Iðnneminn


Iðnneminn - 20.12.1952, Blaðsíða 16

Iðnneminn - 20.12.1952, Blaðsíða 16
Duglegur iðnnemi um. Meistarar. mótmæltu og töldu iðnnemum engan rétt bera til slíkra hluta. Samkvæmt II. lið samkomu- lags verkalýðsfélaganna við at- vinnurekendur átti Alþýðusam- bandið og sambönd atvinnurek- enda hinsvegar að tilnefna sinn manninn hvor í nefnd til þess að rannsaka og úrskurða ágrein- ingsatriði er upp kynnu að koma út af skilningi á samn- ingnum. Stjórn I.N.S.Í. leitaði því til þessarar nefndar um álit hennar á því, hvort iðnnemum bæri full vísitölugreiðsla á laun sín. Nefndin komst ekki að sam- komulagi, fulltrúi atvinnurek- endanna lýsti sig andvígan þessu. Þá sneri stjórn Iðnnema- sambandsins sér til Iðnfræðslu- ráðs og fór þess á leit, að það gæfi úrskurð sinn um það, hvort reikna beri lágmarkslaun iðn- nema af grunnkaupi sveina eða eftir að vísitöluuppbót hefur verið lögð á það. Það er komið á annað ár síð- an þessi krafa var fyrst borin fram við Iðnfræðsluráð. Síðan hefur hún verið marg ítrekuð og gerðar ályktanir í því sambandi. Aldrei fékkst úrskurður Iðn- fræðsluráðs. Fjölmörg bréf og ályktanir hafa verið send Iðn- fræðsluráði þessu til áréttingar og nú síðast í byrjun október. Þá loksins fæst úrskurðurinn: gengið er að kröfum iðnnema- samtakanna um fulla vísitölu- greiðslu. Eftir að Iðnfræðsluráð hafði haft málið til meðferðar í meira en heilt ár, þá var loks hægt að gefa út ofanritaða til- kynningu, en hún þýðir kaup- hækkun, sem hér segir, samkv. útreikningi járniðnaðarnema á launum sínum miðað við vísi- töluna 150. Tölurnar í svigum er kaup járniðnaðarnema eins Framh. á bls. 25. Á þeim tíma, þegar Kína var 'ernumið af Japönum og síðar undir stjórn Kuomin- tang, kom ekki fyrir, að ungir og áhugasam- ir verkamenn gætu orðið forstjórar verk- stæða eða verksmiðja. I dag, aftur á móti, eru þar margir dugandi æskumenn orðnir stjórnendur stórra verkstæða. I Port-Arthur-Dairen járnbrautarverk- smiðjunni er t. d. stjórnandi einnar deild- ar smiðjunnar aðeins 21 árs að aldri. Þessi ungi piltur, Chang Lai Tsai að nafni hefur, þegar þetta er ritað, haft starfið með höndum í níu mánuði og leyst það af hendi með hinni mestu prýði. Chang Lai Tsai var af fátækum for- eldrum kominn. Sem barn óx hann upp í fátækt með móður sinni og afa. Þegar hann var þrettán ára gamall, hóf hann iðnnám í verksmiðju. Þá tíðkaðist það, að iðnneminn væri hafður sem snúninga- strákur, því eftir fjögurra ára iðnnám kunni Chang Lai Tsai jafnvel ekki að fara með þjöl! En eftir byltinguna varð' mikil breyting á högum piltsins. I október 1949 var hann skipaður forstjóri viðgerða-deildar verksmiðjunnar. Um svipað leyti tóku starfsmenn verksmiðjunnar að miðla iðnnemunum af kunnáttu sinni og reynslu. Chang Lai Tsai lagði m ög hart að sér við vinnuna. Hvar sem har.n starfaði, hafði hann jafnan með sér vasabók, þar sem hann skráði hjá sér allskonar formúlur, tækniorð, efnaformúl- ur o. s. frv. Jaínan í frítíma sínum tók hann upp vasabókina sína og las hana aftur og aftur og velti því fyrir sér, sem í hana var skráð. A þennan hátt tókst Chang á örskömmum tíma ag afla sér geysivíðtækrar þekkingar. Það hefur tekizt á nokkrum árum að leysa mörg af hinum erfiðustu vandamál- um verksmiðjunnar, tækni hennar hefur margfaldazt og framleiðslan aukizt. Er Chang var spurður að því, hverju þetta væri að þakka, svaraði hann: „Við eig- um verksmiðjum og vélarnar, þess vegna keppumst við öll við að læra og endur- bæta. Verksmiðjan er eign okkar allra.“ Við varðeliinn. 16 IÐNNEMINN

x

Iðnneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.