Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1980, Blaðsíða 4

Stúdentablaðið - 01.12.1980, Blaðsíða 4
b: Magnús, hefur þú einhverja sérstaka skilgreiningu á hugtak- inu alþýöutónlist? M.: „Frá minum bæjardyrum séö þá eru þetta tveir ólikir hlutir alþýöutónlist fyrri tíma og þaö sem kallaö er alþýöutónlist i dag — þaö má aö mörgu leyti segja aö alýöutónlist sem slik sé ekki til i dag. betta er allt oröiö einhvers- konar mötun og háö markaöslög- málum. 1 dag neytir alþýöa manna tónlistar, tónlist alþýö- unnar er framleidd af stórfyrir- tækjum og markaðurinn siöan mettaöur með likri framleiðslu. Alþýöutónlist fyrri ára — og þaö sem átt er viö meö orðinu — þaö var tónlist sem alþýöan framdi sjálf. baö komu upp trúbadúrar eöa músikantar og læröu þetta sem einskonar iön. Og þessi tón- list er upprunnin meö alþýöunni og gengur i gegnum þróun meöal fólksins, sbr. þaö, að öll þjóölög hafa gengið i gegnum ákaflega langa gerjun. bannig eru t.d. sömu þjóölögin til i mörgum lönd- um i mismunandi útsetningum og hafa verið aö breytast og lagfær- ast i gegnum marga manns- aldra.” „Bubbi er heilagur maður frá Austurlönd- um”. — Hvaöa tónlist og tóplistar- menn myndiröu þá telja aö stæöu alþýðunni næst i dag? „beir sem standa næst alþýöunni i dag þaö eru aö sjálf- sögöu þeir sem túika hiö raun- verulega lif alþýöunnar — eru ekki bara aö pesa upp á fólk hin- um borgaralega draum ( eöa borgaralegu martröö). Og þá kemur Bubbi auövitaö upp i hugann — Bubbi, hann er heilag- ur maöur frá Austurlöndum. Svona einn af vitringunum. Og hann túlkar ákaflega vel þaö sem mjög stór hluti af alþýöunni má ganga i gegnum, það sem hún þarf aö pæla I og feisa, og þetta á viö langtum fleiri en þá sem stunda fiskvinnslustörf. Svo má lika pæla i þvi hvers vegna Bubbi er ekki jafnvel enn vinsælli en hann er. Ástæðan fyrir þvi er sjálfsagt sú, að margir þeir sem tiheyra alþýöunni og lifa beint og óbeint I þeirri veröld sem Bubbi er aö taka fyrir, þeir vilja ekkert af þessari veröld vita — þeir vilja bara flýja yfir i hinn borgaralega draum, Diskó-draum, þig og mig og Bjögga og píurnar og allt, og vilja alls ekki vakna til meðvit- undar. baö er i raun nöturlegt aö hugsa til þess hve auðvelt er aö selja fólki drauma. baö er meö alþýðuna eins og alkóhólista.” — bú minntist á Bjögga, „popp- goðið” mikla. Nú sagöi sam- starfskona hans, hún Ragga blessunin, i nýlegu viötali, aö þaö þyrfti „töffaöar brussur i bransanum.” Er poppiö þá meiri „bransi” en listgrein eöa tján- ingarmiöill? „Töffaöar brussur i bransan- um” — þessi setning er nú fyrst og fremst til oröin ut af stuölun- um, sko. Já, þaö veröur aö meika eitthvaö „image” er þaö ekki?” — til aö salan gangi betur..? „Já, til aö salan gangi betur. baö má nátturulega segja þaö aö ef „veriö er aö meika einhverja góöa tónlist, þá er maður lika i þvi aö búa til Image. Sjáum t.d. Bubba — hann hefur helviti kraft- mikiö image.”