Fálkinn - 03.07.1959, Síða 15
FÁLKINN
15
fyrirtekið einungis til að gera þá
vissa um frið og fullsælu, er íslend-
ingar, munu varla hafa þekkt á
hinum seinni árum.
11. Þessi auglýsing skal verða
skriflega til kynna gefin, hvar sem
verður, svo íslenzkir fái séð, að
ekkert verði gert, er hindri frjáls-
ræði þeirra, eður á nokkurn hátt
geti orðið þeim til skaða.
Geti nokkur með rökum sannað,
að einhver hafi brotið á móti þess-
ari auglýsingu, þá skal sá hljóta
verðlaun af 50 rd.
Reykjavík, þann 26. Junnii 1809.
Jörgen Jörgensen.
Síðan var farið að leita að vopn-
um þar, sem líklegast var að þau
finndist, og voru vopnaðir menn af
„Margaret and Ann“ ásamt Jörundi
í þeirri leit. Fundust 20 ryðgaðar
byssur, og eitthvað af sverðum.
Síðar sama dag kom önnur „Pro-
clamation“ frá Jörundi, miklu ítar-
legri og yfirgripsmeiri en hin. Þar
eru fyrirskipað að embættismenn
segi til um hvort þeir vilji vera á-
fram í embætti undir hinni nýju
stjórn, að ísland hafi sérstakan
fána og hervarnir og gefin loforð
um verðlækkun á vörum og helm-
ingslækkun allra skatta til 1. júlí
1810. Ráðstafanir verði gerðar til
þess að landið sé birgt af korni í
heit ár. Þá eru fyrirmæli um að
kjósa „byggðarlaga formenn“ og
að þing verði kallað saman næsta ár.
------Bylting hafði verið gerð á
fslandi. Jörundur var fram-
kvæmdastjóri hennar, með aðstoð
Listons skipstjóra og hinna vopn-
uðu manna hans, en bak við mun
hafa staðið sjálfur Sir Joseph
Banks og Phelps sápugerðarmaður.
En driffjöðurin í öllu saman voru
verslunarmálin.
En hver var þessi danski maður,
sem tók að sér að reka landa sína
frá völdum á íslandi og gera þeim
lægra undir höfði en öllum öðrum,
ef þeir voru kaupmenn eða em-
bættismenn.
HVER VAR
JÖRGEN JÖRGENSEN?
Hann fæddist í Kaupmanna-
höfn 7. apr. 1780. Faðir hans var
kgl. hirðúrsmiður og verkstæði
hans er enn til. Móðir hans, Anna
Leth Bruun, var mesta gáfu-
kona, og hefur H. C. Andersen skrif-
að um hana. Urban bróðir Jrögens
varð stórfrægur úrsmiður, en yngsti
bróðirinn, Frederik var listhneigð-
ur vel. Sonur hans var hinn frægi
skopteiknari Fritz Jiirgensen. —
Jörgen var næstelstur, greindur vel
en óstöðugur í rásinni og ærsla-
fullur í æsku. Skáldið Oehlens-
clager var með honum í skóla og
hefur sagt frá ýmsum strákapörum
hans. Jörundur fór til sjós á 14.
ári og var 4 ár í förum milli Hafn-
ar og Newcastle, komst þaðan til
Suður-Afríku og réðst á enskt her-
skip til Ástralíu. Fór þaðan í land-
könnunarferð til Tasmaníu og
skrifaði síðar bók um eyland þetta.
Síðan réðst hann í hvalveiðar. Úr
þessu flakki hvarf hann heim árið
1806, eftir 12 ára siglingar. Árið
eftir réðust Englendingar á Kaup-
mannahöfn. Nú var honum falin
stjórn á víkingaskipi og skyldi
hann vinna Englendingum allan
þann miska er hann gæti. En hann
var þegar orðinn mikill Englend-
ingavinur, enda hafði hann lengst
með þeirri þjóð verið. Samt tók
hann við stjórn skipsins „Christine
Henriette“, sem Jens Lind brugg-
ari gerði út. Var það 316 lesta skip,
með 26 fallbyssum. Jörgensen tók
við stjórn skipsins 4. des. 1807.
En þessi víking hans varð
skammvinn, aðeins 2x/2 mánuður.
Tók hann 3 stór skip á þessum
tíma. En 2. mars 1808 siglir hann
inn í opið ginið á enska flotanum
við Flamborough Head, berst við
herskipið „Sappho“ og bíður ósig-
ur og er handtekinn. Margir halda
því fram að hann hafi gert þetta af
ásettu ráði, því að hann hafi ekki
viljað gera Englendingum óskunda,'
og í Danmörku var hann talinn
landráðamaður og réttdræpur ef
hann stigi á danska grund.
En honum tókst vel að koma sér
innundir hjá Englendingum. Hann
hafði kynnst sir Joseph Banks áð-
ur, sennilega í sambandi við suður-
farir sínar, sem sir Joseph hafði
mikinn áhuga á. Jörundur var líka
gáfumaður og hefur komið vel fyrir
sjónir heldri manna. Svo mikið er
víst að sir Joseph treysti honum.
Hvað þeim hefur farið á milli í ís-
landsmálum vita menn ekki gerla.
En það sem hægt hefur verið að
grafa upp um þau skipti, hefur dr.
Helgi Briem sendiherra gert í hinni
afar fróðlegu bók sinni um „Sjálf-
stæði íslands 1809“. Þar finnst allt
sem fáanlegt er af upplýsingum
um Jörund sjálfan, byltinguna og
aðdraganda hennar og eftirhreytur.
Meira síðar.
-K
MORGUNÞV OTTUR. —
Það eru ekkl allir hvolpar hirtir jafn
vel og þessi litli samojedi. Og' ekki
spillir það, hvað stúlkan er falleg'.
★
(jlœA ilecjt úr Cal
★
FÁST HJÁ OKKUR
Trúlofunarhringir
ljósir, rauðir. — Steinhringar fyrir dömur og herra. —
Hálsmen, armbönd, gull og silfur. — Borðbúnaður, silfur,
plett. —- Úr fyrir dömur og herra, gull og stál.
Tegundir: Marvin, Dames, Tissot, Certina, Eterna.
EinbauctjBLV
nLLfIff GEFtÐIR__
6')3iW.13?69.
Laugavegi 50. — Reykjavík.
Blátt 0M0
skilar yður
HVÍTASTA ÞVOTTI
í HEIIWI —
Cimif bejt farir mUÍitan