Iðnneminn


Iðnneminn - 20.12.1952, Síða 24

Iðnneminn - 20.12.1952, Síða 24
Verkfnzð'.ngar gera ácetlanirnar. nýrrar atlögu, en sagði semings- lega fremur við sjálfan sig en hana: — Það gerir svo sem ekkert. Guð mun verða okkur náðugur. Þegar snáðinn er orðinn stór, mun hann verða okkur styrk stoð. En konan þagði stöðugt, og undrun mannsins jókst. Hann sá, að hægur titringur fór um augna- brúnir hennar og munnvik, og hann vissi, að hann hafði gert hana reiða á ný. Hann skildi ekki, að hún sem kona og móðir var djúpt snortin af hinum mesta leyndar- dómi, sem hún þekkti, og hann drap þessar tilfinningar hennar með því að fitja upp á hversdags- fjasi einmitt á þessari stundu. Hún gat ekki gefið tilfinningum sínum viðeigandi búning. Hin and- lega sjónvídd hennar var of lítil, mál hennar of orðsnautt, hugsun hennar of óskýr. Hún gat aðeins mótað tilfinningar sínar í andlits- svipnum. — Nei, nei, þér skjátlast. Hann á ekki að draga þungar járnplötur í verksmiðjunni, þegar hann verð- ur tólf ára, eins og þú — sagði hvin sem leiðslu bundin, og augu henn- ar hvörfluðu milli barnsins og þak- sperrunnar. — Hann skal ekki verða verksmiðjuþræll alla sína ævi, eins og þú. Areiðanlega — al- veg áreiðanlega læt ég hann halda áfram námi; þó að ég yrði að ganga um og betla til þess, þá skal hann ganga mcnntaveginn. Og þegar hann hefur lokið nárni, á hann ekki að verða verkamaður, heldur em- bættismaður, umfram allt.... ef til vill bókhaldari. .. . Hún vissi ekki, hvað „bókhald- ari“ var. I vitund hennar stóð þetta orð í óljósum tengslum við virðulegan mann, flott með vindil í munninum eins og verksmiðju- stjórinn, sem maður hennar hafði sagt henni frá. — Þannig á dreng- urinn að verða, hugsaði hún með ákveðnum, fjandsamlegum tilfinn- ingum gagnvart bónda sínum. Lengra náðu draumar hennar ekki. Hún vissi, að innan hins dökka hrings, sem umlukti þau öll, voru menn misjafnlega hátt settir. Hún hafði enga hugmynd um, að þessi mörk eru mannasetningar einar. Hún áræddi ekki einu sinni í draumum sínum að fara yfir þau mörk, sem sjálf örlögin virtust hafa sett. Hana dreymdi aðeins um betri stöðu handa barninu sínu innan hringsins. — Ég ætla ekki að standa í nein- um illdeilum vegna barnsins, hugs- aði hún kænskuleg á svip. — Sjá- um, hvað setur. Við munum ráða fram úr því með guðs hjálp. Hún greip þykka og hnyklótta hönd mannsins og bar hana að að hinu litla og veikbyggða höfði barnsins. Svona dæmalaus, kvenleg við- kvæmni myndi við venjulegar að- stæður ekki hafa komið til greina. Aðeins hið óvenjulega við þessa stund réttlætti slíka framkomu. — Sjáðu, hvað litli snáðinn okk- ar er fallegur, sagði hún og leit frá sofandi barninu á manninn. Hann sá vel við þessu einfeldningslega kænskubragði hennar, en áræddi ekki að snúast gegn henni aftur í bili. Fölt andlit konunnar geislaði frá sér sigurljóma. En maðurinn hugsaði með beiskju: Tvö börn á tveimur ár- um. Og ef þau fæddust nú enn þá fleiri. Það munu verða strangir dagar, áður en þau verða öll komin til manns. Og að konan skuli ekki einu sinni skilja það... . Hann kyssti móðurina og barnið klunnalega. Það bar svo sjaldan við í lífi þeirra hjónanna, að þau kysstust. Það virtist of mikill munaður. Síðan endurtók hann þrumandi röddu: — Styrk stoð verður drengurinn að verða okkur, þegar hann er orð- inn stór, reglulega styrk stoð. . . . Einar Brayi islenzkaði. Dýrtíðaruppbót iðnnema Framh. af bls. 16. og það var, áður en tilkynning- in kom út: 1. námsár kr. 216.88 (202,91) 2. — — 260,25 (243,49) 3. — — 347,00 (324,69) 4. — — 390,38 (365,40) Það sér hver maður á auga- bragði, hve geysilegt rán þarna er haft í frammi, þennan tíma. Þessvegna verður mörgum spurn: Hversvegna mátti ekki verða við þessum sjálfsögðu kröfum iðnnemanna strax 1951? Iðnnemar áttu alveg eins rétt á þvi að fá þessa vísitöluuppbót í fyrra, eins og þeir eiga rétt á að fá hana nú. Með þessu hefur Iðnfrœðslu- ráð gefið iðnmeisturum tœkifæri til að rœna iðnnema þeirri upp- bót, sem þeir áttu siðferðislega kröfu á að fá strax árið 1951. Ilugmyndin er góð, en nokkuð þreytandi. 24 IÐNNEMINN

x

Iðnneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.