Fálkinn - 16.05.1958, Síða 7
FÁLKINN
7
SKKIÐUHLAUP í VATNSDAL.
1545: — Féll mikil skriða í Vatns-
dal um eina nótt að áliðnu sumri um
engjasláttutíma, og tók af einn bæ,
þann er Skíðastaðir liét. Urðu þar
undir 14 menn. Þar bjó sá maður, er
Sæmundur hét, vel fjáreigandi. Ekk-
ert fannst í þvi mikla skriðufalli,
nema hönd hin hægri af Sæmundi
bónda, og var hún auðkend, því lienni
fylgdi silfurbaugur, er á fingrinum
var. Vildu menn svo í þann tíma þetta
ráða, að sú hans hönd skyldi fá
lcirkjuleg fyrir ölmusugjafir, að liann
gaf alltíð fátækum með henni. Völlur
af Skíðastöðum hljóp yfir langt á eyr-
ar, sem þeir nú kalla Hnausa, og er
þar nú byggð og heyskapur mikill.
Vatnshlaup hafði komið undan grjót-
hruninu, og hratt það fram túninu,
og er þar nú stöðuvatn á sléttlendinu,
sem vatnið nam staðar, en sú fárlega
skriða upp undan, sem nefnd er
Skiðastaðaskriða nú síðan.
(Skarðsárannáll).
SKRÝMSLI f HVÍTÁ.
1595: — Einn dag er fólk fór frá
messu í Skálholti suður yfir Hvítá,
sáu nokkrir menn eina undarlega
skepnu, sem kom upp úr ánni á ferju-
staðnum milli liamranna. Það var
mikil kind um sig og ósýnileg, og
þykjast menn varla kunna frá að
segja; þó hafi verið álika að sjá á
það sem selshöfuð, kynjastórt, en
aptur eptir undarleg kryppa eður
bægsl, svo sem með tindum, en scm
flatbytna fyrir aptan; sýndist skjöld-
ótt, og svo stórt sem eitt hús, dró sig
fram eptir ánni og steyptist svo;
lialda mcnn sú ókind eigi heima i
Hvítá og sjáist fyrir stórtiðindum. Þá
skeði formyrkvan tungls. Þá sást og
ein leiptrandi stjarna, einninn víga-
hnettir. Item er margt að skrifa um
þá freisting, sem konunni var gerð
undir Eyjafjöllum, um þá drauma og
vísu. (Skarðsárannáll).
AXLAR-BJÖUN.
1596: — Urðu uppvís morðverk
Björns i Öxl vestur. Hann hafði drep-
ið og myrt 9 menn, scm liann með-
kenndi sjálfur, suma til fjár, cn hina
aðra fátæka drap hann þá, sem i
nánd voru, jiegar hann myrti aðra
til fjárins, en þegar lionuin varð afl-
skortur, þá veitti kona hans honum
lið. Hún brá snæri um háls þeim, og
rotaði með sleggju; þessa dauða gróf
hann í heygarði og fjósi, og fundust
fleiri manna bein en hann meðgekk,
að drepið lvefði, og kvaðst liafa fund-
ið þá dauða, og nennt ekki til kirkjú
að hafa. Hann var dæmdur á Laugar-
brekkuþingi. Var fyrst limamarinn
með sleggjum og síðan afhöfðaður, og
svo í sundur stykkjaður og festur upp
á stengur. Jón Jónsson lögmaður var
yfirdómari. Kona Björns var ekki
deydd, því að hún var með barni.
(Skarðsárannáll).
HEKLUGOS.
1597: — Þann 10. dag jóla, um
kveldið eftir dagsetur, heyrðust norð-
ur í landið suður í loptið dunur með
miklum brestum, álíkt sem fall-
byssnahljóð, og þessi undur lieyrðust
nær í 12 dægur. Veður voru optast
kyr með miklum frostum og dimmu
suður í landið, og þetta heyrðist þann
allan vetur, allt fram að einmánuði.
Þessi undur skeðu í Heklufjalli með
stórum eldgangi og jarðskjálftum, svo
þar sáust i einu loga 18 eldar i fjall-
inu af sumum bæjum. Fólk varð mjög
hrætt, en hvorki skaðaði menn né
peninga. Askan kom í Borgarfjörð og
í Lón austur og allt norður í Bárðar-
dal, en i Mýrdai var hún í skóvarp
eður meir, og um alþing stóð reykur-
inn úr fjallinu upp í loptið. Það vor
var krankleiki á Suðurnesjum, blóð-
sótt, svo margt fólk andaðist og dóu
fyrst engelskir menn fjórir. Þá varð
jarðskjálfti um vorið; hrundu margir
bæir í Ölfusi. (Skarðsárannáll).
