Fálkinn - 16.08.1961, Blaðsíða 11
— Þú varst til sjós áður?
— Já, ég var í tvö og hálft
ár á „Goðanum“ en slasaðist
rétt eftir strandið í Ólafsfirði
í vor. Það var ljótt maður.
— Ert þú þar með búinn að
draga strik undir sjómennsk-
una?
— í bili að minnsta kosti.
Ég er nýbyrjaður að búa.
Kann betur við mig heima.
Frammi á lúgunni voru Ól-
afur Magnússon, Jónmundur
Einarsson og Ragnar Jónsson
og svo lúgumaðurihru Magn-
ús Geirsson.
— Þú ert búinn að vinna
hérna lengi Ólafur?
— Já, mörg ár.
— Og kannt alltaf jafn vel
við þig?
— Já, ágætlega.
— Taktu mynd af orðunni
sem Óli fékk hjá Rússanum,
kallaði Magnús Geirsson.
— Fékk Ólafur orðu hjá
Rússanum?
— Já, það er alveg satt,
sögðu Jónmundur og Ragnar.
— Fyrir hvað fékk hann
orðuna?
— Það var hérna þegar
rússneska eftirlitsskipið var
hér síðast og við vorum að
vinna í Tröllafossi, þá var
einn Rússinn að fara yfir
Tröllafoss og niður landgang-
inn. Þá kom vindkviða og
þeytti af honum húfunni. Ól-
afur var þarna og greip húf-
una og rétti Rússanum, sem
var víst eitthvað háttsettur.
Jæja, viti menn; Daginn eftir
fær Ólafur bara senda orðu
og skjal frá þeim rússnesku.
Ólafur hafði ekki tekið
neinn þátt í þessu tali um orð-
una, enda maður hlédrægur.
— Þú ert orðinn gamall í
hettunni hérna á ,,kæjanum“
Jónmundur?
— Já, ég er einn af stofn-
endum „Djöflagengisins“. Við
erum bara tveir eftir hann
Ásgeir þarna og ég. Hinir
hættir eða dauðir eða hver
veit hvað.
— Hvenær var „gengið“
stofnað.
— Það er búið að vera við
lýði síðan 1941. Þá var nú líf
í tuskunum maður. Jón Rögg.
gaf okkur nafnið. Það eru
bara allt nýir menn nema við
Geiri.
— Þú verður að taka mynd
af lestarformanninum, sagði
Ragnar.
Lestarformaðurinn reynd-
ist vera Hugi Vigfússon og
stóð aftur við yfirbyggingu
og tók á móti staurum ásamt
sínum mönnum.
Ólafur Teitsson, ívar Sigurbjörnss. og Ragnar Sigurðsson.
— Hvert er þetta timbur að
fara?
— Norður
— í hvað nota þeir fyrir
norðan svona stórtimbur?
— Þetta eru bryggjustaur
ar og þetta þarna er kjalviður
í bát. Það á að fara til Akur-
eyrar,
— Það hefir verið nóg að
gera hérna við höfnina síðan
verkfallinu lauk. Oft unnið
um helgar, sagði Ingimundur
Sæmundsson.
— Hífðu stroffuna undan
staurnum, sagði lestarformað-
urinn Hugi. Magnús lúgumað
ur stóð uppi á lestarhlerunum
og sagði mönnum sem voru
að taka á móti traktor á höf-
uðdekkinu' hvernig þeir ættu
að bera sig til. Það var dálít-
ill hávaði og menn ekki sam-
mála og einhver kallaði,
vertu ekki að messa þetta yfdr
mönnunum Mangi!
Guðsteinn Einarsson var á
bakborðsvindunni að framan
og þeir sögðu að það hefði
komið forsíðumynd af honum
í Tímanum í fyrra.
— Blessaður vertu ekki að