Fálkinn - 27.09.1957, Blaðsíða 11
FÁLKINN
11
r——---------------------
★ Tískuitigifdír ★
-----------------------!
LITLA SAGAN
Ævilok Sinions
Konni Baldurs var kattahatari og
hatrið beindist aðallega að skepnu,
sem hét Sinfon. Það var uppáhalds-
köttur og ellihuggun Kroppshjónanna,
hræðilega gulbröndótt fress.
Konni Baldurs leigði herbergi í
Grjótagötu 128, skuggalegt herbergi
með glugga inn inn að ruslaporti, sem
Kroppshjónin ein höfðu umráð yfir.
Og kötturinn Sinfon. Vitanlega hafði
Sinfon lagalegan rétt til portsins, því
að Kroppshjónin bjuggu á 3. hæð. En
það er hvergi skráð í lögum að leyft
sé að halda sinfóniuhljómleik á slik-
um stöðum.
Og Sinfon var óvenjulega raddmik-
ill köttur og neytti einkum raddar-
innar um fjögurleytið á morgnana.
Um það leyti setti hann nágrönnum
stefnumót í portinu og söng ástar-
söngva.
í þrjár vikur hafði Konni verið
vakinn stundvíslega kl. 4 á hverjum
morgni, og nú festist sá ásetningur
í honum að myrða fressið Sinfon.
Hann vann i apóteki og átti því liægt
með að ná sér i hæfilegan skammt
af klóroformi. Og um miðnætti tók
hann til starfa með litið glas i vas-
anum.
Allt var vel i liaginn búið. Litlar
svalir inn að portinu voru við íbúð
Kroppshjónanna. Og dyrnar alltaf
opnar og i stofunni fyrir innan svaf
Sinfon i spónakörfu. Konna tókst
fyrirhafnarlítið að reisa stiga upp að
svölunum og hóf svo uppgönguna. En
það bakaði honum raun, að hann reif
flúnelsbrækurnar er liann glennti sig
yfir handriðið á svölunum.
Hann hélt niðri í sér andanunt og
læddist inn um opnar dyrnar og fann
spónakörfu Sinfons í horninu. Kött-
urinn lá þar i kuðung og var auðsjá-
anlega steinsofandi. Henry tók tapp-
ann úr klóroformglasinu, hellti inni-
haldinu i klút og sveif að skepnunni.
Hann hélt kettinum í greip vinstri
handar en þrýsti klútnum að vitum
hans með liægri. Svona sat liann
lengi, til þess að vera viss um, að
verknaðurinn hcfði tilætluð áhrif.
Eftir fimm minútur slakaði hann á
takinu á Sinfon og bros fór um and-
litið er hann sá að fressið var ekki
með lífsmarki. Og nú læddist hann
út á svalirnar jafn hljóðlega og hann
hafði komið. Allt liafði gengið að ósk-
um, nema hvað buxurnar voru rifnar.
En einmitt um leið og hann var
að hrósa sigri skeði það óhapp að
hann spyrnti við stiganum svo að
hann skrikaði og datt niður i portið,
með skell sem hefði átt að nægja til
að vekja dána til lífs innan milu
fjarlægðar. En honum létti er hann
sá hvergi lífsmark með fólki.
Konni Bahlurs lcunni lítt til klif-
urs, en afréð þó að nota vatnsrenn-
una til að lesa sig niður eftir henni.
En á annarri hæð gerði rennan verk-
fall og Konni hrapaði.
Það getur varla Icikið vafi á því,
að það var heppni að Konni slapp
við fallið með snúinn ökkla, kúlu á
stærð við liænuegg á hnakkanum og
svo skrámaða olnboga og sár á hnénu.
Hann neytti síðustu krafta sinna
til að skreiðast inn til sin og leggj-
ast á rúmið í öllum fötunum. Vegna
Jersey er ágætis efni og mikið notað.
