Fálkinn - 25.03.1960, Qupperneq 2
2
FALKINN
Á skíðum.
Forsíðumyndin
DROTTNING ÓDÁÐAHRAUNS.
Fyrrum voru það ekki nema fáir
útvaldir, sem áttu kost á að kom-
ast í námunda við Herðubreið. En
margir sáu hana í fjarlægð og fengu
tækifæri til að dást að hinum fal-
legu línum og litum fjallsins, sem
ýmsir vilja telja fegurst fjall á ís-
landi. Nú verður komizt í bílum að
heita má að fjallsrótunum, og alltaf
fjölgar þeim, sem skoða fjallið í ná-
lægð eða ganga á það. Hæðin er
1682 metrar. Fálkinn hefur stundum
áður birt myndir af Herðubreið, serh
sýna fjallið frá annarri hlið. Á þess-
ari mynd er lögun fjallsins ekki
eins regluleg, en falleg er Herðu-
breið hvaðan sem hún sést.
(Ljósm.: F. Clausen.)-
NÓG AF OLtVUALDINUM. — Japanir hafa stóraukið olívurækt síð-
ustu árin og keppa nú við Miðjarðarhafslöndin. — Hér sjást tvær
japanskar stúlkur vera að tína olívur.
Trúlofunarhringir
ljósir, rauðir. — Steinhringar fyrir dömur og herra. —
Hálsmen, armbönd, gull og silfur. — Borðbúnaður, silfur,
plett. — Úr fyrir dömur og herra, gull og stál.
Tegundir: Marvin, Dames, Tissot, Certina, Etema.
Laugavegi 50. — Reykjavík.
Róbert Arnjinnsson sem Malakí Stakk og Haraldur Björnsson
sem Hóras Vandengelder í Hjónaspil.
Hjónaspil
Gamanleikur eftir Thornton Wilder. Leikstjóri Benedikt Árnason.
Leikrit það, sem Þjóðleikhúsið
sýnir um þessar mundir, Hjónaspil,
eftir Thornton Wilder, er mjög
skemmtilegt, þótt ekkí geti það tal-
izt beinlínis frumlegt. Hefur það
áður verið talið í leikdómum, um
hvaða leikbókmenntir höfundurinn
hefur farið ófrómum fingrum, og
verður það því ekki gert hér, en
því aðeins bætt við, að það virðist
ekki einu sinni vel stolið. En það
sem höfundi er áfátt, bæta leik-
stjóri og leikarar upp, svo að þrátt
fyrir allt verður þetta prýðilegasta
sýning og líklegt til langlífis á sviði
Þj óðleikhússins.
Leikstjóri er Benedikt Árnason, og
hefur unnið verk sitt með sóma.
Hraði og samsetning er með ágæt-
um og leikstjóranum hefur tekizt
að lokka það bezta fram hjá flest-
um leikendanna.
Hóras Vandengelder kaupmann
leikur Haraldur Björnsson af festu
og öryggi, en ekki alltaf af glæsi-
brag. Framsögn hans er stundum
dálítið óskýr, og kemur það þó sjald-
an fyrir hann. Skrifara hans leika
þeir Rúrik Haraldsson og Bessi
Bjarnason með ágætum og þó hvor
á sinn hátt. Rúrik leikur af eldlegu
fjöri, en Bessi hefur meiri selvkom-
ík. Malakí Stakk leikur Róbert Arn-
finnsson og er sá eini, sem skapar
typu. Að öllu samanlögðu er leikur
hans beztur. Jóhann Pálsson og
Bryndís Pétursdóttir leika elskend-
ur, og eru líkari brúðum en per-
sónum með holdi og blóði. Jón Aðils
leikur rakara og fer vel með hlut-
verk sitt, sömuleiðis Helgi Skúlason
með þjónshlutverk. Herdís Þorvalds-
dóttir leikur frú Dollí Leví aíbragðs
vel. Hún er létt og kvik, en leikur
ef til vill fullmikið á hátónum. Guð-
björg Þorbj arnardóttir fer einnig
mjög vel með hlutverk frú Moeloj
hatttadömu. Arndís Björnsdóttir
leikur ungfrú Flóru van Höjsen af
mikilli innlífgun og Inga Þórðardótt-
ir leikur Geirþrúð ráðskonu Van-
dergelders skemmtilega.
Karl Guðmundsson hefur þýtt
leikritið á viðfeldið mál.
K. ísfeld.
☆
— Hundurinn hennar frú Peter-
sen hefur orðið undir bíl og er
steindauður. Þér verðið að segja
henni eins varlega frá þessu og þér
getið.
— Já vitanlega geri ég það. Gæti
ég til dæmis ekki byrjað með því
að segja að það væri maðurinn
hennar, og smáfært mig svo upp á
skaftið?