika til félagsmála, þótt hann sé eftir- bátur furstans af Iíuwait i því efni. Arabar hafa fram á þennan dag verið liirðingjar og ekki hirt um vestræna siði, og enn nota stúlkurnar þar úlf- aldahland í stað hárvatns. ASeins 5 af hverjum 100 manns kunna að lesa og skrifa. En nú er farið að stofna skóla í Arabíu. Gamli Ibn Saud átti kringum 40 syni og sæg af dætrum. Hann reyndi að hafa strangt uppeldi á sonum sín- um og venja þá við harðrétti og eyði- merkurlíf og vopnaburð. Elsti sonur hans bjargaði eitt sinn lífi hans með ]>vi að vinda sér fram fyrir mann, sem ætlaði að reka gamla Saud í gegn. Saud yngri fékk svöðusár í öxlina, en sá gamli slapp. Var ]>vi ekki furða þótt hann hefði meiri mætur á þess- pm syni sinum en hinum, og gerSi hann að konungi eftir. sinn dag. — En þegar oliupeningarnir komust i umferð fóru bræðurnir að taka upp nýja háttu; þeir ferSuðust land úr landi og vöndust lifsliægindum og nautnum vesturlandabúa og bárust mikið á og þóttu góðir gestir í nátt- klúbbunum. Gamli Ibn Saud dó 1951 og prins Saud tók ríki, 51 árs. Hann er mikill á velli, yfir 190 cm. á liæð, og virðu- legur i framgöngu. Þegar liann tók ríki voru tekjur konungsins af oliunni komnar upp í 300 milljón dollara á ári. Svo að konungur getur veriS rausnarlegur þegar hann vill það við hafa. Enda fer orð af gjöfum hans. Þannig gaf hann Sorayu Persadrottn- ingu um milljón dollara virði í gim- steinum, er hann heimsótti Persa hér um árið. En sjálfur berst hann lítið á, að undanteknu því að hann hefir keypt sér kringum 100 Cadillac-bíla. Hann hækkaði laun allra æðstu em- bættismanna er hann tók völd, en þeir eru flestir bræður hans og frændur. Þetta eru 322 furstar, og fá þeir að meðaltali um 30.000 dollara í árslaun, auk ókeypis bústaðar og viðhalds á höllunum, sem þeir húa í. Ibn Saud skipaði tiu manna ráðu- neyti sér til aðstoðar og er Faisal krónprins forseti þess. En í ráðuneyt- inu eru fjórir prinsar og fá þeir 300.000 dollara laun. En Ibn Saud ver lika miklu fé til þarflegra liluta. Hann hefir til dæmis látið byggja 36 stór sjúkrahús, gert vatnsveitur um eyðimörkina og sett upp sementgerðir til að framleiða efni 1 byggingar og vegi, og miklu fé ver liann til skóla. Honum er umhugað um að fá góða skrifara — gerðabók stjórnarinnar er skrifuð með blýanti ennþá og engin afrit tekin af stjórnar- bréfum. Ibn Saud lætur sér annt um pila- grímana, sem safnast til Mekka á hverju ári og ganga sjö sinnum kring- um Kaaba-stúkuna, mesta helgidóm múhameðssinna, og kyssa hana. Um 200.000 pílagrímar koma árlega til Mekka i þessum erindum. Þeir voru oft hungraðir og þyrstir og arabiskir kaupmangarar notuðu sér neyð þeirra til að féfletta þá. Ibn Saud hefir látið setja upp hjálparstöðvar fyrir píla- grimana, og ennfremur hefir hann varið miklu fé til að endurbæta musterið og laga til í borginni. Þótt að mörg menningarmerki séu í Arabiu gilda þar þó ýmsir æva- gamlir siðir. Til dæmis er höndin höggvin af manni sem stelur. Þetta er hræðileg refsing enda er sáralítið um þjófnað í Arabíu. Ibn Saud lætur sér annt um liag þegna sinna. Hann ferð- ast mikið um landið i ameriskri Convair-flugvél, lilustar á kveinstafi sheikanna og gefur þeim stundum bíl til að hugga þá, eða lætur þá fá skóla eða spítala. En þó gleymir hann ekki sjálfum sér. í þau sex ár sem hann hefir verið konungur hefir hann varið kringum 100 milljón dollurum til að byggja liallir yfir sig og kvennabúr sín. Ibn Saud er árrisull. Hann fer á fætur klukkan 4 og les i Kóraninum. Fimm sinnum á dag þylur hann bænir í musterinu og snýr andlitinu til Mekka. Fyrir hádegið veitir hann eyðimerkurhöfðingjunum áheyrn, en síðdegis hefir hann gaman af að sjá syni sína harnast í knattspyrnu eða körfubolta. Hann hefir nóg í tvö knattspyrnulið, þvi að hann á 25 syni. Hve margar dætur liann á kærir sig enginn um að vita. Eftir miðdegisverð fer hann i kvennabúrin og talar við konur sín- ar i liálftima eða svo. í kvennabúrinu Framhald á bls. 14.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.