Fálkinn - 23.08.1961, Blaðsíða 24
við. Deigið hnoðað, þar til það gljáir.
Látið lyfta sér tilbirgt á volgum stað
nál. 20 mínútur, á að hafa stækkað allt
að því um helming.
Deiginu skipt í tvennt, hvorum helm-
ing skipt aftur í 2-—3 bita, sem úr eru
búnar til lengjur. Flattar út með flötum
lófa, dálítið af fyllingu sett á, deiginu
lokað yfir og lengjur mótaðar á ný. Flétt-
aðar 2 stangir, sem eru látnar lyfta sér
.á plötunni í 20 mínútur. Smurðar með
eggi, grófum sykri og söxuðum möndl-
um stráð yfir.
Bakað við góðan hita 230° í 20 mín-
útur.
Úr deigi þessu er einnig hægt að búa
til bollur og horn, t. d. úr helmingnum.
en
en^fLtr
Vz kg hveiti
300 g smjörlíki
100 g sykur
2 egg
60 g pressuger
eða 2 msk þurrger
4 tsk kardimommur
2—2i/2 dl ylvolg mjólk.
Fylling:
50 g smjörlíki
rifinn appelsínubörkur
3 msk sykur
1 msk marmelaði.
Smjörið mulið saman við hveitið,
gerið mulið saman við (sé þurrger not-
að, er það hrært út með nál. 1 msk. af
volgu vatni), kardemommunum blandað
saman við, einnig eggjunum, volgri
mjólkinni hrært smátt og smátt saman
100 g smjörlíki
1 dl sykur
1 egg
3 V2 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
2 dl rúsínur
2 msk. appelsínubörkur.
Venjulegt hrært deig. Látið með te-
skeið á velsmurða plötu. Bakað við nál.
300 gráður.
Svona skal festa hnapp á yfirhafnir
Leggið lítinn hnapp á rönguna —
sjáið næstu mynd. Saumið hnappinn
fastan yfir tvær eldspýtur, sem lagð-
ar eru á réttu flíkarinnar. Notið
hnappagatasilki, hörtvinna eða næ-
lontvinna til að sauma með.
Hér sjáið þið styrktarhnappinn, sem
er á röngu flíkarinnar. Athugið, að
sauma jafnt, hafa sporin jafnlöng,
stingið beint upp og niður. Við verð-
um að fá 2 lykkjur hlið við hlið á
réttunni kringum eldspýturnar, spor-
in mega alls ekki víxlast.
Oft vilja hnapparnir hrynja úr káp-
unum okkar, en hjá því getum við
komizt, að minnsta kosti um dálít-
inn tíma, ef við festum, þeim eins og
eftirfarandi myndir sýna.
Dragið eldspýturnar úr lykkjunum
og dragið síðan þráðinn gegnum þær.
Festið síðan hnappinn á þann hátt,
að sauma í lykkjurnar. Vefjið að lok-
um tvinnanum, í kringum lykkjurn-
ar, þannig að það myndast eins og
fótur.
24
FÁLKINN