Fálkinn - 26.02.1960, Síða 5
FÁLKINN
5
MAÐURINN BAK VIÐ ORÐIÐ
Málarinn CHIQUE
málaði Chic
Jagues Louis David var ekki
aðeins frœgasti malari sinnar tíð-
ar heldur var hann einnig stofn-
andi hins kldssiska malaraskóla
Frakka. í byltingunni hafði hann
verið œstur jakobíni og fylgis-
maður Robespierres og málaði
þá fjölda stórra málverka bylt-
ingunni til vegsemdar. En síðar
}éll hann að fótum Napoleons og
varð hirðmálari hans.
David var ekki aðeins mikill
málari heldur ágœtur kennari
líka, og sannast það á því, hve
frœgir margir lœrisveinar hans
urðu. Ýmsir þeirra hlutu heims-
frœgð, svo sem Gerard, Ingres og
Leopold. En nafn eins af hinum
kunnu lærisveinum hans lét ekki
aðeins eftir sig málverk heldur
nafnið sitt, sem nú er lýsing á
mjög notuðu hugtaki.
-----Jean Chique var uppá-
hald meistara síns, sem benti oft
á myndir hans öðrum til fyrir-
myndar. „Þetta er Chique — og
þetta er ekki Chique“, sagði hann
þegar hann var að sýna mynd-
irnar. Lœrisveinarnir öfunduðu
Chique og vildu gjarnan verða —
Chique.
Chique dó ungur úr berklaveiki,
en orð Davids lifðu, því að hann
hafði lýst fallegum myndum með
orðunum „Þetta er Chique!“ Þeg-
ar David dó, árið 1825, var Chi-
que löngu gleymdur, en nafn
hans var á allra vörum í málara-
skólanum fyrir því. Og þaðan
komst það á allra varir, þar sem
rœtt var um list. Og það komst
inn í daglegt mál og er nú notað
um það sem smekklegt er og nett,
ekki síst um fataburð kvenfólks-
ins. „Hún er chic“, segir fólkið
þegar það sér stúlku í fallegum
kjól. En þá verður stúlkan helst
að vera „chic“ líka — í vaxtar-
lagi og allri framgöngu. „Chic“
er orð sem grípur yfir ákaflega
mikið þó að það vœri uppruna-
lega aðeins notað um málverk.
XXSÖOÖOÍS!JíH5!5í5aí5;S!ÍÖO;iíÍÍÍ»aí5ÍS«SOÍSOÍÍOOÍX5ÖOOttOeOOO%ÍSÍSÍSítOÖÖO«öO<SOO^Í
0
»
»
«
8
«
«
«
«
«
«
8
«
»
u
8
«
8
»
«
8
8
0
0
0
0
0
0
0
^iSiSiWliW
og þeir unnu í görðunum en kven-
fólkið slæptist. Belgiskur maður
sagði mér síðar nánar frá þessu.
— Þetta byrjaði fyrir nokkrum
árum, sagði hann. — Ung og falleg
kona var gift gömlum karli, sem lét
hana strita og kvaldi hana á allan
hátt. En svo hvarf maðurinn einn
daginn.
— Hann fór í langferð, sagði kon-
an hans við grannana.
Nágrannarnir furðuðu sig ekki á
að hún virtist ánægð yfir þessli.
Enda var hún svo glöð að hún bauð
öllum grannkonunum í matreiðslu.
Þar var sungið og kveðið og veizlan
þótti takast með svo miklum ágæt-
um að konurnar stofnuðu með sér
skemmtifélag og ákváðu að koma
saman einu sinni í mánuði. En það
skrítna var að í hverri veizlu til-
kynnti einhver konan, að nú væri
maðurinn hennar „farinn í borg-
ina“. Loks var helmingurinn af öll-
um bændum félagskvennanna horf-
inn. *
Stjórnarfulltrúinn þóttist ekki
komast hjá að rannsaka þetta mál,
og loks sagði einhver honum frá
grun sínum.
