Fálkinn - 22.02.1965, Page 40
© Túperað hár
Framh. af bls. 38.
aftan verðu, en á að öðru leyti
að falla mjúkur og viðráðan-
legur niður, eftir því hvernig
hárgreiðslan er.
?. Gert er ráð fyrir, að það
þurfi að túpera um 12 lokka
frá hvirfli aítur á hnakka
og til hliðanna, ef hárgreiðsl-
an er hálfsíð og slétt. Þegar
hárið í vöngunum er túper-
að, er lokknum haldið beint
út.
4. Byrjið að túpera hárið
fremst og endið í hnakkan-
um. Þegar við greiðum svo
hárið á eftir, er byrjað í
hnakkanum og greitt í stöll-
um fram að enni. Að lokum
er hárinu lyft léttilega með
greiðunni.
I. Þessi einfalda hárgreiðsla er
ré't túperuð, hárið í vöng-
unum sýnist mikið og upp
á hvirflinum lyftir það sér,
en fellur þó eðlilega og
fallega.
© Bollur
Framh. af bls. 39.
Krembollur.
175 g smjörlíki
250 g hveiti
1 tsk. kardemommur
1 msk. sykur
iy4 dl mjólk
25 g ger eða
2% tsk. perluger
1 egg.
Smjörlíkið mulið saman við
hveitið, kardemommunum og
sykri blandað saman við.
Mjólkin velgd, gerið hrært
saman við, blandað í deigið
ásamt egginu.
Deigið hnoðað vel. Sett í
hveitistráða skál. Látið lyfta
sér á volgum stað, þar til það
hefur stækkað um helming
(nál. 30 mínútur).
Deigið hnoðað á ný og mót-
aðar úr því bollur, sem settar
eru á smurða plötu.
Bollurnar flattar dálítið út,
gerð hola í miðjuna. Bollurnar
látnar lyfta sér í 15 mínútur.
1 tsk. af vanillukremi (t. d.
pakkabúðingur) látin í miðju
hverrar bollu, sem síðan eru
smurðar með eggi.
Bakað við 200° í nál. 20
mínútur.
Skreyttar að ofan með flór-
sykurbráð súkkulaðibráð.
40 FÁLKINN
Bollurnar er einnig hægt að
fylla með aldinmauki.
Rjómabollur úr vatnsdeigi.
2 dl vatn
1 tsk. sykur
100 g smjörlíki
100 g hveiti
3 lítil egg.
Innan í:
1 dl þeyttur rjómi
1 tsk. sykur
1 eggjarauða
Vanilla
Ofan á:
Flórsykur
Vatn, sykur og smjörlíki soð-
ið saman, hveiti sáldrað saman
við, deigið hrært, þar til það
losnar frá potti og sleif. Kælt
dálítið, eggjunum, eitt og eitt
í einu, er þeytt saman við.
Sett á smurða plötu með
skeið eða sprautað. Bakað við
250° fyrstu 10 mínúturnar
síðan 225°. Ekki má líta inn
í ofninn fyrstu mínúturnar.
Þegar kökurnar eru orðnar
kaldar, er lok skorið af þeim
og þær fylltar með þeyttum
rjóma eða eins konar hrákremi,
þá er eggjarauða hrærð með
sykri og vanillu og þeyttum
rjóma blandað þar saman við.
Flórsykri sáldrað yfir boll-
urnar.
Fylltar bollur.
250 g hveiti
125 g smjörlíki
1 msk. sykur
1 tsk. salt
1 tsk. kardemommur
Vz egg
35 g ger
1 dl köld mjólk.
Innan í:
50 g smjör
50 g sykur
50 g marsipan.
Smjörlíkið saxað saman við
hveitið; sykri, salti, karde-
mommum, eggi og mjólkinni,
sem gerið hefur verið hrært
út í, biandað saman við.
Deigið hnoðað vel saman,
flatt út i 1 cm þykka köku,
sem skipt er í um 15 ferkant-
aða bita. Á miðju hvers fer-
hyrnings er lögð fyllingin, sem
bara er hrærð saman. Hornin
beygð inn yfir fyllinguna. Boll-
urnar settar á smurða plötu,
samskeytin eiga að snúa niður.
Látið lyfta sér tilbirgt á volg-
um stað í 30—45 mínútur.
