Fálkinn - 19.07.1961, Blaðsíða 13
Það er ys og þys í Laugaskóla, ann-
ríki og þrengsli, því að hverja smugu
hússins þarf að nýta til gistingar með-
an mótið stendur yfir. Við náum andar-
tak tali af formanni framkvæmdanefnd-
ar og mótstjóra, Óskari Ágústssyni,
manninum, sem borið hefur hita og
þunga undirbúningsstarfsins, og mun
sannarlega hafa í mörg horn að líta
þessa dagana. Hann býður okkur vel-
komna, leiðbeinir okkur og greiðir götu
okkar í hvívetna. Að því búnu notum
við tækifærið og leggjum fyrir hann
nokkrar spurningar varðandi mótið.
-—■ Ég vil taka það strax fram; segir
Óskar, að þótt ég eigi að heita yfirmað-
ur hér, þá eru fleiri en ég, sem hafa
lagt hönd á plóginn. Ég vil til dæmis
nefna Hróar Björnsson, Stefán Krist-
jánsson, sem séð hefur um undirbúning
undir íþróttirnar bæði í héraði og á
velli og Stefán Kristjánsson frá Nesi
í Fnjóskadal,sem hefur undirbúið starfs-
íþróttirnar. Hins vegar sé ég um alla
stjórn, matinn, húsnæðið og fleira.
— Hér hafa orðið miklar breyting-
ar á skólahúsinu.
— Já, það var ráðizt í að byggja við-
bótarbyggingu við skólann, og það er
einmitt hún, sem hefur valdið okkur
mestri taugaspennu. Það hefur verið
unnið dag og nótt síðasta hálfan mán-
uðinn og lengi vel var tvísýnt, að bygg-
ingunni yrði lokið, áður en mótið hæf-
ist.
—- Hvað er margt starfsfólk hér?
■— Það er gífurlega margt. Til dæmis
eru hér 80 Þingeyingar starfandi, fyrir
utan dómara og starfsmenn við keppni,
sem munu vera álíka margir. Starfs-
menn á hótelinu eru 40, svo að alls
eru um 200 manns starfandi á öllum
vígstöðvum.
Það vinnst ekki tími til frekara
spjalls, því að kallað er á Óskar úr
öllum áttum. Það vantar herbergi hér,
kaffi þar, spurt um þetta, beðið um
hitt.
Á göngum og hlaði og raunar hvert
sem litið er, sést hið unga íþróttafólk í
litríkum æfingabúningum. Búningarnir
bera áletrun hvers héraðssambands:
UMSK, HSH, UÍA, HSÞ, UMSE, svo
að nokkur dæmi séu nefnd. Allir eru
glaðir á svip og þá spenntir undir niðri,
eins og menn eru æfinlega, þegar eitt-
hvað er í vændum, eitthvað, sem reynir
til hins ítrasta á hæfni og þrek.
Glampandi sólskin og mildur sunnan-
blær heilsar mótsgestum að Laugum
á laugardagsmorguninn. Úr tjaldbúðum
keppenda austan skólahússins taka hóp-
ar hinna einstöku héraðssambanda að
tínast einn og einn, í fararbroddi er
Óskar Ágústsson, formaður fram-
kvæmdanefndar mótsins, maðurinn,
sem bar hita og þunga allra fram,-
kvæmda á mótinu. Myndin efst t. h.:
Benedikt G. Waage, forseti ISl, af-
hendir Óskari Ágústssyni fána að
gjöf frá ISÍ.
borinn fáni hvers sambands. Hóparnir
stilla sér upp við tjörnina og þar er
einnig mætt Lúðrasveit Akureyrar.
Klukkan á slaginu níu eru fánar dregn-
ir að hún á öllu mótssvæðinu í senn,
víðast hvar íslenzki fáninn, en hér og
hvar hvítbláinn, fáni ungmennafélag-
ana. Að því loknu er gengið í fylkingu
til íþróttasvæðisins. íslendingar hafa
löngum fengið orð á sig fyrir að kunna
ekki að ganga í fylkingu, en hér er
aðra sögu að segja. Hið unga íþróttafólk
gengur skipulega og ber sig vel. Reisn
og hátíðleiki hvílir yfir þessum 600
manna hópi hvaðanæva af landinu, þar
sem hann gengur inn á leikvanginn,
reiðubúinn til harðrar en drengilegrar
keppni.
Séra Eiríkur J. Eiríksson, þjóðgarðs-
vörður á Þingvöllum og formaður Ung-
mennafélags íslands flytur ávarp, og
þar með er setningarathöfninni lokið.
Mótið er hafið.
Eiríkur J. Eiríksson, formaður UMFÍ,
setti mótið og sleit því með ræðum.
Myndin hér að neðan er tekin við
mótsslitin. Þar fyrir neðan tekur Sig-
urður Greipsson við forsetabikarn-
um fyrir hönd Héraðssambandsins
Skarphéðins, sem bar sigur úr být-
um á mótinu, hlaut 228 stig. Fast
á eftir kom Héraðssamband Suður-
Þingeyinga með 220,5 stig og númer
þrjú varð Ungmennasamband Eyja-
fjarðar með 100 stig.