„Sko, hver maður sem út I þetta fer, hann stendur aö sjálfsögöu frammi fyrir þeirri staöreynd, aö þetta er óskaplega mikill „bransi” — — sjóbisniss svo er það aftur annaö mál hvort hann fellur al- gjörlega fyrir þessum bransa — fellur fyrir markaöslögmálunum — eöa ekki. Og markaöslögmálin ganga ákaflega mikiö út á þaö aö seðja fólk á einhverju hættulausu — og gjarnan þá einhverri lág- kúru. En sá sem vill halda sinu eigin sjálfi og tjá einhverja raun- verulega veröld, hann akksepter- ar reyndar lika ákveöna hluti i þessum bransa. Hann gengst inn á þaö, aö ef rödd hans á aö heyr- ast, þá verður hann aö vera eitt- hvaö sem fólkið tekur eftir, verö- ur að hafa einhver mjög skýr sér- einkenni. En hann fellur bara ekki hundflatur fyrir markaönum né heldur á nokkurn hátt, fyrir þeim sem skipuleggja markaö- inn. Dæmi um mann, sem i sjálfu sér er mjög góöur tónlistarmaöur en sem falliö hefur hundflatur fyrir allri þessari lágkúru, þaö er Gunnar bóröarson. barna er maöur á feröinni sem gert hefur góöa hluti — og getur gert góöa hluti — en hann þarf auövitað aö afla sér tekna til aö lifa og af ein- hverjum ástæöum áræöir hann ekki aö koma fram meö góöa og gagnlega hluti heldur fer einungis yfir I draumaframleiöslu. „Gamlar, góðar lummur” t.d. þar sem ágætis lög eru tekin og útjöskuömeö mjög lágkúrulegum útsetningum.” — og svo nýjar, „glóövolgar” lummur.. „Já, „bú og ég”, og þetta allt saman..” — með miklum rjóma. „meö miklum rjóma, já — og ég held að sá rjómi sé jafnvel ekki ekta, heldur bara einhver froða, búin til úr dufti, gerviefni. betta er hörmulegra en tárum taki en ég held aö Gunnar sé lýsandi dæmi um mann sem kemur fram og fellur fyrir þessu, : „stundar afmáun eigin sjálfs, afrækir þarf- legra sisl’..” Að missa af lestinni. — Hvað finnst þér um þessa umræöu sem veriö hefur i bjóö- viljanum, aö undanförnu um „gúanótextageröina”? „Ég get nú eiginlega ekki kommenteraö þá umræöu nægi- lega vel þar sem ég hef svo laus- lega fylgst meö henni, en mér finnst þó áberandi hversu mikil remba er þá á ferðinni. Arni Björnsson, t.d. — þaö er skelfileg remba þará feröinni. Hann fyllist heilagri vandlætningu vegna þess aö hann telúr þetta beint og óbeint vera sitt einkasviö og honum finnst óviökomandi fólk vera að troöast inn á þaö á. ákitugum skóm. „Hann dettur auk þess I þá gildru aö velja sér tilvitnanir úr textum Bubba eftir eigin hentug- leika og kritisera hann siöan fyrir þau — en þetta er ekkert nema óheiöarleiki þar sem hann á aö vita þaö fyllilega aö þessir textar eiga alls ekki aö standa einir sér, þeir veröa aö heyrast meö músik- inni, þ.e. texti og tónlist eru ein heild og veröa aö skoöast I sam- hengi. Arni vill bara ekki viður- kenna þá staöreynd aö hann hefur misst af lestinni — hann er oröinn gamall maöur fyrir aldur fram og hefur hreinlega ekki veriö nógu lifandi til aö fylgjast meö þvi hvaö er aö er aö gerast I veröld- inni. Hann situr þess vegna bara einhvers staöar einn, lestin er löngu farin framhjá og svo er hann aö ergja sig yfir þvi aö hún hafi haldið áfram, hafi gleymt honum, hafi ekki bara stoppaö fyrir hann. Ég endurtek: tónlist Bubba veröur aö vera tekin sem ein heild