SKIPTAPAR f GRINDAVÍK.
1601: — Skiptapi á Hópi í Grinda-
vik, drukknuðu 9 menn. Jón Teitsson
bóndi á Járngerðarstöðum skaðaði
sjálfan sig með þvi móti, eldur komst
í tjöru fyrir lionum; hann var að
skipabræðslu, og logaði svo allt á hon-
um; lifði 2 nætur. Hallur Magnússon
skáld dó í brennivínsofdrykkju.
1602: — Brotnaði ferja Skálholts-
staðar fyrir Grindavík, driikknuðu
24 menn.
—0—
SNJÓKARLINN f HIMALAYA cr nú
tónn á ný kominn í blöðin. Ef til vill
hefir það gefið tveim þýskum skrif-
stofustúlkum hugmyndina að þessum
snjókarli, er þær hafa sett upp fyrir
utan skril'stofuna hjá sér.
Stjörnulestur
eftir Jún Árnason, prentara.
Nýtt tungl 18. maí 1958.
Alþjóðayfirlit.
Föstumerkin eða íhaldsmerkin eru
yfirgnæfandi í áhrifum og þar með
eru Sól og Tungl i Nauti, sem gerir
þessa afstöðu að miklum mun áhrifa-
meiri en ella. Því mun aðgætni meiri
viðhöfð en áður í heimsmálunum og
verkefnin tekin fastari tökum. Mun
þessa viðþurfa til þess að ná frek-
ari hreinskilni og hreinni afstöðu til
verkefnanna i framtíðinni. — Töl-
ur dagsins eru: 1 + 8 + 5+5 + 8 = 27 = 9.
Mikil barátta og örðugleikar eru
fólgnir i þessum tölum, en útkomu-
talan bendir á seiglu og baráttuhug
og með því ættu hin réttu sjónarmið
að sigra. — Úran í Ljóni 31 gráðu
fyrir vestan Tokyo í miðnætursmarki
og bendir á jarðskjálfta eða eldgos á
þeirri lengdarlínu, um Síam og
Súmatra. Jarðskjálfta mætti einnig
búast við um Caracas i Venezúelu
eða á þeirri lengdarlínu.
Lundúnir. — Nýja tunglið í 7. húsi.
Utanríkismálin munu mjög á dagskrá
og veitt mikil athygli. Ágreiningur og
liarátta mun nokkur um þau. —
Satúrn í 2. húsi. Fjárhagsmálin munu
undir fargi og töfum. Munu áhrifin
koma héðan að nokkru frá íslandi. —
Mars í 4. húsi. Bændur og landcig-
endur mun óþjálir stjórninni og hafa
nokkur á'hrif. — Venus í 5. húsi. Leik-
list og leikarar ættu að vera undir
hagstæðum áhrifum og fjárhagur leik-
liúsa og skemmtistaða ætti að vera
goður. — Merkúr í 6. húsi. Aðstaða
verkamanna atliugaverð og hitasótt-
ir gætu gert vart við sig. — Úran i 9.
húsi. Sprenging í flutningaskipi og
verkfall á meðal háseta. — Júpiter í
11. liúsi. Þingmál ættu að ganga greið-
lega, þó ekki baráttulaust. — Neptún
i 12. húsi. — Betrunarhús, vinnuhæli
og sjúkrahús undir athugun og sak-
næmir verknaðir gætu komið i Ijós.
Berlín. — Nýja tunglið í 7. húsi.
Utanríkismálin undir mjög ákveðinni
athygli og skiptar skoðanir um þau.
andstaða nokkur um þau gagnvart
stjórninni. — Satúrn í 1. húsi. Hætt
við töfum á framkvæmd þeirra mála,
sem almenning varða og heilsufar
athugavcrt. — Mijfs í 3. húsi. Flutn-
ingar undir örðugum álirifum og eld-
ur gæti komið upp í flutningatæki eða
á prestssetri. — Venus i 4. húsi. Bænd-
ur og landeigendur hafa góðar að-
stæður og andstaða stjórnarinnar
færist i aukana. — Merkúr i 5. húsi.
Leiklist og skemmtanastarfsemi und-
ir atliugaverðum áhrifum. Opinberar
umræður um þau mál. — Úran í 8.
húsi. Dauðsföll uppgjafa embættis-
m.anna gæti átt sér stað. — Júpiter
i 11. liúsi. Gangur mála í ]iinginu ætti
að vera frekar viðunandi.
Moskva. — Nýja tunglið í 6. húsi.
