Iðnneminn


Iðnneminn - 20.12.1952, Qupperneq 17

Iðnneminn - 20.12.1952, Qupperneq 17
ÞÓRKELL G. BJÖRGVINSSON Iðnfræðslan í Áður en Búlgaría frelsaðist undan oki fasismans, voru allir iðnnemar án efnahagslegra og pólitískra réttinda. Til þess að geta numið einhverja iðn, voru þeir neyddir til þess að vinna hjá iðnmeistara í tvö til þrjú ár og höfðu þá fyrsta og annað ár- ið, ýmist engin eða mjög smá- vægileg laun. Hjá iðnmeisturun- um, sem venjulegast stjórnuðu fyrirtækinu og voru jafnvel eig- endur þeirra, komu nemend- urnir sjaldnast nálægt sínu raunverulega námi, því þeir voru settir í allsskonar vinnu, svo sem vikadrengir heimilisins o. s. frv. Þau lög, sem þá voru í gildi um ábyrgð þjóðfélagsins, veittu iðnnemunum engin rétt- indi. Eftir 9. september 1944, þann dag sem Búlgaría frelsaðist, með hjálp Rauða hersins, undan oki fasismans, gjörbreyttist á- standið í landinu. Árið 1947 var allur iðnaður landsins þjóðnýtt- ur og núna einig allir iðnskólar. Flutningatæki og verksmiðjur eru í eigu ríkisins. Smá iðnfyrir- tæki eru í samvinnufélögum. Iðnnemar í nútíma merkingu eru þar ekki lengur til, heldur nemendur í framleiðslunni og ungir verkamenn. Þeir vinna í verksmiðjunum, gróðrarstöðv- um, byggingariðnaði, samgöng- um og hjá samvinnufélögum iðnaðarmanna. Geysilegur fjöldi ungra verka- manna er bundinn við skóla, námskeið við framleiðsluna og tæknilega sérmenntun. Skólarnir eru stofnaðir í stærstu verksmiðjunum og á samyrkjubúunum. Ungir dreng- ir og stúlkur, sem hafa lokið barnaskólanámi, sem er sjö ár, geta gerzt nemendur á skólum þessum. Eru þau á fullum laun- um hjá ríkinu, hafa frítt fæði, húsnæði, klæðnað og námið er ókeypis .Eftir tveggja ára nám á þessum skólum hefja þessir ungu verkamenn vinnu hjá einhverju fyrirtæki, sem góðir og vel menntaðir starfsmenn. Verksmiðju-námskeið, sem haldin eru í stærstu verksmiðj- unum og gróðrarstöðvunum, standa venjulega í 6—10 mán- uði og eru nemendurnir á full- um launum hjá ríkinu. Eftir 9. september 1944 opn- aði alþýðustjórnin í fyrsta skipti tæknikennslu í hinum margvís- legu sérgreinum, þar sem ungir verkamenn eiga auðvelt með að stunda nám að loknum vinnu- degi og aflað sér aukinnar menntunar. Þeir æskumenn, sem stunda nám á slíkum kvöldskól- um, mega hætta vinnu einni stundu fyrr á kvöldin til þess að eiga hægara með að undirbúa sig undir kennslustundina, en fá þó engu að síður greiddan full- an 8 stunda vinnudag. — Þús- undir æskumanna stunda nám í þessum kvöldskólum. Jafnframt kvöldskólunum hafa verið stofnaðir bréfaskólar fyrir iðnaðarmenn. Og auk hins árlega sumarleyfis fá nemend- Búlgaríu urnir frí til þess að undirbúa prófið. Sérstakir skólar hafa verið opnaðir fyrir æskumenn, sem eru dugandi og skara framúr við framleiðsluna. Námið á þessum skólum tekur tvö ár og hundruð ungra verkamanna, sem lokið hafa námi við framhaldsskóla, geta undirbúið sig í þessum skólum, til þess að hefja nám í menntaskólum og háskólum. Fá þeir einnig fjárhagslega aðstoð hjá ríkinu. Þúsundir nemenda sem lokið hafa námi við slíka skóla, hefja nám í hinum ýmsu háskóladeildum við verkfræði, hagfræði, o. s. frv. Alþýðustjórnin ver ekki ein- ungis stórfé til kennslu og menntunar verkalýðsins heldur einnig til þess að bæta lífskjör hans. Sérstök heimili og mat- stofur ungra verkamanna hafa verið reist við öll stærri iðnaðar- fyrirtæki. Stjórnarskrá alþýðulýðveldis- ins búlgarska tryggir þegnunum rétt til hvíldar í ákveðinn tíma. Fimm hvíldarheimili, bæði til sjávar og í fjallahéruðum lands- ins, hafa verið reist handa æsku- lýðnum til þess að dvelja á í sumarleyfi sínu. Þúsundir æsku- manna dvelja árlega í sumar- leyfi sínu á slíkum hvíldarheim- ilum. Ásamt ákvæðisvinnu og verð- launakerfi fá ungir verkamenn laun sín í hlutfalli við magn og gæði framleiðslunnar á sama hátt og aðrir verkamenn. Því stjórnarskráin tryggir alþýðunni sömu laun fyrir sömu vinnu. idnneminn 17

x

Iðnneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.