Fálkinn - 19.07.1961, Side 15
Svipmynd frá stangarstökkskeppninni. Brynjar Jensson
HSH reynir við hæðina 3.82 m.
sig vel og bar fánana reisu-
lega. Ég vil geta þess, að fólk-
ið heima héruðunum á mikinn
þátt í, hversu vel þetta tókst.
Hóparnir hafa bersýnilega æft
þetta, áður en hingað kom. Það
var snyrtimennska og reisn yf-
ir þessu.
— Hvernig er aðstaðan á
vellinum?
— Mér finnst hún hafa tek-
izt framar björtustu vonum.
Ég vil nefna sem dæmi, að all-
ar áætlanir hafa staðizt hvað
tímann snertir. Þetta er fyrst
og fremst því að þakka, að
starfsmenn mótsins eru vanir
mótum hver heima í sínu hér-
aði. Með óvönum mönnum
hefði þetta aldrei gengið svona
vel.
— Völlurinn er góður, sér-
staklega fyrir stökk og hlaup.
— Og árangurinn?
— Að mínum dómi er hann
sérstaklega góður. Það, sem
þetta mót hefur umfram flest
önnur frjálsíþróttamót, er
fjöldi þátttakenda. Hér er
margt ungt fólk með jafna
getu, svo að keppni er alls
staðar mikil og hörð. Margt
af þessu fólki er feimið við
að fara til Reykjavíkur, þar
sem eru fleiri afreksmenn eða
„toppar“, eins og kallað er.
En hér nýtur það sín betur.
— Hvað um. framkvæmd
mótsins?
Og þar með er Þorsteinn
þotinn af stað með gjallarhorn-
ið í hendinni. Allsstaðar er
eitthvað að gerast á vellinum.
Það er mikið líf og hreyfing
og loftið þrungið spennu ....
Oddrún Guðmundsdóttir
UMSS sigrar í 200 m hlaupi
kvenna á 29,7 sek. Oddrún
sigraði einnig í kúluvarpi og
setti nýtt landsmótsmet,
varpaði 10.64 metra.
Heiðar Georgsson UMSN
sigraði í stangarstökkinu, en
brá sér einnig í hástökkið
og varð þar þriðji.
Myndin hér að neðan er af
Þórði Indriðasyni HSH og
Ólafi Unnsteinssyni HSK, en
þeir unnu beztu afrek móts-
ins í frj. íþr. Bómnefnd tók
sér frest um að úrskurða,
hvort afrek Ólafs í 100 m
11,1 (870 stig) í undanrás
skyldi teljast tiíheyrakeppn-
inni. Ef ekki, teldist afrek
Þórðar í þrístökki (14.26 m)
bezta afrek mótsins.