Aðstaða verkamanna, hermanna og
þjóna er mjög á dagskrá og endurbóta-
kröfur koma til greina. — Satúrn i
1. 'húsi. Aðstaða almennings mun
örðug og tafir koma til greina og
heilsufar athugavert. — Mars i 3. húsi.
Urgur meðal flutningamanna, bóka-
útgefanda og fréttamanna. Iílerka-
stéttin örðug viðfangs. — Merkúr í
4. liúsi. Leikarar og leikhús undir at-
hugaverðum áhrifum og undangröft-
ur gæti átt sér stað. Úran í 8. húsi,
ásamt Plútó. Dauðsföll gamalla em-
bættismanna gætu átt sér stað. —
Júpíter í 10. húsi. Hefir tvær góðar
afstöður og eina slæma frá Mars i 3.
húsi. Urgur gæti átt sér stað gegn ráð-
endunum frá flutninga- og frétta-
mönnum.
Tokyo. — Nýja tunglið í 12. liúsi.
Vinnuhæli, sjúkrahús, betrunarhús og
góðgerðastarfsemi undir mikilli at-
liygli almennings og stjórnin á i vök
að verjast í þeim efnum. — Úran og
Plúto i 3. húsi. Mætti búast við æf-
ingum og verkföllum meðal járn-
brautarþjóna, flutningamanna, frétta-
manna, blaða og bókagerðarmanna,
og útvarps. — Júpíter og Neptún i 5.
liúsi. Leikhús og leikarar undir góð-
um áhrifum og skemmtistaðir ættu
að gefa góðan arð, en þó mætti bú-
ast við að leynd svik kæmu fyrir
dagsins ljós. — Satúrn í 7. húsi. Ut-
anríkismálin undir slæmum áhrifum
og tafir eiga sér stað i framkvæmd
þeirra mála. — Mars i 10. húsi. Örðug
afstaða stjórnarinnar og hætt við að
liún riði, því afstöðurnar eru frekar
slæmar. — Venus i 11. húsi. Af-
greiðsla mála ætti að vera 'greiðfær
og ganga sæmilega. Umræður nokkr-
ar koma til greina og andstaða
nokkur.
Washington. — Nýja tunglið í 10.
húsi, ásamt Merkúr. Stjórnin undir
verulega ákveðinni athygli og and-
staðan þróttmikil og umræður miklar
og harðskeyttar. Koma þessi aðköst
úr mörgum áttum. Koma fjárhags-
málin þar mjög til greina. — Júpíter
og Ncptún i 4. húsi. Afstaða bænda
mun stjórninni örðug og upprcistar-
hugur verulegur. — Satúrn í 5. húsi.
I.ciklist og leikarar undir örðugum
aðstæðum. — Mars í 8. húsi. Kunnur
herforingi gæti látist. — Venus i 9.
húsi. Utanríkisverslun og siglingar
ættu að vera undir góðum áhrifum og
gefa arð.
ÍSLAND.
8. hús. — Nýja tunglið í húsi þessu.
— Háttsettur maður gæti látist, fjár-
málafrömuður eða listamaður.
1. hús. — Júpíter í húsi þessu. —
Heilsufar ætti að vera frekar gott, þó
gæti borið dálítið á inflúensufaraldri,
vægum. Aðstaða almennings ætti að
vera sæmileg.
2. hús. — Mars ræður húsi þessu.
— Fjárhagsafstaðan örugg og barátta
mikil um hana og ágreiningur. Hætt
er við að lagfæringar sé nokkuð langt
að bíða, ef að líkum lætur og lausn-
in ekki sársaukalaus.
3. hús. — Satúrn í húsi þessu. —
Tafir munu nokkrar á flutningum,
bókaútgáfu, einkum vísindaritum,
fréttum og útvarpi og blöðum.
4. hús. — Satúrn ræður húsi þessu.
— Bændur eiga i örðugleikum og tafir
koma í ljós í aðflutningum sem þeir
þurfa. Andstaða stjórnarinnar mun
aukast.
5. hús. — Júpíter ræður liúsi þessu.
— Leikhús og leikarar undir frekar
góðum áhrifum og skemmtanastarf-
scmi fjörug.
G. hús. — Venus í liúsi þessu. —
Ætti að vera frekar hagstæð afstaða
fyrir verkamenn og þjóna og heil-
brigði góð. •
7. hús. — Merkúr ræður húsi þessu.
— Miklar umræður um utanríkismál
og ágreiningur mikill. Undangröftur
kemur i ljós og bakmakk úr mörgum
áttum. Afstaða þessi er mjög slæm.
9. hús. — Merkúr ræður húsi þessu.
— Vandkvæði í utanrikisversluninni
Framhald á bls. 11.