Fálkinn - 26.02.1960, Side 2
2
falkinn
Myndin er frá San Francisco og sýnir nýjustu gerð landganga frá flugvélum. Þeim má snúa
á ýmsa vegu og lengja og stytta, á líkan hátt og þegar sjónauki er dregin sundur eða saman.
A þennan hátt komast farþegar beint úr flugvélunum inn í flughafnarbyggingarnar án þess
að koma nokkru sinni út undir bert loft. Þykir þetta heppilegt þegar veður er slæmt. Sömuleiðis
losa þeir farþegar, sem gamlir eða lasburða eru, við háu tröppurnar, sem notaðar voru. —
★
TÓLF NAUÐSKÖLLÓTTAR ung-
frúr í Rómaborg urðu fyrir illum
grikk í fyrra. Maður nokkur, sem
þóttist vera kvikmyndaleikstjóri,
auglýsti eftir fallegum ungum
stúlkum í kvikmynd og sagðist
verða til viðtals í skrifstofu sinni á
tilteknum stað og tíma. En skilyrð-
ið var það, að stúlkurnar rökuðu
af sér hárið, eins og Yul Brynner.
— Tólf stúlkur gleyptu við agninu
og rökuðu hárið hver af annari og
héldu af stað til „leikstjórans". En
þegar þangað kom fannst engin
leikstjóraskrifstofa í húsinu og því
síður leikstjórinn. Stúlkurnar sát.u
eftir með sárt ennið — sem náði
aftur í hnakkagróf. Þær höfðu
aldrei uppi á leikstjóranum.
♦
ELÍSABETH DROTTNINGU hefur
verið ráðlagt af augnlœkninum að
nota gleraugu. Hún lœtur sér fátt
um finnast og vill ógjarna fara að
ráðum lœknisins. „Þá verð ég fyrsta
Englandsdrottningin, sem notað hef-
ur glerauguf‘ segir hún.
íIELGIMYNDA-SMIÐIR. — Þessir tveir Indverjar frá Kashmir
sitja daglangt við að skera Búddamyndir og aðrar helgimyndir
úr fílabeini. Fólk kaupir þær til að prýða heimili sín. En
myndirnar í musterunum eru alltaf stórar og steyptar úr
messing.
j\ utf lijsið i F'álkanwm
Frímerkjasafnarar 1
,Moíiv”-frínicrki — ISý frimei'kíalöml
1960
1960
MOTIV:
Ólympíumerkin
Blómafrímerki
Dýrafrímerki
íþróttamerki
Skátafrímerki
Flóttamannamerki
Evrópumerki 1959 og framvegis
Sameinuðu þjóða merki 1960
frá öllum
frá öllum
1960 frá öllum
1960 frá öllum
1960 frá öllum
1960 frá ölium
löndum
löndum
löndum
löndum
löndum
löndum
Útvegum einnig
ýmis eldri
„motiv“
frímerki.
NY FRIMERKJALOND:
Öll þessi lönd, flest ný lýðveldi í Afríku eru
nýbyrjuð að gefa út frímerki, sem sjálfstæð
ríki. Þeir, sem vilja eignast ,,komplett“ frí-
merkjasöfn frá þessum ríkjum ættu því að
gerast áskrifendur frá byrjun, það auðveldar
þeim að eignast heil söfn og forðar þeim frá
því að kaupa merkin hærra verði seinna, ef
þeir þá ætluðu að eignast söfn frá þessum
ríkjum.
Cameroon
Congo
Central-Africa
Gabonia
De Haute Volta
Ivory Coast
Malgache
Mali
Mauritania
Niger
Tehad
Kýpur (seinna)
Öll þessi frímerki eru óstimpluð og í heilum settum, ef um íleiri
en eitt er að ræða í hverri útgáfu.
Fastir áskrifendur fá merkin á mun lægra verði en þau verða
seld í lausasölu.
Við tökum við föstum áskriftum til 1. marz næstk.
Vinsamlegast sendið pantanir yðar sem fyrst í pósthólf 356 eða í
síma 2-49-01 eftir kl. 6 e.h.
•JÓJY i\ fjriVúl ttS9 frémvt'li/Vii.wöÍiiw s.é\
Pósthólf 356 — Sími 2-49-01 — Reykjavík.