Iðnneminn - 20.12.1952, Page 18
HEIMUR ÆSKUNNAR
œc^r
1) Þrír menn fóru á veitingahús
og fengu sér þar hressingu og kost-
aði það 10 kr. á mann, eða samtals
30 kr. Þegar þjónninn tók við
greiðslunni, sá gestgjafinn þjóninn
taka 5 kr. of mikið af mönnunum,
því veitingarnar áttu að kosta 25
kr. Gestgjafinn bað þjóninn að
að skila aftur 5 kallinum, sem hann
hafði snuðað mennina um, en
þjónninn, sem ekki var mjög ráð-
vandur skilaði aðeins 3 kr., eða 1
kr. til hvers manns. Eftir þessu að
dæma hafa mennirnir borgað 9 kr.
hver, þrisvar 9 eru 27 -þ 2 kr. sem
þjónninn stal gerir samstals 29 kr.
En hvernig stendur á því að eina
krónu vantar?
2) Tveir rónar voru staddir í
Ilafnarstræti, báðu þeir mann
nokkum, sem átti leið þarna um
að gefa sér nokkrar sígarettur.
gerði maðurinn það. — Þegar mað-
urinn var farinn fóru rónarnir að
metast um það að þeir hefðu ekki
fengið jafnmargar sígarettur. Bið-
ur annar róninn hinn að gefa sér
eina sígarettu, því þá ættu þeir
jafnmargar hvor. — „Ne-ei, gef þú
mér heldur eina, þá á ég helmingi
fleiri en þú. Hvað fengu rónarnir
margar sígarettur hvor?
3) Kerling nokkur lagði af stað
heiman frá sér með epli í körfu,
sem hún ætlaði að selja. — I fyrsta
húsinu, sem hún kom í seldi hún
helminginn af eplunum og hálfu
epli betur. — I öðru húsinu, sem
hún kom í seldi hún helminginn
af eplunum, sem þá voru eftir og
hálfu epli betur. — í þriðja húsinu
seldi hún helminginn af eplunum,
sem þá voru eftir og hálfu epli
betur. — I fjórða húsinu seldi hún
helminginn, sem þá var eftir, og þá
var eftir 1 epli. Hvað fór hún með
mörg epli að heiman.
4) Hve mikið er hálfur sinnum
hálfur.
5 mínútna spurningar
1. Hvaða tala er 12 minni en fjórum
sinnum hún sjálf?
2. Julis Cæsar var 55 ára árið 55 f. Kr.
Hve gamali var hann árið 49 e. Kr.?
3. Ef ég deili tölunni sem ég hugsa mér
með 5 og legg við 3, þá fæ út 7. Hver er
talan?
4. Hver er þriðja stærsta jafna tala fyrir
neðan 19?
5. Hverjir af þessum stöðum eru á
landakorti: Bohemia, Ruritania, Erurkon,
Valhalla, Timbuktu?
6. Hvað er 5 minna en 4 sinnum helm-
ingurinn af 10?
7. A gengur hálfan km á 4i/g mlnútu. B
gengur % úr km. á 7 mínútum. Hvor
gengur hraðar?
8. 3 sinnum viss tala er helmingurinn
af 6 sinnum 8. Hver er talan?
9. Hvað eru 10% af 2 sinnum 10 sinn-
um 17?
10. Bíll fer 24 km. á klst. Hvað fer hann
þá marga km. á 25 mínútum?
'01 '01
'01 '6 ’8 '8 'V 'L 'SI '9 'nat[nqiuij_ ‘Eiuraqog
— T n 'f 'oz ■£ 'i9 'm
! Iðnnemar og iðnaðarmenn.
í Athugið að láta skrif-
j stofu okkar vita, ef þið fá- j
| ið ekki blaðið sent skilvís-
| lega, eða ef þið hafið flutt |
! á árinu, þá sendið skrif- !
! stofunni heimilisfang ykk- I
í ar. — I
j Iðnnemasamband íslands,
Hverfisgötu 21, Rvík.
Forseti Alþjóða-
sambands lýS-
rœðissinnaðrar
æsku.
Um allan heim berst æskan fyrir rétti
sínum. I þessu skyni er efnt til æskulýðs-
ráðstefna, æskulýðsmóta og einstakir dag-
ar ársins eru tileinkaðir þessari baráttu
æskunar.
15. febrúar verður haldin í Vín í Aust-
urríki alþjóðleg ráðstefna til varnar rétt-
indum æskunnar
21. febrúar er alþjóðlegur baráttudagur
æskunnar gegn nýlendukúgun.
21.—28. marz er hátíðisvika æskulýðsins
um allan heim.
14. aprtl er tileinkaður spánskri æsku í
baráttu hennar gegn Franco.
10. nóvember er haldinn hátíðlegur sem
stofndagur Alþjóðasambands lýðræðis-
sinnaðrar æsku.
Enrico Berlinguer
Unnið að skipulagningu.
18
IÐNNEMINN