og þetta á Arni aö vita. Hann er einungis aö slá sig til riddara þarna — enda er þaö ákaflega auövelt aö taka hvaö sem er úr samhengi og niöast á þvi.” „Ég ætla aldrei, aldrei, aldrei að..” — En hvaö viltu þá segja um þaö sem Jón Óskar skrifaöi um 1. des. bláðið þig sjálfan i bjóöviljanum fyrir skömmu:” .. hér á landi hefur Megas veriö ranglega kenndur viö alþýöulist, þegar hann fór aö syngja i stil erlendra poppara og skrumskæla Hallgrlm Pétursson viö mikla hrifningu menntamann akynslóöar Árna Björnssonar sem nú vill ekki gina við nýju flugunni.”? „Jón Ó’Skar? Nú, þaö er ákaflega einfalt — þaö fyll- ir aö sjálfsögöu sál mina unaði aö fá svona frikaöar ástarkveöjur frá oddvita beizkjudeildarinnar. En hins vegar, i framhaldi af þvi sem ég sagöi áöan um muninn á alþýöutónlistinni i dag og þvi sem hún var hér fyrr á timum, þá ættum viö kannski aö pæla aöeins meira i fyrirbærinu Bubbi. Bubbi byrjaöi nátturulega sem alþýöu- músikant og einn sins liös en hanr. tók ekki gamla hluti og fAgaöi þa’ til — hann notar engar gamlar, islenskar klisjur. Við verðum aö viöurkenna þaö að hann notaöi erlendar, innfluttar hugmyndir — alveg á sama hátt og ég hef gert. Viö þvi er ekkert aö segja. Enda- rimið er engilsaxneskt popp, þús- und ára gamalt. En Bubbi kemur alla vega meö raunsæjar og heiö- arlegar lýsingar á þeirri veröld sem viö honum blasir. baö mætti hins vegar kannski deila um teknist atriöi i textageröinni hjá honum, ég ætla a.m.k. ekki að fara aö halda þvi fram að Bubbi sé tæknilega fullkominn, enda liggja vankantarnir i augum uppi. En þaö er heldur alls ekki máliö! „Texti sem hefur eitthvert timabært og raunverulegt inni- hald er aö sjálfsögöu góöur og gagnlegur en hann veröur þeim mun betri og gagnlegri sem hann er tæknilega betur úr garöi gerö- ur. baö hefur alltaf sýnt sig i gegnum tiöina, aö þaö se vel er gert, þaö bitur grimmar en það sem siöur er gert og fleiri van- kantar á,” — eins og t.d. þegarfólkiö getur tekiö upp ákveönar ljóölinur, segjum úr verkum manna eins og Dylans, Guthries — Jaggers jafn- vel, og notaö þær sem slagorö. „Já, þaö er einmitt mjög gott þegar farandskáld og alþýöu- skáld geta látiö einhverjar ákveönar hugmyndir sem mjög eru á döfinni kristallast I verkum sinum á þann hátt aö alþýöa manna geti tekiö bita úr þeim upp sem slagorö og notaö þau sem vopn I baráttu sinni. baö er hins vegar kannski einfaldari og frumstæöari hlutur sem gerist þegar Bubbi riður yfir landiö og kemur i verbúöirnar og syngur: „Ég ætla aldrei, aldrei, aldrei aö vinna framar” i viökomandi frystihúsi eöa verbúö eöa hvaö sem þaö er — þá taka allir undir — þeir eru fullir af viöbjóöi út 1 þá vinnuaöstööu og þaö lif sem þeim býöst: Upplifun fólksins er alla vegana mögnuö og þaö býr aö hinu rafmagnaöa augnabliki. En þaö kostar nátturulega ekki mikiö aö segja:: „Ég ætla aldrei, aldrei, aldrei” aö gera hitt og þetta. baö er hægt aö benda á þessa hluti hjá Bubba sem sýna aö hann harmónerar meö alþýöunni og það er greinilegt aö tónlist hans höföar til alþýðunnar, a.m.k. til