Iðnneminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Iðnneminn - 01.04.1953, Qupperneq 5

Iðnneminn - 01.04.1953, Qupperneq 5
GARÐAR JULIUSSON: AÐBÚNAÐUR Til hvers eru iðnnemar alltaf að fara fram á betri kjör? Hafa þeir ekki nógu góð kjör? Svona spyrja margir, sem ekki eru nógu kunn- ugir þessum málum. Ef þetta sama fólk vissi, hvern- ig að stórum hóp iðnnema er búið, þá trúi ég ekki öðru en því fynd- ist nóg um. Laun þessara iðnnema eru svo lit.il, að ekki er talið mannsæm- andi. Þau nægja ekki einu sinni fvrir því allra nauðsynlegasta, sem sé mat, þjónustu og húsnæði, hvað þá ef eitthvað þarf að kaupa þess utan, t. d. vinnuföt. Það er sorgleg staðreynd, að svona skuli vera búið að verðandi iðnaðarmönnum þjóðarinnar, þeim mönnum, sem eiga eftir að taka við. Þrátt fyrir marg endurteknar beiðnir og kröfur til þess ráðs, sem með þessi mál fer, þá hafa iðnncm- ar ekki fengið náð fyrir augum þess. Þessi lægst launaða stétt lands- ius er annað hvort hundsuð með því að svara ekki umleitunum hennar, eða ef svar kemur, þá er það neitandi. Nú loksins munu hafa fengist afgreiddar í iðnfræðsluráði kröfur, sem fela í sér svolitla kjarabót fyr- ir iðnnema, sem sagt þeir fá greidda fulla verðlagsu])pbót samkvæmt vísitölu kauplagsnefndar, sem iðn- nemar hefðu raunverulega átt að vcra búnir að fá 1951, þegar verka- lýðsfélögin undirrituðu samningana um að, á laun, sem eigi væru hærri en kr. 9.24 á klst., skyldi greiða fulla vísitöluuppbót. Þetta er gott svo langt sem það nær, en betur má ef duga skal. Þessvegna verða allir iðnnemar nú sem endranær að standa sam- an um þær sjálfsögðu kröfur, sem farið er fram á, til þess að geta lif- að við viðunandi lífsskilyrði. Augu þeirra manna, sem með þessi mál fara, hljóta að opnast, ef þeir á annað borð vilja hafa þau opin fyrir þessum málum. Þessir menn ættu að vita hvað það er að lifa nú á dögum, þegar kaupmáttur launanna er ekki meiri en raun ber vitni. Meistarar og sveinar kvarta um að þeirra laun hrökkvi ekki til heimilisþarfa, svo rnaður tali nú ekki um verkamenn. En hvað mega lægst launuðu iðnnemarnir segja, sérstaklega þeir, er hafa fyrir heimili að sjá, hvað skyldu þeirra laun hrökkva langt? Sjálfsagt rnega þeir lifa við sult og seyru fyrir meistaranum. Ef meistaranum stæði ekki á sama um velferð nemans, þá hlyti hann að bæta kjör hans, það er ómögulegt annað. Sem betur fer hefur margur meistari tekið sig fram og borgað nemanda sínum betri kjör cn hon- um ber samkvæmt lögum, en það er vegna þess, að augu þeirra hafa opnast og þeim er annt um að nemandinn líði ekki skort. Þeir hafa séð, að enginn maður kemst áfram með þau kjör, sem fjölda iðnnema er boðið upp á. Það mun alltaf verða virt við þá meistara, sem vilja koma til móts við iðn- nemana. Hugarfarið hlýtur að breytast hjá nemandanum, þegar hann finnur, að tekið er tillit til óska hans, en er ekki algjörlega vís- að á bug. Ef við hugsum okkur nema á þriðja ári, t. d. í járniðn- IÐNNEMA aðinum, þá eru laun hans ca. 13— 1400 kr. á mánuðn, miðað við 40% af kaupi sveins í sömu iðngrein. Þá sér hver maður, að t. d. nem- andi með konu og barn eða börn getur ekki framfleytt heimili sínu með svona kjörum. Þess vegna verða nemar, sem svona er ástatt með, að nota hverja frístund sem gefst til þess að afla heimilinu tekna, m. a. í vinnu, sem fæstum er vel við að vinna. Eins og áður er sagt er þessi vinna eingöngu framkvæmd að afloknum venju- legum vinnudegi og skóla eða um helgar, þegar flestir aðrir nota frí- stundina til hvíldar. Svo er það skólinn. Eftir vinnu- tíma á daginn verður neminn að fara í skólann og oft til kl. 8—9 á kvöldin. Svo það liggur í augum uppi, að nemanum er ætluð nóttin til þess að læra, og er ætlað að mæta á réttum tíma á morgnana til vinnu. Til er annar hópur iðnncma, sem hefur góð kjör. Sumir þeirra — sem betur fer ekki margir — hafa hundsað sam- tök iðnnema, með því að segja, að þeir hafi ekkert í iðnnemasam- tökin að gera, því að þeir hafi nógu góð kjör og hafi engra hagsmuna að gæta. Þessir iðnnemar hafa áreiðanlega ekki gert sér ljóst, hvað þeir gera samtökunum illt með þessu hátta- lagi. Þeir eru blátt áfram að brjóta á bak aftur baráttu þeirra iðn- nema, sem eru að reyna að vinna að bættum kjörum lægst launuðu stéttarbræðranna. Kæru félagar. Vinnum allir í sameiningu að því að efla samtök okkar fyrir bættum kjörum iðn- nemum til handa. I Ð N N E M I N N 5

x

Iðnneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.