Fálkinn


Fálkinn - 20.06.1958, Page 12

Fálkinn - 20.06.1958, Page 12
12 FÁLKINN ★..........................+ Eldnr áitarinnar yr------ Ástarsaga frá Portúgal. - 4. ~ — "Jr henni allt það fornfálega, sem setti svip á heimili jómfrú Stafford. Brett Featherstone var svo vanur að um- gangast tiskukvenfólk að hann vissi hvernig stúlkur ættu að klæðast. Og honum féll vel hinn einfaldi og íburðarlausi klæðaburður Melanie. Hann sagði: — Ég skil ekki frænku yðar ... Svo þagnaði hann allt í einu. — En við getum talað um það síðar. Þarna kemur bú- stýran mín til að hjálpa yður. NÝJA HEIMILIÐ. Melanie leit í sömu átt og hann, í þeirri trú, að frænka hans væri komin heim aftur, en hún sá strax að það var misskilningur. Konan, sem kom brunandi eins og skip fyrir fullum seglum, var digur og í röndóttum kjól, með feiknastóra hvíta svuntu á maganum. Konan nam staðar og sagði með öndina í hálsinum: — Lo siento mucho, ég bið mikil- lega afsökunar, senor Brett — ég lá fyrir og hvíldi mig þegar Bianca kom og sagði að senoritan væri komin. Ég ætlaði að koma fyrr, en sendi José, og hann sagði að þér væruð með senoritu. — Þetta er Teresa, sagði Brett og benti á konuna. — Hún er konungurinn, eða réttara sagt drottningin, hér á heimilinu. Hafið þér gengið frá herberginu handa ungfrú Stafford? — Já, herra Brett. Það er verið að búa um rúmið hennar. Þótt hún brygði portúgölsku fyrir sig fyrst, reyndist hún tala furðanlega góða ensku. Teresa brosti fagnandi til Melanie. — Ef senorita vill koma með mér, getur hún fengið að hvíla sig og fengið eitthvað að borða eftir ferðalagið. — Já, farið þér með Teresu. Brett stóð upp. — Við sjáumst síðar og þá getum við talað betur saman. Viljið þér koma niður í bóka- stofuna klukkan sex. Þá getið þér hvílt yður vel áður. Hann hafði verið alúðlegur og heillandi, en þegar hún fór frá honum, á eftir bakbreiðri bústýrunni, fannst henni einhvernveginn, að hann mundi hafa orðið feginn að losna við sig. Þær gengu inn í stóran ársal ferhyrndan, og voru stigar upp á efri hæð í tveimur horn- unum. Þegar Teresa kom upp úr stiganum beygði hún til hægri inn í gang og opnaði dyr lengst inni. Melanie kom inn í svalt herbergi, hvítt og Ijósrautt. Lagleg dökkhærð stúlka var að breiða rósrauða silkiábreiðu yfir nýuppbúið rúmið, sem stóð í innskoti í veggnum. Legu- bekkur með mörgum svæflum stóð á ábreið- unni á miðju gólfinu. Veggirnir voru hvítir, og gluggatjöldin og áklæðið á húsgögnunum ofurlítið dökkrauðara en ábreiðan á rúminu. Teresa athugaði rúmið og gerði nokkrar athugasemdir á portúgölsku við stúlkuna, sem hún kaliaði Rósu. Rósa átti að verða herbergisþerna ungfrú Stafford. Hún brosti feimnislega og fór svo út og lokaði hljóðlaust eftir sér. — Okkur þykir þetta svo leitt, svo hræði- lega leitt, sagði Teresa. — Þvílik móttaka á nýja heimilinu yðar! Lofið mér að hjálpa yð- ur, undir eins og ég hefi undirbúið baðið handa yður. Baðklefinn var lítili. en þó svo stór að hægt var að snúa sér við þar. Baðkerið var rós- rautt og þvottaskálin líka, og flísarnar á veggjunum. En á gólfinu voru svartir og hvítir tíglar. Þó að „Quinta Azeitonas“ væri gamalt hús, sem einu sinni hafði verið klaustur, sá Melanie brátt að þar voru öll hugsanleg nýtísku þæg- indi. Brett Featherstone hlaut að vera ríkur maður. Skyldi hún kunna við sig hérna? Skyldi henni falla vel við manninn, sem hafði ráðin yfir eignum hennar — og henni sjálfri? Hún braut heilann um hvers vegna hann væri ógiftur enn. Eins og á stóð stjórnaði frænka hans heimilinu fyrir hann, og nú fór hún að hugsa um, að þá væri önnur áhrifamanneskja á heimilinu, sem hún hafði ekki séð ennþá. Ég vona að hún sé viðfelldin, hugsaði hún með sér. Þegar hún kom inn í svefnherbergið aftur var Teresa að breiða úr rósóttum morgun- kjól úr silki á rúmið hennar. Hún setti iitla inniskó úr sama efni fyrir framan rúmið og sagði og brosti gleitt: — Þér hvílist betur ef þér farið í þetta, senorita. — En herra Featherstone á von á mér nið ur, sagði Melanie. Teresa hristi höfuðið. — Nei, nei. Senor lokar sig