þeirra sem einhverja meövitund vilja hafa. En nú lýtur Bubbi aö sjálfsögöu markaöslögmálunum — hann gefur út plötur, þessar plötur geröar i stúdióum, þær eru unnar af tæknimönnum og unnar á mjög svipaðan hatt og sú vara sem notuð er til þess aö deyfa fólkið með svefnlyf. En hann kemur meö hugvekjur. bannig er þetta komið drjúgan spöl frá alþýöutónlist fyrri ára. bessir alþýöutónlistarmenn, sem svo kalla sig i' dag, þyrftu aö hafa það hugfast aö þeir eru bara eins og hverjir aörir iönaöarmenn og þeir verða aö pæla i þvi að hafa vöru sina af eins góöu kvaliteti og þeir mögulega geta. Og góöur iönaöarmaöur, hafi hann ein- hvern metnaö, athugar það, hvernigaörir hafa smiðaö hlutina á undan honum og tileinkar sér allskyns smellin trix og hitt og þeíta. Allt byggist þetta nii upp á trixum, ekki satt. Ef maður kann nóg af trixum og hefur frá ein- hverju aðsegja þá veröa hlutirnir góöir. Og maöur lærir einna helst á trixin i þessu fagi viö aö lesa þaö sem aörir hafa gert á undan manni. Maöur er nægilega útfrik- aður sjálfur og skilgetiö afkvæmi neysluþjóöfélagsins — á neikvæö- an hátt þó — og hafi maður eitt- hvaö um þaö aö segja verður þaö aö vera á einhvern smellin hátt þannig aö þaö biti.” „því deildarstjórinn er drottins barn einsog við” — En nú má eiginlega segja að þú hafir veriö eins konar undan- fari Bubba bæði hvaö texta og tónlist viö kemur — og þú varst jú einnig utangarösmaöur i þjóö- félaginu „bað er eitt þarna sem ég vil benda á — þaö aö ég hef alltaf byggt mjög mikiö á klisjum og tradisjónum og ég hef þaö mikiö pælt i alþýðukveöskaparheföinni og þessum islenska menningar- arfi, aö ég held aö ég sé svolitiö á annarri rás en Bubbi. Bubbi hefur meiri, og kannski skarplegri, upplifun af veröld alþýöunnar — ég hef aldrei upplifaö þetta al- mennilega. Ég hef einhvern veg- inn veriö svolitiö utanveltu — ég hef t.d. aldrei veriö farandverka- maöur — og þó aö ég hafi aö sjálf- sögöu unniö ýmis verkamanna- störf þá hef ég aldrei getaö filaö hjá mer neina rómantik I sam- bandi viö þaö, hvaö þetta væri allt saman agalegt fyrir aumingja fólkiö. Ég hef einhvemveginn pælt meira i einhverskonar ún- iversaliseringu á þessum próblemmum. T.d. þegar maöur er aö pæla i þessu ömurlega kerfi, þá segir maöur, aö: deildarstjór- inn — hann er eins viö hinir, hann er ekkert ööruvisi en ég. Ég er Spjallað við /j Magmís Þór Jónsson / ■ /, /? /v / r/w ' ¥ ekki meö nein skörp skil þannig, ekkert „Viö” og „beir”, ég vil frkar meina, svona erum viö all- ir. Bubbi er nátturulega með stifari árasir — hann greinir frá feitum kapitalista sem situr og reykir vindil, en þessi feiti kapitalisti — hann er bara vesa- lingur með sérþarfir og raunar mjög illa á sig kominn af neyslu- kapphlaupinu. Ætti eiginlega aö vera á hæli.” — en nú stundar þessi maður ákaflega neikvæöa iöju, iöju sem ekki er hægt aö réttlæta. „Já, hann hefur sem sagt veriö nægilega ófyrirleitinn viö aö traöka ofan á bökunum á ööru fólki til aö komast þangaö sem hann er. En þetta er nátturulega sjúklegt — enda hlýtur þaö