Iðnneminn - 20.12.1952, Blaðsíða 9
V.
Alþjóðleg undirbúnings-
nefnd undir alþjóðamót
til varnar réttindum
æskulýðsins
Eins og kunnugt er, bar hollenzk-
ur æskulýður, í júlí 1952, fram til-
lögu um að boða til alþjóðamóts,
sem hefði þann tilgang að verja
réttindi æskulýðsins. Tillögu þess-
ari var tekið með miklum áhuga af
ungu fólki víðsvegar um heim. —
Til þess að annast undirbúning
undir mót þetta kom „Alþjóðleg
undirbúningsnefnd“ saman í Kaup-
mannahöfn dagana 23.-—24. júlí
1952.
Ráðstefnu þessa sóttu fulltrúar
æskulýðs- og nemendasambanda,
verkalýðs- og iðnaðarmannafélaga
og þjóðfélagssamtaka svo og menn,
sem framarlega standa á sviði vís-
inda, bókmennta, lista og í þjóðfé-
lagslífi 23 landa.
Undirbúningsnefndin heyrði þar
skýrslu John C. Melchior Dekkers
pr., formanns hollenzku undirbún-
ingsnefndarinnar um „Boðun til
alþjóðamóts til varnar réttindum
æskulýðsins“.
Akveðið var að boða til slíks al-
þjóðamóts, sem skyldi vera um
miðjan febrúar 1953 í Wien (Aust-
urríki).
Loks tók undirbúningsnefndin
saman ávarp til æskulýðs allra
landa. Avarpið er einnig stutt af
þeim meðlimum nefndarinnar sem
af ýmsurn ástæðum gátu ekki tek-
ið þátt í ráðstefnunni.
Mynd þessi sýnir kvikmyndatökuvél
af einföldustu gerð.
Ritstjórn Iðnnemans sneri sér til Raf-
virkjanemafélagsins og óskaði eftir, að fé-
lagið annaðist um tækniþáttinn að þessu
sinni, og væri liann tileinkaður rafvirkj-
um og öðrum er áhuga hefðu á rafmagns-
fræðinni. En sökum þess, hve fyrirvari
var lítill, verður þátturinn ekki eins fjöl-
breyttur og ætlast er til í framtíðinni.
Ankerið er trommluanker með hliðteng-
ingu og hefur 150 vindinga.
Finn mótstöðu R og straumstyrkinn I. í.
a) Ankeri
b) kompoundvafi
c) shuntvafi
d) Finn Eliktromótorriska kraftinn EMK
e) Kraftlínufjöldann (þ í hverjum pól.
6 póla kompounddynamo með löngum
shunt gefur af sér, með 300 o/min. 200
volt og 400 Amper. I ankerinu tapast 3%,
í kompoundvöfunum 1%, og í shuntvöfun-
um 3% af því, sem dynamorinn gefur af
sér. Töp við busta reiknast ekki með.
Ilvaða möguleikar eru til þess að breyta
snúningsátt á:
a) seriurafal
b) shuntrafal
c) kompoundrafal
d) hver munur er á með- og mótkomp-
ounderuðum kompoundrafal.
Svör birtast í næsta hefti.
Háskólabyggingin nýja í Moskvu.
IÐNNEMINN
9