Fálkinn - 16.08.1961, Side 4
JFrutnh. getraunarinnar:
Hvaða fyrirtæki er elzt?
Pólar h.f., rafgeymaverksmiðja, Einholti 6
Framleiða allar stærðir rafgeyma í bíla, vél-
báta og landbúnaðarvéla.
Silli & Valdi, Aðalstræti 10
Bara liringja svo kemur það.
Sjóklæðagerð Islands h.f., Skúlagötu 51
Hvers konar blífarfatnaSur úr hinum þekktu
Galon-plastefnum fyrir konur, karla, unglinga
og börn. Ýmis konar herra- og dömufrakkar,
vixmuvettlingar o. fl.
Sjóvátryggingafél. Islands h.f., Ingólfsstr. 5
Sjó-, bruna-, bifreiða-, jarðskjálfta-, reksturs-
stöðvunar- og líftryggingar. FerSa- og stríðs-
tryggingar.
Slippfélagið í Reykjavík, Mýrargötu
Skipaviðgerðir, sldpasmíðastöð, trésmiðja,
málningarverksmiðja, efnissala, byggingarvör-
ur, málningarvörur, smíðavörur og verkfæri,
skipaútbúnaður o. m. fl.
Snyrtivörur h.f., Hallarmúla 1
Heildverzlun, umboð fyrir Misslyn, Durbans,
Nestle og Lanolin Plus.
Verzlun B. H. Bjarnason h.f., Aðalstræti 7
Járnvörur, búsáhöld m. m.
Verzlun G. Zoega h.f., Vesturgötu 6
Nýlenduvörur, glervörur og búsáhöld.
Verzlunin Edinborg, Hafnarstræti 10-12
Vefnaðarvörur, búsáhöld og leikföng.
Verzlun 0. Ellingsen h.f., Hafnarstræti 15
Útgerðarvörur, vinnufatnaður, málningarvör-
ur, verkfæri, vélaþéttingar. Elzta og stærsta
veiðarfæraverzlun landsins.
Verzlunin Liverpool, Lau gavegi 18a
Búsáliöld og leikföng.
Verzlun Vald. Poulsen h,f., Klapparstíg 29
Verkfæri, vélar, vélahlutar, vélareimar, boltar,
skrúfur og kranar alls konar o. m. fl. Þótt
annarsstaðar sé ei til, oft það fæst hjá Poulsen.
4 FÁLKINN
Enski samgöngu- og um-
ferðarmálaráðherrann Ern-
est Marples, sem einnig sér
um mál, er varða bifreiðar,
sagði ekki alls fyrir löngu
í neðri málstofunni í brezka
þinginu nokkur orð, sem bif-
reiðastjórarhér á landi hefðu
gott af að heyra. Einkum
þeir, sem hafa ætlað sér að fara með bíla
sína til annarra landa og aka um í útlöndum.
Hann talaði um það kapp, sem bifreiða-
eigendur legðu á að komast til annarra landa,
sérstaklega þegar ferðamannastraumurinn
væri sem mestur og komst hann svo að orði:
„Margir bifreiðaeigendur eru svo ákafir að
aka til annarra landa, að það endar með
því að þeir aka yfir í annan heim.“
★
Menn tala nú oftar um
skegg Castros, en aðra lík-
amsparta hans. Auðvitað ber
sérhver hollur þegn á Kúpu
skegg til að líkjast sjálfum
forsetanum.
Dag nokkurn kom einn af
taðskegglingum þessum til
rakara í Havana, og bað um
rakstur.
„í guðanna bænum rakið
þetta allt af mér, vanga- og
yfirvararskegg. Auk þess skuluð þér klippa
þennan lubba af mér. En segið mér, má ég
reykja vindilinn minn á meðan.“
„Það vil ég mjög gjarnan,“ sagði rakar-
inn, ,,því að þá get ég séð hvar munnurinn
er.“
★
Nýjasta uppá.
tækið í New
York er, að
konur fara
ekki til kok-
dillsboða með
eiginmönnum
sínum eða öðr-
um vinum,
heldur fara þær með sálfræðingi sínum.
Að sjálfsögðu verða gestgjafarnir að sjá
svo um, að legubekkur sé til staðar handa
konunni. Og er menn hafa lokið við sex eða
sjö kokdilla, á konan á að vera búin undir
að opna hjarta sitt fyrir sálfræðingi sinum.
Þessi háttur á sálgreiningu er talinn ólíkt
skemmtilegri, en að menn séu yfirheyrðir í
lokuðum klefum sálfræðinganna.
★
Hinn vitri enski dómari leit á konuna, sem
var að stíga upp í vitnastúkuna og sagði
við starfsbróður sinn: „Væri ekki ráð að láta
vitnið gefa upp aldur sinn og láta það síðan
vinna eiðinn.“