alltaf inni hjá bókunum sínum, á þessum tíma dags. Hann sagði yður að hann ætti von á yður klukkan hálfsex. Nú skuluð þér fá eitthvað að borða, og svo getið þér fengið yður blund á eftir. Það var leitt að þér skylduð þurfa að koma hingað ein, eftir þessa löngu ferð frá Englandi! Senorita hefir ekki komið til Portúgal áður? — Nei, ég hefi aldrei komið út fyrir Eng land, svaraði Melanie. — Yður leiðist ekki hérna, sagði Teresa. — Hér eru margar enskar fjölskyldur. Þér sjáið það þegar þér komið til Oporto. Senora Dorrington hefir sest að hérna. Ég held að hana langi ekkert heim. — Er frú Dorringham konan sem er hús- móðir hérna fyrir herra Featherstone? flýtti Melanie sér að spyrja. Teresa kinkaði kolli. — Hún kom fyrir tveimur árum. Og síðar kom frænka hennar hingað — ungfrú Olivia Turton. — Hvernig er hún? Melanie gat ekki stillt sig um að spyrja. Henni hafði aldrei dottið í hug, að þarna væri stúlka á hennar reki nálæg. Teresa sneri sér að fatageymslunni meðan hún svaraði: — Hún er mjög falleg. — Mjög falleg í augum þeirra, sem líkar Ijóshært kvenfólk. Melanie leit snöggt til hennar. Það var engin hrifning í þessum orðum Teresu. Það var líkast því að Teresa væri ekki hrifin af ljóshærðum stúlkum, sér í lagi ekki þessari. — En nú verðið þér að hvíla yður, sagði Teresa. — Hún Rósa kemur upp með mat til yðar. — Ég er eiginlega ekkert svöng. — Við borðum ekki miðdegisverð fyrr en seint í kvöld, og þér hafið ekki gott af að bíða þangað til, án þess að fá annað en kök- ur með teinu. Hérna getið þér séð hvernig kökuátið fer með mann! Teresa strauk á sér breiðar mjaðmirnar. Melanie fór að hlæja og Teresa hló líka. Svo fór hún og lét Melanie eiga sig. Jæja, svo að þarna var þá önnur ung stúlka — Olivia. Það var fallegt nafn, og Ter- esa sagði að stúlkan væri falleg líka. Ég vona að hún sé viðfelldin, hugsaði Melanie með sér. Ég vona að við getum orðið góðir vinir. Hún hafði aldrei haft tækifæri til að eign- ast vinstúlku. Frænka hennar hafði aldrei ýtt undir hana að bjóða stúlkum, sem hún kynntist, heim með sér, og Melanie hafði alltaf þráð félaga, uns hún kynntist Tony Goring. Tony! Hún vonaði að einhvern tima kæmi sá dagur að hún gæti hugsað til hans beiskju- laust. En það var ekki andlit Tonys, sem hún sá í huganum núna. Það var Brett Featherstone sem hún var að hugsa um þarna sem hún sat á legubekknum og spennti greip- ar um hné sér, — fjárhaldsmaður hennar, sem hún vissi að var talsvert erffður, en gat líka verið framúrskarandi heillandi. FJÖTUR UM FÓT. Melanie vaknaði snögglega og starði kring- um sig og áttaði sig ekki strax á hvar hún var. Svo rann það upp fyrir henni og hún vatt sér fram úr rúminu og leit á klukkuna. Hún var fimm og Brett beið eftir henni. Hún hafði sofnað út frá bókinni og sofið lengi. Hvers vegna hafði Teresa ekki vakið hana? Nú mundi hún kannske koma of seint, og það væri ekki heppilegt. Hún fór úr morgunkjóln- um og fór að leita sér að kjól í klæðaskápn- um. Þar tók hún kjól, sem fljótlegt var að fara í, og eftir tíu mínútur hljóp hún niður stigann. En þegar hún kom niður í ársalinn sá hún engan, sem gat sagt henni hvar bóka- stofan var. Teresa hafði minnst eitthvað á, að hún væri „í hinni álmunni", en Melanie hafði ekki hugmynd um hvaða leið hún átti að fara þangað. Svo datt henni í hug. að kannske væri einhver úti í garðinum, sem gæti leiðbeint henni, og fór þangað. Til hægri voru svalirnar, þar sem hún hafði setið með Brett. Hún hafði tekið eftir, að ýmsar dyr vissu út að svölunum, og datt í hug að einhverjar þeirra væri inn í bóka- stofuna. Hún gekk meðfram húsinu en hafði ekki stigið nema fá skref, þegar hún heyrði skæra kvenrödd út um opinn glugga. — Jæja, Staffordstelpan er þá komin. Það var óheppilegt að við skyldum ekki vera heima til að geta hjálpað honum Brett. — Veslings Brett! Þessi rödd var unglegri og svo kom hlátur á eftir orðunum. — Hann var ákaflega leiður yfir því að hún skyldi koma, var það ekki? — Jú, vitanlega. Það er svo sem auðvitað,

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.