Fálkinn


Fálkinn - 09.08.1961, Qupperneq 22

Fálkinn - 09.08.1961, Qupperneq 22
UU er fremur viðkvæm í meðförum, svo að hana þarf að þvo mjög varlega eins og önnur viðkvæm efni, t.d. silki. Séu ullarflíkur ekki þvegnar af nægi- legri nákvæmni, hleypur flíkin og miss- ir hið fallega útlit sitt, auk þess sem hún tapar mýkt sinni og hlýleika. En sé vissum reglum fylgt, má með góð- um árangri þvo allar einfaldar ullar- flíkur, svo sem prjónles, peysur, hvers- dagsflíkur og barnafatnað, sem vill óhreinkast fljótt og þarf því oft á hreinsun eða þvotti að halda. Aftur á móti er ráðlegra að láta hreinsa í efna- laug allar vandaðri flíkur úr ull, t.d. fína kjóla utanhafnarflíkur o.s.frv., aðallega vegna þess, að erfitt er að ganga frá þessum flíkum heima, svo að vel sé. Hér eru svo nokkrar ráðleggingar varðandi þvott á ullarflíkum, og er þá fyrst og fremst miðað við prjónaflíkur, sem eru vandmeðfarnari en þær, sem ofnar eru. Látið viðkvæmar flíkur aldrei verða mjög óhreinar áður en þær eru þvegn- ar. Það borgar sig illa. Notið aðeins ylvolgt vatn eða 30—35° á C. Ef vatnið er haft heitara t.d. um 50° C, þófnar ullin. Ull þolir einnig mjög illa að hitna og kólna á víxl, þess vegna er nauðsynlegt að öll vötnin, sem notuð eru á hverja flík, séu við svipað hitastig og bezt að þvo hverja flík í einni lotu, svo að hún kólni sem minnst á milli þess, sem hún er þvegin og skoluð. Athugað skal hvort flíkin lætur lit, einkum og sér í lagi, sé hún tvíbanda. Getur þá oft verið heppilegra að láta hreinsa flíkina í efnalaug. Sé hún hins vegar þvegin heima, er gott að væta flíkina úr volgu saltvatni, áður en hún er látin í sápuvatnið, það festir litinn. Nægir að láta 1 msk. af salti í venjulegt þvottafat. Annars er ætíð gott að væta prjónaflíkur í hreinu, ylvolgu vatni, áð- ur en þær eru settar í sápuvatnið. Varizt að nota sterka sápu eða lút, notið sápuspæni eða ýmis hinna nýju sápulausu þvottaefna, sem mörg eru ætluð til þvotta á ull. Ætíð ætti að hafa vægar sápuupplausnir og þess gætt að leysa þvottaefnið vel upp. Séu not- 22 FALKINN aðir sápuspænir nægir 1 msk. í venju- legt þvottafat. Vætið flíkina vel í þvottavatninu, kreistið hana undir yfirborði vatnsins, en dragið hana ekki upp og niður. Var- izt að núa prjónaflíkur, en sé þess þörf þá fremur á flötum lófa en milli krepptra hnúanna. — Hjaðni sápufroð- an fljótt, er það merki þess, að flíkin hafi verið það óhrein að sápan vinni ekki á óhreinindunum. Er þá nauðsyn- legt að þvo flíkina úr öðru sápuvatni, sem er heppilegra en að þvo einu sinni úr sterkri sápuupplausn. Eins skal það varazt að bera sápu í ullarflíkur. Sé verið að þvo hvítar ullarpeysur, sem stundum hættir til að gulna. getur ver- ið gott að setja örlítið bórax saman við sápuvatnið því til varnar. Þegar flíkin hefur verið þvegin nægi- lega úr mildu, volgu sápuvatni, er hún skoluð úr 3—4 volgum vötnum. Hafi litur runnið úr, er gott að setja svolítið edik í næstsíðasta skolvatnið, það hreinsar og skýrir litina. Vindið aldrei ullarflík þannig, að snúið sé fast upp á hana, heldur á að kreista eða þrýsta vatnið varlega úr henni. Einnig er gott að vinda ullar- flíkur í vindu; eru þær þá settar innan í stykki, áður en þær eru settar í vind- una, svo að þær mistogni ekki. Bezt er að forðast að þurrka ullar- flíkur nærri heitum ofni eða í sterku sólskini. Hengið t.d. peysur aldrei upp á herðatré eða með klemmum upp á snúrur. Vefjið þeim fyrst inn í t.d. vandað frottéhandklæði eftir þvottinn og þerrið mestu vætuna í það. Þá renn- ur litur líka síður til. Leggið síðan peysuna á stykki eða á gömul dagblöð, t.d. á stofugólfið yfir nótt. Þá er gott að klappa peysuna vel með flötum lófa, jafngildir það pressun. Á þetta einkum við. sé um útprjón að ræða, sem ætti að varast að pressa nema sem minnst. Sé flíkin tvíbanda, þarf að setja dag- blöð (prentsvertan lætur ekki lit) eða stykki inn í flíkina, svo að ekki renni til í henni. Er gott að skipta um blöð, þegar þau hafa dregið í sig vætuna. Sé verið að þvo tflík, sem hætt er við að aflagist í þvottinum, er sjálfsagt að mæla hana áður en hún er þvegin, t.d. sídd, vídd og ermalengd, en þá verður að taka tillit til þess, að hún kann að vera orðin misteygð í notkuninni. Þeg- ar flíkin er lögð til þerris er hún svo teygð í það mál, sem tekið var. 200 gr smjörlíki er hrært hvítt með 300 gr af strásykri. Einu eggi er hrært út í. 600 gr hveiti, blönduð með 2^ teskeið gerdufti, er hrært inn í smjör- ið og sykurinn, þynnt út með 1 Vz dl af mjólk. Bakað við meðalhita ca. eina klukkustund.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.