kerfi sem býöur upp á svona sjálft aö vera sjúkt. Og þaö kallar fram svona eintök. En ég vil undirstrika þaö, aö Bubbi er heilagur maöur frá Austurlöndum”. Hvaö helduröu að sé að koma i poppinu — hvaö helduröu aö veröi mest áberandi á næstu árum? „Ég veit það ekki. Mér finnst svolitið lægö i þessu núna. betta reissvohátt fyrir svona 10—14 ár- um, náöi svo griöarlegum status og þó aö þaö séu margir mjög góöir hlutir aö gerast finnst mér samt enginn þeirra ná þessum status. Núer lika aðkomakreppa og þaö fer draumatónlistin alltaf i algleyming — þegar kreppir aö þá vill fólkiö jafnvel enn siöur horfasti augu viö sin eigin vanda- mál.” — og þá kemur diskóiö eins og bjargvættur af himni ofan.. „Akkúrat, eins og bjarghringur fyrir drukknandi mann. Og þetta er aö sjálfsögöu skelfing ömur- legt, en það táknar bara að allir góöir veröa aö halda sér vakandi og reyna — jafnvel þótt þaö skili engum árangri. baö heldur þó a.m.k. manni sjálfum á floti, þó ekki væri meira”. — Hvernig. væri þá aö venda kvæöi okkar i kross og taka þina texta svolitiö fyrir? Nú eru lika þessar þjóöfélagspælingar þinar mjög áberandi strax á fyrstu plötunni —t.d. i lögunum: „Vertu mér samferöa inni blómalandiö amma” og „ófelia”. þvi þú ert plastkona plastlíf þitt ris & þaö hnígur & plastlikami þinn til reiöu er plastmönnum búinn & piastgleöi þin & piastsorg er þér raunveruleg en plastveröld þin hún er allri fullnægju rúin (úr „Ofeliu”) „Já, þessi einstaklingur sem þama er á feröinni er mjög gervi- legur greinilega, mjög trúlega vill þessi manneskja ekki feisa sitt raunverulega lif — enda lend- irhún i krisu sem hún kann engin ráö við og að lokum flýtur hún byrt með straumnum („horfandi i himininn & hugsandi flýtur á meöan ekki sekkur”) ). Ég hef greinilega veriö i fýlu út I ein- hverjapersónusem heitir ófelia I þessu tilviki og hef sýnilegaenga samúö meö henni — og þó, liklega hef ég haft einhverja samúö með benni, þó þaö sé ekki aö sjá á text- anum.” — en þaö ersamt hægt aö heim- færa þetta upp á kerfið eins og þaö er í dag. „Já, þetta kemur nátturulega inn i pælinguna i kerfinu eins oe þaö er I dag, þaö er aö sjálfsögöu ákaflega „plasthvetjandi”, hvet- ur fólk til hálfgeröar gervi- mennsku. baö er ákaflega mikiö striö aö vera maöur sjálfur — aö vera ekta — I þessu þjóöfélagi. baö er ekki hægt aö fá neitt nema gerviefni I dag i raun og veru. En kannski er maöur lika aö ávarpa sjálfan sig i svona samsetningi — heröa sig upp gegn grunuöum veikleikum. baö hafa náttúru- lega allir einhverja veikleika og maöur veröur þá aö vera þeim mun grimmari ef maöur ætlar aö ráöast á sjálfan sig. baö stendur manni svo nærri, ekki satt?” Mér finnst vera eftirtektar- veröur munur á ,,Jóni Sigurös- syni og sjálfstæöisbaráttu íslend- inga” af fyrstu plötunni og ,,Jóni Sivertsen og sjálfstæöisbarningi Isfirskra” af „Bleikum Náttkjól- um” sem út kemur fimm árum siöar — samt eru þetta aö miklu leyti sama kvæöiö. Fannst þér þjóöfélagiöbreytast mikiðá þess- um tima?

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.