Fálkinn


Fálkinn - 09.08.1961, Page 4

Fálkinn - 09.08.1961, Page 4
G. J. FOSSBERG, Vélaverilun h.f. Vesturgötu 3 — Reykjavík Atlskonar handverkfærí, rafknúm verkfæri 09 tæki, efnavörur tilheyrandi járn- 09 vélsmíði o.fl. UTANRÍKISRÁÐHERRA Breta, Home lávarður hefur smátt og smátt kynnzt Nikita Krushchev nokkuð vel og kemst svo að orði um pólitík hans: Hr. Krushev spilar alþjóðlegt pókerspil svo, að mér dytti aldrei í hug að láta hann sjá á mín spil.“ « ★ DARRYL ZANUCK, bandarískur kvikmynda- framleiðandi, er frægur fyrir lygasögur sínar, sem jafnvel von Miinchhausen barón gæti ekki logið upp, ef á lífi væri. Eitt sinn sagði vinur hans honum frá mjög drukknum manni, sem hann hefði séð. Darryl sló þá hendinni út fyrirlitlega og sagði: „Vinur minn, hvað er það á móti því, sem ég sá einu sinni. Maður kom reikandi í spori heim til sín og hafði verið í drykkjusvalli. Hann tók vindilinn úr kjaftinum og lagði höf- uðið í öskubakkann og — stökk út um glugg- ann.“ ★ í MEXICO hafa nýlega verið teknar nokkrar kvikmyndir fyrir sjónvarp. Aðalhlut- verkið leikur Gloria Swan- son, gömul stjarna þöglu kvikmyndanna. En hún hef- ur nýlega byrjað að leika aftur og fékk fremur góða dóma fyrir leik sinn í Sun- set Boulevard. Hún gerði all- kyndugar kröfur við upptökuna, hún krafðist þess sem sé, að meðleikararnir sneru baki í myndavélarnar á meðan upptöku stæði. Að vísu mögluðu þeir, en gátu ekki að gert. Hvað snerti Gloriu sjálfa, sagði hún, og það kenndi stolts í röddinni: „Ég er enn hin mikla lista- kona, sem ég var áður. Myndunum fer að- eins aftur.“ ★ BRENDAN BEHAN, hinn írski rithöfundur, sem kunn- ur er fyrir verkið Gidset, er einn af þeim mönnum, sem skilja ekki eftir dreggjar í staupinu. Það er ekki langt um liðið, síðan hann sagði v,ini sínum, er þeir sátu við bar í Dublin, að hann væri hreykinn af sjálfum sér fyrir að hafa gefið blóðbanka staðarins ríflegan skammt af blóði. Það hummaði í vininum um leið og hann svaraði: „Nú, það getur sjúkrahúsið mæta vel notað til þess að gerilsneyða tæk,in“. 4 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.