Fálkinn - 19.07.1961, Side 22
Búizt til brottferSar eftir ánægjulegt og viðburSaríkt mót.
Við höfum pakkað niður
dóti okkar og erum ferðbúnir.
Okkur tekst að ná augnablik
í Óskar Ágústsson til þess að
kveðja hann og þakka honum
fyrir góðan beina og greiða-
semi. Óskar er orðinn úrvinda
af þreytu, hefur sofið alls sex
tíma á tveimur sólarhringum
og varla gefið sér tíma til að
borða.
— Ertu ánægður með mót-
ið?
— Já, ég get ekki annað
sagt. Ég get raunar ekki dæmt
um það, því að ég hef verið
mest innivið og ekki getað
fylgzt með, hvernig þetta hef-
ur gengið úti. En eftir því sem
mér hefur verið tjáð, þá hef-
ur allt farið snurðulaust fram.
— Er ekki starfsfólkið hér
á hótelinu orðið uppgefið fyr-
ir löngu?
-— Þær eru orðnar þreytt-
ar, blessaðar stúlkurnar, enda
hafa þær staðið sig sérstaklega
vel. Ég get nefnt sem dæmi,
að við afgreiddum 700 máltíð-
ir á tveimur tímum.
★
Vegur og vél, en ekki sól
að þessu sinni, heldur niða-
dimm þoka, sem byrgir allt út-
sýni á hinni fögru leið frá
Laugum til Akureyrar. En sól-
in var sannarlega ekki á því
að yfirgefa okkur í þessari
ferð. Hún skein glatt alla leið-
ina frá Akureyri til Reykja-
víkur daginn eftir. Og ef ein-
hver sem rýnir í þessar línur
er þeirrar skoðunar, að á þess-
um síðustu og verstu tímum
sé varla búandi á landi hér,
— þá skal honum ráðlegt að
aka norður í land ....
Báðum mótsdögum lýkur hafði verið, að afloknum móts-
með dansi. Dansað er á þrem- slitum og verðlaunaafhending-
ur stöðum, í leikfimihúsinu, um.
í bifreiðaverkstæði, sem gefið
hefur verið hið fræga nafn
„Rauða millan“, og loks á
pálli. Mikið fjölmenni og fjör
ríkir á öllum dansstöðunum.
Meðan við stöldrum við á pall-
inum, er ákaft sundið „Svífur
yfir Esjunni sólroðið ský“ og
hljómar dálítið undarlega í
náttúrufegurðinni hér í
Reykjadalnum. Dægurflugurn.
ar fljúga hvert á land sem er.
.... Síðari mótsdaginn spill-
ist veðrið, eins og fyrr hefur
verið sagt, og margir taka því
að búast til brottferðar. Það
styttir þó upp, er líður á Reykjavíkur og seztir við rit-
kvöldið og dansinn hefst af vélarnar eða komnir á kaf í
fullu fjöri, eins og ráðgert myrkrakompurnar.
Þessar fjórar stúlkur hittum við á heimleiðinni frá
Akureyri til Reykjavíkur við Gönguskörð. Þær heita:
Anna Hilmarsdóttir, Fremsta-Gili, Guðlaug Steingríms-
dóttir, Móbergi, Ásta Karlsdóttir, Úthlíð 11, Reykjavík,
og Halldóra Hilmarsdóttir, Fremsta-Gili. Þær kváðust
allar hafa verið á Laugamjótinu og skemmt sér alveg
konunglega. Guðlaug keppti bæði í langstökk og 100
m hlaupi og varð önnur í báðum greinunum.
*
Við höfum nú í myndum og
stuttum texta reynt að bregða
upp svipmyndum frá 11. lands-
móti UMFÍ. Það er liðið að
lokum þess og við eigum öku-
ferð um óralangan veg fyrir
höndum. Ýmsum skyndimynd-
um bregður upp í huganum
eins og leiftrum, myndum,
sem eiga eftir að skírast, þeg-
ar við erum aftur komnir til