Iðnneminn - 20.12.1952, Page 12
svo, að þetta sé þvæla og lygi,
þá vil ég tvímælalaust benda
þessum mönnum á að athuga
betur þá pilta og kynna sér bet-
ur af hvaða sauðahúsi þeir eru.
Laun nema á fyrsta ári náms-
ins, t. d. í járnsmíði, eru því
samkvæmt vísitölunni 150: kr.
203,04 á viku, sem gerir í árslaun
kr. 10.558.08.
Ég tek hér yfirlit yfir tekjur
og gjöld meistara af einum nema
í áðurtaldri iðn, og má af því
vera ljóst, að barlómur og kúg-
un meistaranna er aðeins venju-
legt væl þeirra manntegunda,
sem gengur með þann leiðinda
sjúkleika, að vera dauðhræddir
um að missa feitan bita úr
barmafullum aski sínum.
1. námsár.
Kostnaður vegna nemanda:
1. Laungr. í peningum .......... 10.558.08
2. Alm.tryggingasjóðsgjald .... 518.00
3. Sjiikrasamlagsgjakl ............ 350.00
4. Skólagjald ..................... 700.00
5. Skólabækur o. fl. ca............ 400.00
6. Slysatryggingagjald ............ 120.00
Söluverð seldrar vinnu miðað við að nem-
andinn vinni 36 vikur á ári .... 35.078.40
Gjöld meistrara .......... 12.646.08
Hreinar tekjur meistara 22.432.32
Hér má geta þess til saman-
burðar, að nemandi fær hvergi
fæði og húsnæði undir 11—12
hundruð krónum á mánuði.
Fyrir hvaða peninga á iðn-
neminn að fá klæðnað allan, sem
hann þarf með, sem er einn
stærsti liður í gjöldum nemans,
þjónustu alla og auk þess pen-
inga fyrir þriggja mánaða fæði
og húsnæði.
Iðnnemanum er því algjörlega
bannað að veita sér þá ánægju
að fara í kvikmyndahús, sem er
lágmark þess, er þjóðfélagið get-
ur boðið hverjum þegn þess upp
á. Þetta gildir alveg yfir þrjú
fyrstu ár námsins. Allar skemmt
anir, sem kosta einhvern pen-
ing, getur hann því alls ekki
veitt sér, nema því aðeins að
hann stofni sér í stórar skuldir,
sem tekur hann fleiri mánuði
að vinna upp, nema því aðeins
að neminn hafi verið það hepp-
inn að hafa verið búinn að þéna
30—40 þúsund krónur áður en
hann hóf námið.
Þanig græðir þá meistarinn á
nema sínum kr. 22.432.32 aðeins
á fyrsta ári, þegar neminn berst
í bökkum með að hafa í sig og
á, með því að eyða því fé, sem
hann hefur lagt fyrir áður en
hann fór að hefja iðnnám. Svo
er allt gert til þess að lyfta und-
ir þennan þrautpínda atvinnu-
rekstur meistarans og annara
atvinnurekenda, en það virðist
alveg sama hvernig kjör þeirra
manna eru, sem við iðnaðinn
vinna. Það er allt í lagi þó að
atvinnurekandinn velti sér í
tugþúsundum króna, veiti sér
alls konar óhóf lífs og unaðar og
komi hvergi nálægt neinni erf-
iðisvinnu, mega nemarnir þræla
og drepast úr sulti eða sultar-
kjörum.
Hvað getur þetta gengið langt?
Hvenær fá þær stéttir landsins,
sem þræla mest fyrir brauði
sínu, að lifa við mannsæmandi
kjör?
Hver verður úrlausnin á þess-
um málum? Ef hún fæst ekki
með góðu, þá verður að fram-
kvæma hana á annan hátt.
Þetta getur alls ekki gengið leng-
ur, að valdhafar þessa lands
misbeiti því valdi, sem þeim hef-
ur verið trúað fyrir.
2. námsár.
Kostnaður vegna nemanda kr. 13.942.72.
Söluverð seldrar vlnnu ... 35.078.40
Gjöld .................. 13.942.72
Hreinartekjur meistara kr. 21.135.68
3. námsár.
Kostnaður vegna nemanda kr. 18.960.96.
Söluverð seldrar vinnu ... 40.953.60
Gjöld ' ................. 18.960.96
Hreinar tekjur kr. 2L992.64
12
Ð N N E IVI I N N