Iðnneminn


Iðnneminn - 20.12.1952, Side 15

Iðnneminn - 20.12.1952, Side 15
Dýrtíðaruppbót til iðnnema Samkvæmt heimild í 14. gr. laga um iðnfræðslu nr. 46, 25. maí 1949 og reglugerð útg. 12. júní 1952, eru hér með sett eftir- farandi ákvæði um lágmarks- kaup iðnnema: 1. Kaup nemenda skal vera viku- eða mánaðarkaup, mið- að við fulla vinnuviku, og er óheimilt að skerða það, þó að verkefni skorti hjá meistara. 2. Meistara er skylt að veita nemanda frí frá störfum tvær stundir á dag þann tíma, sem hann sækir iðnskóla, ef um kvöldskóla er að ræða, en 8— 9 vikur á ári, sæki nemandi dagskóla, og skal í báðum til- fellum greiða nemanda fullt kaup meðan skólavist stendur yfir. Þá skal meistari veita nemanda tveggja vikna sumarleyfi árlega með fullu kaupi. Meistari greiði allan kostnað, er leiðir af iðnskóla- námi nemanda, svo og trygg- iv Ilattur frá mér, fer yður betur, ungfrú! inga- og sjúkrasamlagsgjöld hans. 3. Kaupgreiðslur til nemanda miðist við hundraðshluta af grunnkaupi sveina í sömu iðngrein á hverjum stað og séu ekki lægri en: a. Nemandi á fjögurra ára námssamningi: 1. ár 25% 2. — 30% 3. — 40% 4. — 45% b. Nemandi á þriggja ára námssamningi: 1. ár 25% 2. — 30% 3. — 45% Á kaup nemanda greiðist full verðlagsuppbót samkvæmt vísi- tölu kauplagsnefndar. Samningar, sem vera kunna milli félaga sveina og meistara, og fela í sér lakari kjör iðnnem- um til handa en ákvæði þessi, eru ógildir. Ofangreind ákvæði taka gildi frá birtingu auglýsingar þessarar og ná til allra námssamninga, sem þá verður ólokið. Reykjavík, 25. okt. 1952. Iðnfræðsluráð. Það er full ástæða til þess, að iðnnemar geri sér dálitla grein fyrir því, hve erfiða og harða baráttu það hefur tekið iðn- nemasamtökin að fá þessari kröfu framgengt. Kröfuna um fulla vísitöluuppbót á kaup allra iönnema. Þann 21. maí 1951 undirrituðu verkalýðsfélögin, sem þá höfðu sagt upp samningum við at- vinnurekendur, samkomulag sem Hamingjusöm œska. fól það í sér, að á grunnlaun, sem eigi væru hærri en kr. 9.24 á klst., yrði greidd full vísi- töluuppbót, sem síðan tæki breytingum á þriggja mánaða fresti, ef vísitalan breyttist. Þeir, sem hefðu hærri grunn- laun en kr. 9.24 á klst., fengju ekki fulla vísitöluuppbót, heldur sömu krónutölu og greidd væri á grunnlaun, 9,24. Þar sem flestir iðnnemar hafa mikið lægri grunnlaun á klst. heldur en kr. 9.24, þá töldu iðn- nemasamtökin að iðnnemar ættu siðferðislega kröfu á því, að fá greidda fulla vísitöluupp- bót á laun sín, en ekki hluta af vísitölu sveinanna, sem ekki fengju fulla vísitölugreiðslu á laun sín. Þetta var þegar viður- kennt af öllum réttsýnum mönn- IÐNNEMiNN 15

x

Iðnneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.