En kjólar úr góðu jersey eru nokkuð
dýrir og fallegir eru þeir séu þeir
vel gerðir. Þessi kjóll frá Renie Lise
er næstum hvítur, með rúskinnsbelti
í mittið.
meiðslanna varð liann andvaka til
morguns. En huggun var honum að
því, að nú heyrðist ckkert í Sinfon.
Herra Kroppur var umsjónarmaður
hússins og kom niður i portið um
áttaleytið og Konni afréð að kalla
til lians og biðja hann um að ná í
lækni. Hann hafði kvöl í fætinum og
kúlan á hnakkanum fór sívaxandi,
langt fram úr því, sem slíkar kúlur
mega gera.
„Herra Kroppur, viljið þér sima
eftir lækni fyrir mig. Ég datt á hjóli
í gærkvöldi," sagði Konni veikróma.
Kroppur kom að glugganum og leit
á meiðslin. „Það er nú meira ólánið,
sem eltir okkur núna. Sinfon veiktist
í gær, og þegar dýralæknirinn kom
eftir hálftima var Sinfon dauður. Og
hjá Guðjóni á 1. hæð hefir krakkinn
fengið kighósta og dóttir hans Pusa
á 4. liæð er með magapínu.“
Konni Baldurs lagði aftur augun og
hirti eklci um fyrirlestur Kropps um
heilbrigðisástandið. Hann þjáðist
þegjandi.
Hann hafði drepið steindauðan
kött og það hafði kostað hann rifnar
buxur, eyðilagða skyrtu, snúinn ökla,
kúlu á hnakkanum og sár á hnénu.
„Æ, hringið þér nú til læknisins!"
stundi liann.
í SUNDHÖLLINA. — Þessi „strand-
föt“ eru jafnvel fallin til að vera
notuð sem sundföt eins og til að spóka
sig í þeim á baðstaðnum.
Maður verður að líta vel út þegar
farið cr í sumarheimsóknirnar til
kunningjanna eða spókar sig heima
í garðinum sínum. Þessi fallegi sam-
festingur er úr rósuðu bómullarefni,
en skyrtan er úr grasgrænu poplin.
Vitið þér...?
að fallhlífarstökk eru orðin vin-
sæl íþrótt í Kína?
Það eru mörg ár síðan Rússar
byggðu turna, sem voru sérstaklega
ætlaðir til að stökkva úr í fallhlíf. Nú
'hafa lvinverjar tekið þetta upp. Fall-
hlífin er þanin út með stórum hring,
svo að hún er opin þegar stökkið
hefst. Og taug er höfð i lilifinni til
þess að taka fallið að byrjandanum,
meðan liann er óvanur.
að lenjd „autostrada“vega í Ev-
rópu mun þrefaldast á næstu 10—
15 árum?
Það voru Þjóðverjar, sem byrjuðu
að leggja þessa vegi og er langmest
af þeim í Þýskalandi. Næst koma Hol-
land með G30 og Ítalía með 510 kíló-
metra, en í öðrum Evrópulöndum, þar
með talið England og Frakkland, eru
aðeins 2G0 km. af svona vegum. — En
vegna hinnar hraðvaxandi bílanot-
kunar í Evrópu liefir fjöldi þjóða í
hyggju að Iiraða lagningu þcssara
vega, svo að fullyrða má að kringum
1970 verði þeir orðnir um 10.000 ldló-
metrar á lengd.
V. Hazen, sem er einn af túlkunum
í NATO, segir á þessa leið frá starfi
sínu: NATO-túllcur er maður, sem á
að geta þýtt samstundis á fallega
ensku ræðu, sem grískur maður lield-
ur á lélegri frönsku og les upp með
hræðilega vitlausum áherslum, af
handriti, sem er morandi í villum.
Lcngsti stigi í lieimi er i Aura-raf-
magnsstöðinni norsku, en liún er
sprengd inn i fjall og stigi frá henni
upp að inntakinu upp á fjallsbrún.
Stiginn er úr tré, með 45 gráðu halla
og eru þrepin i honum 3.715, en allur
stiginn er 1065 metrar og hæðarmun-
urinn neðst og efst er 754 metrar.