Fálkinn - 13.05.1960, Blaðsíða 15
FALKINN
15
öllum flökkuhundum í borginni og
fékk styrk úr bœjarsjóði og frá ýms-
um malsmetandi mönnum til þessa.
Var honum falið að hafa fram-
kvæmdir í málinu, og átti að ráða
þeim sjálfur, en það var áskilið, að
hundamir vœru drepnir á sem
kvalaminnstan hátt og síðan brennd-
ir. En doktorinn vildi nota ketið
og setti þá upp bjúgnagerðina. Eftir
tvo mánuði hafði hann níu manns
í vinnu þar, og yfir hundrað hund-
ar voru drepnir og hakkaðir i bjúgu
á dag. Auk bjúgnanna seldi doktor-
inn bœði hundaskinn og hundafeiti.
En svo kom refsidómurinn. Fyrst
fóru hundarnir í bjúgun og svo fór
bjúgnagerðin í hundana.
★
Halló! halló!
Það var í bernsku sveitasímanna.
Bóndi einn átti í sífelldum erjum
við símastúlkuna, og einu sinni er
honum fannst langt að bíða eftir
svarinu, sagði hann við stúlkuna er
hún svaraði: „Afsakaðu að ég geri
þér ónæði, þú rnunt hafa setið á
koppnum þegar ég hringdi.“ Stúlk-
an kærði loks bóndann fyrir land-
símastjóra, og bóndinn missti sím-
ann í heilt ár. Þegar hann fékk sam-
band aftur hringdi hann og spurði:
„Mig langaði til að vita hvort þú
sætir á sama stað ennþá, heillin
mín!“
§mábæknr
MENi\IN(!ARSJÓBS
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur efnt til útgáfu nýs.
bókaflokks, sem eingöngu er ætlað að flytja ýmis smærri
rit, bókmenntalegs eðlis, innlend og erlend, gömul og ný.
Ritstjóri bókaflokksins er Hannes Pétursson skáld.
Fyrstu bækur þessa nýja bókaflokks eru nú komnar út,
þrjár samtímis. Bækurnar eru þessar:
Saiiidrvkkjjan.
SÚ EIN RÉTTA. — Þær voru margar terturnar sem bakaðar voru
fyrir brúðkaup Margrétar prinsessu og Armstrong-Jones, ljósmyndarans
hamingjusama. En þessi, sem myndin er af, er sú „eina rétta“. Hún
vegur 75 kg. og fyrir þá sem áhuga hafa á svona hlutum má geta þess
til gamans, að í henni eru 4 kg. af mjöli, 3,5 kg. smjör, 4 kg. sykur, 4 kg.
egg, 9 kg. rúsínur, 8 kg. kúrenur, 6 kg súkkat, 1 kg. möndlur og góður
slatti af rommi, koníaki og hver veit hvað.
Trúlofunarliringir
ljósir, rauðir. — Steinhringar fyrir dömur og herra. —
Hálsmen, armbönd, gull og silfur. — Borðbúnaður, silfur,
plett. — Úr fyrir dömur og herra, gull og stál.
Tegundir: Marvin, Dames, Tissot, Certina, Etema.
Laugavegi 50. — Reykjavík.
eftir Platon. Steingrímur Thorsteinsson skáld þýddi, dr.
Jón Gíslason sá um útgáfuna. Eitt frægasta rit grískra
fornbókmennta. Bókin er 130 bls. að stærð. Verð í bandi
kr. 85,00.
Trumban og lútan,
Ijóðaþýðingar eftir Halldóru B. Björnsson. Hér birtist m.a.
sýnishorn af ljóðum Grænlendinga, Kanada-eskimóa,
Afrikusvertingja og Kínverja. Forvitnileg bók. — Bókin er
80 bls., verð í bandi kr. 75,00.
Skiptar §koðanir,
ritdeila Sigurðar Nordals og Einars H. Kvarans á árunum
1925—1927, um bókmenntir og lífsskoðanir. Tvímælalaust
einhver merkasta ritdeila, sem háð hefur verið hér á landi.
Bókin er 140 bls. að stærð, verð í bandi kr. 85,00.
Bókaúlgáfa Menningarsjóðs.
JAPÖNSKÚ
sem hafa verið seld í þúsundatali hjá öllum helstu fiskveiði-
þjóðum henta best í íslenska fiskibáta af öllum stærðum. —
Nú þegar er væntanlegt nokkurt magn af þeim, sem þegar
er lofað. Þeir aðrir, sem hafa áhuga á að fá sér „FURUNÓ“
fiskileitartæki geri oss aðvart í tíma.
Höfum cinnig
„FURUNO“-radar
fyrir stærri og minni skip. Ódýr og
öruggur í meðferð.
Sýnishorn á staðnum.
RADÍD & RAFTÆKJAVERZLUNIN
* *
ftnii Olafssowi
Sólvallagötu 27. — Sími 12409. — Reykjavík.