Eintak - 01.05.1970, Qupperneq 4

Eintak - 01.05.1970, Qupperneq 4
UMSÓKNARFRESTUR Umsókn um skólavist skal senda fyrir ágústlok ár hvert til skrifstofu skólans í Skipholti 1, Reykjavík. Umsókn um námskeið skal senda fyrir 20. september ár hvert. Umsóknareyðublöð fást í bókabúðum Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg og Vesturveri, og á skrifstofu skólans. Kennsla hefst 1. október og lýkur 15. maí. Lokapróf standa þó til 1. júní. Námskeið hefjast 1. október og lýkur 30. apríl. Dagleg kennsla er frá kl. 9—12 og 13.30—16, og 17—19 eftir deildum, nema laugardaga, þá er kennt til kl. 12. SKÓLAGJÖLD Skólagjald í forskóla, myndlistardeild og listiðnadeildum er 3.000,00 kr., en i kennaradeildum 800,00 kr. Efnis- og áhaldagjald er 3.000,00 fyrir alla nemendur dagdeilda. DEILDIR SKÓLANS I skólanum eru þessar deildir: A. Forskóli. B. Myndlistadeildir. C. Kennaradeildir. D. Listiðnadeildir. E. Bóknám. F. Námskeið. FORSKÓLINN Tilgangur forskólans er að veita nemendum alhliða undirbúnings- menntun í almennum myndlistum. Námstími í forskóla er tvö ár. Á fyrra ári er í upphafi lögð áherzla á teiknun frumforma og beitt er um leið mismunandi teikniaðferðum. Síðan eru nemendur látnir greina þessi frumform í ríki náttúrunnar og þau teiknuð með mismunandi hætti. Teiknað er eftir mannslíkamanum. Nem- endur fá einnig huglæg verkefni. Kennd eru grundvallaratriði myndskipunar og litfræði. Á öðru ári er haldið fram sem horfir, en þessum greinum bætt við: Hraðteiknun, lit- og formfræði, myndmótun, anatomíu, grafík, letrun og fjarvíddarteiknun. MYNDLISTADEILD FRJÁLS MYNDLIST I þessari deild er myndlistarnámið eflt og dýpkað, ný efni notuð og ýmis konar tilraunir gerðar með þau. Málað er eftir upp- stillingum, landslagi, húsum og mannslíkamanum. Frjáls mynd- skipun iðkuð og verkefni gefin með hliðsjón af þvf að örva sjálfstæð vinnubrögð. Þá er myndgreining á verkum eldri og yngri meistara í myndlistum fastur liður í þessari deild. Þessi deild myndar einnig kjarnann ( ýmsum sérnámsdeildum. Nýstofnað er listaháskólastig ( frjálsri myndlist fyrir þá sem lokið hafa 4 ára námi við skólann.

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/355

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.