Bollurnar smurðar að ofan,
bakaðar við 250° í 12 mínútur.
Þegar bollurnar eru orðnar
kaldar, eru þær smurðar með
súkkulaðibráð eða sáldrað á
þær flórsykri.
HVAÐ GERIST ÞESSAVIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. april:
Fyrri reynsla þín getur orðið til þess að
auðvelda þér að leysa þau verkefni sem
fyrir hendi eru. Ef þörf krefur, hikaðu þá
ekki við að leita ráða vina þinna. Varastu
fl.iótfærnislegar ákvarðanir um helgina.
Nautið, 21. apríl—21. maí:
Gamall vinur þinn kemur á ný fram á
sjónarsviðið. Taktu vingjarnlega á móti
honum og reyndu að vera honum til
ánægju. Þú ættir ekki að sækja skemmt-
anir um helgina, það yrðu aðeins vonbrigði
fyrir þig.
Tvíburarnir, 22. mai—21. júní:
Það er ekki ólíklegt, að þér bjóðist ný
tækifæri til að auka vinsældir þínar og
koma ár þinni betur fyrir borð, hvað at-
vinnu snertir. Gamall samstarfsmaður þinn
gæti orðið þér hjálplegur, ef þú kannt að
notfæra þér reynslu hans.
Krabbmn, 22. júní—23. júlí:
Það gæti verið, að þér bærist bréf með
skemmtíiegum fréttum nú i vikunni. Þú
mátt einnig búast við fregnum af löngu
gleymdum kunningja, sem gjarna vili
endurnýja kunningsskap. Farðu gætilega
í umferðinni.
LjóniS, 2U. júlí—23. ágúst:
Þessi vika á eftir að færa þér óvæntan
hagnað. Þér gæti jafnvel tæmzt arfur, sem
þú hefur ekki átt von á. En láttu ánægju
þína yfir hagnaðinum ekki verða til þess
að þú farir ógætilega með peninga.
Meyjan, 21/. ágúst—23. sept.:
Maki þinn eða félagi gæti komið þér
skemmtilega á óvart í vikunni með því að
gefa þér hlut, sem þú hefur lengi haft hug
á að eignast. Sýndu þakklæti þitt með því
að stilla skapsmuni þína. Þér hættir við að
vera nokkuð deilugjarn.
Vogin, 24. sept.—23. okt.:
Ekki er ég frá því að þú hljótir ein-
hverja viðurkenningu fyrir vel unnin störf
eða eitthvað sem þú hefur látið af hendi
rakna fyrir nokkuð löngu síðan. Þú færð
ágætar hugmyndir um, hvernig þú getur
skipulagt sem bezt störf þín.
Drekinn, 24. okt.—22. nóv.:
Þegar á allt er litið, ætti þetta að geta
orðið nokkuð skemmtileg vika. Þú uppgötv-
ar nýtt og skemmtilegt tómstundastarf, og
þér býðst gott tækifæri til að sækja leikhús
og dansleiki.
Bogmaðurinn, 23. nðv.—21. des.:
Þú ættir ekki að vera með óþarfa áhyggj-
ur vegna fjölskyldu þinnar; það kemur í
ljós nú í vikunni, að þú hefur ástæðu til
að vera bjartsýnn, hvað það snertir. Þú
skalt leggja áherzlu á að vinna þér álit
vfirmanna þinna.
Steingeitin. 22. des.—20. janúar:
Djarfar og frumlegar hugmyndir skjóta
upp kollinum núna í vikunni. Þú ert búinn
að brjóta heilann um visst viðfangsefni, svo
nú hefur þú tækifæri til að koma því í
framkvæmd. Fólk gefur orðum þínum
gaum.
Vatnsberinn, 21. janúar—19. febrúar:
Þér býðst tækifæri til að auka tekjur
þínar. Gættu þess að láta það ekki ganga
þér úr greipum, því það er ekki vist að
þér bjóðist sams konar tækifæri á næst-
unni. Varastu samt að skipta þér af fjár-
málum annarra.
Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz:
Líkur eru fyrir því, að ýmislegt sem var
lagt á hilluna og gleymt, verði nú skyndi-
lega mikilvægt í einkalífi þinu. Þú ættir að
reyna nýiar aðferðir við að koma persónu-
legum málefnum bínum á framfæri.