Fálkinn - 19.07.1961, Síða 14
Hörö
keppni
íöll-
um
greinum
hvers annars. Eins og segir í
vísunni:
Týndur fannst, en fundinn
hvarf,
að fundnum týndur leita þarf.
Þá týnist sá, sem fundinn fer
að finna þann sem týndur er.
Þulirnir eru óþreytandi við
að kalla upp hina týndu og
koma í veg fyrir svipað því,
sem lýst er í vísunni.
— Keppendur í kúluvarpi
beðnir að mæta, kveður aftur
við í hátalaranum, og þannig
koll af kolli. Margar greinar
hefjast í senn og alltaf er eitt-
hvað að gerast.
Víðast hvar um völlinn má
sjá íþróttamenn og íþróttakon-
ur að „mýkja sig upp“, sem
kallað er. Með stuttum milli-
bilum kveða ræsisskotin við.
í hlaupunum, og raunar flest-
um greinum mótsins, er þátt-
taka það mikil, að keppa þarf
í undanrásum, milliriðlum og
loks úrslitum. Það er ólíkt
skemmtilegra að fylgjast með
mótum sem þessu eða frjáls-
íþróttamótum höfuðstaðarins,
þar sem tveir eða þrír kepp-
endur eru í hverri grein oft
og tíðum.
Tíminn líður ótrúlega fljótt.
Hverri greininni lýkur á fæt-
ur annarri. Ahorfendur eru
margir og hvetja óspart „sína
menn“.
— Keyra! Keyra! Þú hefur
hann, er kallað á áhorfenda- «
pöllimum.
Það er blíðskaparveður fyrri
daginn, en óhagstætt veður
hinn síðari. Keppendur láta
þó veðurguðina engan veginn
gera sér gramt í geði og ár-
angur er sízt lakari síðari dag-
inn. Það hafa skipzt á skin og
skúrir í raunverulegri merk-
ingu hvað veðrið snertir og
óbeint hvað árangur einstakra
héraðssambanda áhrærir. Á
íþróttamótum fer margt á ann-
an veg en ætlað var, og vonað
og aftur gerast atvik, sem
koma skemmtilega á óvart.
Það reynir á hinn sanna
íþróttaanda, að kunna að taka
jafnt sigri og tapi.
Framkvæmd mótsins hefur
verið mjög vel af hendi leyst,
en mótsstjóri er Þorsteinn Ein-
arsson, íþróttafulltrúi. Hann ,
er á þönum um völlinn þveran
og endilangan báða mótsdag-
ana. Okkur tekst þó að ná tali
af honum örstutta stund: ■
— Ég hef aldrei séð eins
góða fylkingu á nokkru lands-
móti og var hér við setningu
þessa móts, segir Þorsteinn. —
Þessi myndarlegi hópur bar
Einn vinsælasti keppandinn
í frjálsum íþróttum móts-
ins var Haukur Engilberts-
son UMSB, sem sigraöi í
1500 metra hlaupi og 5000
metra hlaupi með miklum
yfirburðum og setti lands-
mótsnvet í báðum greinun-
um. 1500 metrana hljóp
Haukur á 4:08,8 mín., gamla
metið vra 4:12,4 og næsti
maður á eftir Hauk hljóp á
4:19,2. I 5000 m. var Hauk-
ur rúmum tveimur hring-
um á undan næsta manni,
hljóp á 15:30,3 mín. Gamla
rnetið var 15:47,0.
Urslitaspretturinn í hundrað metra hlaupi karla var
geysiharður og jafn, eins og raunar öll keppni mótsins.
Yzt til vinstri sést Ólafur Unnsteinsson HSK, sem sigr-
aði á 11.3 sek. Númer tvö frá vinstri er Þóroddur Jó-
hannsson UMSE, sem varð annar á 11.4.
— Keppendur í hundrað
metra hlaupi beðnir að mæta,
kveður við í hátalaranum.
Þulir mótsins hafa aðsetur
sitt í skúr í einu horni vallar-
ins, og þar er einnig til húsa
Sigurður Sigurðsson, sem lýsir
keppni fyrir útvarpshlustend-
um, og fleiri starfsmenn. Skúr
þessi gengur undir nafninu
Kærleiksheimilið, Um ástæð-
una er ekki vitað, en ef til
vill er hún sú, að, þar verða
oft miklir fagnaðarfundir. Á
fjölmennum mótum sem þessu
villi brenna við, að menn týni
hver öðrum og leiti ákaft