Fálkinn


Fálkinn - 06.09.1957, Side 11

Fálkinn - 06.09.1957, Side 11
FÁLKINN 11 LITLA SAGAN RUZICKA : Pietro hinn hugvitssami Einn daginn stóS þessi auglýsing í öllum blöSunum í Milano: „Ég er þrítugur, efnaöur, músikalsk- ur, íþróttamaður, viðfelldinn, tilfinn- inganæmur. Óska eftir ungri, fallegri stúlku sem lífsförunaut. En hún verð- ur að tíkjast hetjunni í skáldsögu Pietros Vallorio: „Intermezzo di Angela". Svar sendist til Sperante 896.“ IÞessa auglýsingu lásu margir. Og þessu lík samtöl spunnust út f 'henni í Milano: Móðirin: — Lucia, hérna eru 20 lír- ur! Keyptu þessa vitlausu sögu strax, þá geturðu svarað auglýsingunni á morgun. Faðirinn: — Hérna ætla ég að gefa þér „Intermezza di Angela. Lestu sög- una strax. Manni hýðst ekki rikur brúðgumi dags daglega.“ Frænkan: — Það hlýtur að vera freistandi fyrir þig að lesa þessa sögu, úr því að þú heitir Angela. Freistaðu gæfunnar. Dóttirin: — Mamma, ég má til með að lesa þessa sögu. Þig hefir alltaf langað til að eignast ríkan tengdason. Um morguninn höfðu 10.000 eintök af sögunni legið í bókabúðunum, um nón var hvert einasta uppselt. Prent- smiðjan varð að fara á stúfana og prenta nýtt upplag í skyndi. Næstu daga seldist bókin áður en svertan Jjornaði á henni. Greinar komu um hana í blöðunum. Hver var þessi Pietro Valerio? Hvað hafði hann skrifað áður. Og hvernig var þessi bók eiginlega. Hún var hvorki betri né verri en sögur flestar, en sem aldrei eru prentaðar i 200.000 upplagi á tveimur vikum. Hver var þessi heppni rithöfundur? Nú víkur sögunni aftur í timann, mánuði áður en auglýsingin kom. Hinn ungi höfundur situr á nálum hjá Brocci forleggjara. Sá síðarnefndi er að enda við að segja: — Kæri Vallerio, ég þori þetta ekki. Hver þekkir yður. Mér líkar sagan ekki vel, en þér eruð öllum ókunnugur. — Prentið þér söguna, herra Brocci. Ef ekki seljast tíu þúsund eintök fyrstu vikuna, skal ég borga upplagið! 'Forleggjarinn kinkar kolli. Þrem- ur vikum síðar kom bókin út. Enginn tók eftir 'henni í búðargluggunum. Pietro var vonsvikinn. Hann hafði lofað að borga forleggjaranum upp- hæð, sem var um það bil hundrað sinnum hærri en allt sem hann átti í reiðu fé. Bara að hann gæti nú fund- ið úrræði — gott úrræði! Hann var hugmyndarikur rithöfundur, því skyldi hann ekki geta fundið úrræði? Og allt i einu brosti hann. Hann hopp- aði af kæti, því að hann hafði fundið úrræðið. Og svo hljóp hann eins og hind milli blaðanna með auglýsinguna sína. Nú var Pietro orðinn rikur líka og herra Brocci gerði samning við hann um allt sem hann skrifaði um ævina. En auglýsingin hafði líka önnur áhrif. Bréfin frá giftingarfúsum stúlkum hlóðust upp heima hjá Pietro. Hann komst ekki yfir að lesa öll þessi bréf sjálfur, því að þau urðu 123.716, og réð þess vegna þrjár stúlkur til að lesa. Pietro, sem hafði haft heppn- ina með sér, vonaðist nú eftir að fá DROPÓTT TIL TILBREYTINGAR. — ★ TísUumyndit ★ -----------------1 Vitið þér...? V0 I? X að til er fólk, sem fæst ekki til að aka í bíl? Þetta er ekki af slysahræðslu eða nisku, heldur af trúarbragðaástæðum. Hinn svokallaði Amiski trúflokkur í Pennsylvaniu, U.S.A. afneitar bifreið- unum, en notar i staðinn gamaldags hestvagna. að í Vestur-Ameríku skjóta menn á eplatrén þegar þau eiga að frjóvgast? Þegar randir og blóm er yfirgnæf- andi í ár, er gaman að sjá dropótt einstaka sinnum. Þessi fíni frúarkjóll frá Manguin úr himinbláu surahssilki með stórum hvítum doppum er mjög fallegur. Pilsið fínt, ptiserað og slétt- ur dúkur að framan. „Eruð þér nú alveg viss um að þetta meðal útrými aliri veggjalús?“ „Þegar þér hafið reynt það einu sinni verðið þér faslur viðskiptavin- ur hjá mér.“ Stína, 8 ára kemur úr skólanum og er að segja mömmu sinni frá að kennslukonan hafi sagt börnunum frá Söru lians Abrahams. — Og svo kom engill og sagði að Sara ætti að eignast barn. En Sara varð steinhissa á þessu því að hún var komin yfir nírætt. En ])á sagði engillinn: „Herrum ér ekkert ómögu- legt!“ góða og blíða konu i kaupbæti, þó að þetta hefði ekki verið tilgangur hans þegar liann auglýsti. En Angelan i sögunni var eins og honum fannst að lcona ætti að vera. En lífið er margbrotið og mennirnir líka. Loks orðnar þrjár eftir af þess- um 123,796, sem liktust Angelu. Ein af þessum þremur hét Giulia — og hún kvarð frú Giulia Vallerio. Þess skal getið að Giulia þessi var ein ])eirra, sem fengin hafði verið til að lesa bréfin. Hún hafði aldrei lesið söguna, en laumaði bréfi frá sér i bunkann þeg- ar hann var farinn að þynnast. Svo að hugvitsamur Pietro fékk hugvit- sama Giuliu. * HUBERT DE GIVENCHY notar einn- ig dropótt efni til að skreyta þenna einfalda léreftskjól sem er hnepptur að aftan og einnig hálsmálið á hin- um kjólnum. BEINT FRÁ FLORENS kemur þessi þægilegi kjóll úr grófu rúðóttu ullar- e'fni. Hann er með prinsessusniði og hin litla falska bolero sýnir greini- lega hið háa mitti. Þessi kjóll á ef- laust betur við hér hjá okkur en und- ir hinni suðrænu sól. Þessi tré frjóvgast ekki af sjálfu sér, og þess vegna er skotið á grein- arnar blómduftinu. Aðferðin er fljót- leg — það tekur aðeins þrjár mínútur að frjóvga livert tré. VO17-J - að hægt er að hlusta eftir afstöðu stjarnanna? Allar stjörnur stafa frá sér geisla- bylgjum, sem auðveldlega komast gegnum rykið í geiminum, sem byrgir mannlegu auga sýn. Ýmsar geisla- bylgjur koma frá stjörnum, sem eru svo óra-fjarri að þær sjást ekki i stjörnukíkjum, en með útvarps- hlustunartækjum er hægt að ákveða afstöðu þesara ósýnilegu stjarna og marka þær uppdráttinn. „Hún Magga gengur á milli góðbú- anna og segir lygasögur um mig.“ „Settu það ekki fyrir þig, góða. Þér er engin hætta búin fyrr en liún fer að segja sannleikann."

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.