— Konurnar hafa stofnað morð-
félag, sagði hann. — Þær éta dauð-
an mann einu sinni í mánuði!
Svo voru konurnar kallaðar á
fund og yfirheyrðar. En þær hlógu
bara að þessu. En smám saman
fengust sannanir, og nú kom emb-
ættismaðurinn með særingamann,
sem sagðist ætla að vekja bænd-
urna frá dauðum. Þá ætluðu ekkj-
urnar að sleppa sér og sögðust
skyldu meðganga allt, ef sálir bænd-
anna þeirra kæmu ekki aftur.
Það kom nú á daginn að allir
gömlu bændurnir höfðu verið
drepnir. Rotaðir með sleggju er þeir
sváfu. Og líkin síðan etin í gesta-
boði hjá ekkjunni.
Armand og Michaela Denis með fjórum pygneum í Congó. — Tveir eru
afar, þó ekki séu þeir stórir.
— Svo margir voru við þetta riðn-
ir, sagði belgiski embættismaður-
inn, að yfirvöldin vissu ekki hvað
gera skyldi. Loks var þó unga ekkj-
an, sem hafði riðið á vaðið, sett í
fangelsi.
Nú eru frúrnar hættar að rota
mennina sína, en bændurnir urðu
svo hræddir að þeir hættu að
þrælka konurnar og gera þeim nú
allt til geðs. Þeir vilja heldur ganga
sér til húðar en láta rota sig með
sleggju.
ENDIR.
• ýntáuin attuffl •
VALKYRJAN. — Tvisvar sinn-
um tólf ára gömul stúlka suður í
Aþenuborg hefur verið dæmd í
margra ára fangelsi fyrir að hafa
rænt manni sem hún var ólm í að
giftast. Hún hafði náð í hann með
sér á afvikinn stað og þar tók hún
upp saltsýruflösku og hótaði að
skvetta úr henni framan í hann ef
hann undirskrifaði ekki ioforð um
að giftast henni.
----x-----
DANIR REYKJA VINDLA. —
Auk þess sem Danir reykja 4 mill-
jarð vindlinga á ári reykja þeir
líka 115 milljón vindla og 800 mil-
jón smávindla. Vindlaeyðslan á ári
nemur á hvern íbúa í Englandi 3
vindlum, Noregi 7, Svíþjóð 18,
Bandaríkjunum 45, Vestur-Þýzka-
landi 85, Hollandi 105 og í Dan-
mörku 205 vindlum.
----x----
ROMY SCHNEIDER, hinn upp-
rennandi kvikmyndaleikari, telur
hyggilegt að leggja peninga í gisti-
hús. Fyrir kaupið, sem hann fékk
fyrir kvikmynd sem hann lék í á
Spáni, hefur hann keypt sér gisti-
hús á Mallorca. — Annar kvik-
myndaleikari, John Wayne, hefur
líka trú á hótelunum. Hann átti
stórt gistihús í Mexico og hefur nú
keypt annað í Porto Rica.
Jumbo kveinkar sín ekki þó kalt
sé, því að það er þykkur á honum
bjórinn.
„Það á að gefa börnum brauð,
að bíta í á jólunum,“ segir í gamalli
þulu. En krakkarnir hafa líka gam-
an af að lijálpa til við baksturinn,
einkanlega ef þau fá að hafa kök-
urnar í dýramyndum.
„Þetta er meira kvefið!“
----x-----
HERBERT HANNAM einn af
þeim „fimm stóru“ í Scotland Yard,
sagði lausu starfi sínu í fyrra, að-
eins 48 ára gamall, og gerðist ráðu-
nautur hjá einhverju byggingarfé-
lagi í Englandi. Það er altítt að
menn fara frá Scotland Yard vegna
þess að þeim býðst miklu betri
staða hjá einstaklingum.